18.10.1935
Efri deild: 47. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1133 í B-deild Alþingistíðinda. (1682)
101. mál, síldar- og ufsaveiði
Frsm. minni hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Það er náttúrlega þarflaust að ræða mikið um þetta mál, því ég heyri engin ný rök, sem ekki voru áður komin fram. Hvað sem frsm. meiri hl. segir um mín rök, eru hans rök a. m. k. ekki betri.
Um þetta atriði voru sett lög á þinginu 1934 án nokkurs ágreinings, og vil ég lesa 1. gr. þeirra með leyfi hæstv. forseta:
„Heimilt er að veiða með herpinót í netlögum annars manns, án þess að landshlutur sé greiddur, enda sé nótinni ekki fest við land né lagt við festar í netlögum. Nótinni telst ekki lagt við festar, þótt skip, sem er að háfa veiði úr herpinót, liggi fyrir akkeri. Nú er slíkri nót fest við land eða lagt við festar innan netlaga, og skal þá greiða landshlut sem að framan segir.“
Þá kom engin aths. né ágreiningur fram frá hv. 2. þm. S.-M., og skildi ég vel, að hans réttsýni réði þá. Ég er þó ekki að segja, að hann láti rangsýnina ráða nú. En ég býst við, að hv. þm. flytji þetta mál fyrir einhvern annan, en það sé ekki hans eigin sannfæring. Mér hefir verið skýrt svo frá, að komið hafi rödd frá einum virðulegum borgara á Austurlandi um þessa breyt., en annars ekki heyrzt nein óánægja yfir l. annarsstaðar af landinu. Hv. frsm. meiri hl. áleit, að hér væri aðeins um innfjarðaveiði að ræða, en ég býst við, að þetta geti víðar valdið ágreiningi, að nokkur hluti veiðinnar sé innan netlaga, en hinn hlutinn fyrir utan. Er þá illt að dæma um, hvað hverjum beri að greiða, og geta af því myndazt þrætur og málaferli, þar sem deilt er um keisarans skegg.
Hv. frsm. meiri hl. leggur mikið upp úr tilsk. frá 1872, sem hann vili ekki láta skerða. En eins og ég hefi bent á, er Alþ. búið að taka mikið af þeim rétti, sem í tilsk. felst. Enda ekkert einsdæmi, að Alþ. breyti ákvæðum eldri l., ef ástæða þykir til. En ég vil ekki breyta þeim l., sem nú gilda, af þeim ástæðum, sem ég hefi áður tekið fram. — Ég sé svo ekki ástæðu til þess að tala meira, því það er svo lítið, sem ég hefi að hrekja hjá hv. frsm. meiri hl., enda er málið svo ljóst, að ekki þýðir að þvæla mikið um það.