21.03.1935
Neðri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (1708)

95. mál, gagnfræðaskóli

Frsm. (Sigurður Einarsson):

Ég held, að hv. þd. gerði réttast að fella ekki niður þennan síðari lið 1. gr. Það er engan veginn svo, að með þessu ákvæði um gagnkvæma skyldu hvors aðilja um að leggja fram fé sé verið að fara fram á neitt einstakt eða óþekkt í lögum. Það er ómögulegt að færa fram nein gild rök fyrir því, að bæjarfélögin séu ekki skyld til að leggja fram fé, þegar ríkið vill leggja fram að sínum hluta, fyrst svo stendur á, að ríkið á að vera skylt til þess þegar bæjunum þóknast að leggja fram fé til húsnæðis fyrir gagnfræðaskóla. Það er mjög tíðkað, af einum aðila er gert að skyldu að leggja fram fé, ef annar vill það, t. d. í girðingalögum o. fl. verði brtt. á þskj. 169 samþ., er það alveg ljóst, að einstök bæjarfélög geta skotizt undan skyldu sinni við gagnfræðaskólana og heft eðlilega þróun þeirra með því að leggja ekki fram tiltekið fé, jafnvel þótt ríkið leggi fram sinn hluta.

Það andar til þessa máls úr ýmsum áttum heldur kuldalega, og það er því fremur ástæða, svo framarlega sem ríkinu er alvara að koma þessum skólum á sæmilegan grundvöll, að binda þetta á þann sanngjarna hátt, sem hér er gert ráð fyrir. Þá má nefna aðra réttarbót, sem í þessu frv. felst, að ríkið greiði 2/5 hluta af húsaleigu fyrir gagnfræðaskóla þar, sem ekki hefir unnizt að koma upp skólahúsi. — Ég verð að halda fast við það, sem minni hl. menntmn. var ásátt um, að fara þess á leit við hv. d. að samþ. frv. eins og það liggur fyrir óbreytt.