29.03.1935
Neðri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)

95. mál, gagnfræðaskóli

Pétur Ottesen:

Út af ummælum hv. 9. landsk. vil ég aðeins benda á, að víða má finna hliðstæð dæmi við það, sem farið er fram á í brtt. minni. Það eru t. d. öll hafnarlögin; þar er svo ákveðið, að ríkissjóður leggi þá fyrst fram fé til mannvirkjanna, þegar fé er veitt til þess í fjárlögum. Þannig mætti ég lengi telja.