29.03.1935
Neðri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
56. mál, bæjargjöld á Ísafirði
Jóhann Jósefsson:
Það er sjálfsagt að láta að orðum hæstv. forseta, þó að ég hefði í rauninni mörgu að svara. En tilefni til þessara umr. voru orð hv. 1. landsk., sem sótti dæmi í þetta land, Austurríki, og þá borg, Vín, sem hér hafa verið gerð að umtalsefni. Ef hæstv. forseti er óánægður með umr., ætti hann að beina spjótum sínum þangað, sem heldur skyldi.
Annars hafði ég gaman af því, að hv. 1. landsk. varð gramt í geði, er ég sýndi fram á, að engin heil brú er í framkomu hans á þingi í máli því, sem hér er til umr. Hjá þessu gat hann ekki komizt, því að hann hefir sjálfur hleypt sér í þessa gildru. Hann mælir á móti vörugjöldum hjá Vestmannaeyingum og öðrum, en mælir með þeim, þegar Ísfirðingar eiga í hlut, þó að það sé þar nefnt öðru nafni. Er ekki til neins fyrir hv. þm. að kippa sér upp við það, þó að bent sé á svona framkomu. Hann ætti að vita, svo lærður maður í málafærslu, að þar, sem snöggir blettir eru fyrir, verða þeir venjulega fyrir einhverju blaki.
Ég varð auðvitað fyrir miklum vonbrigðum, er ég heyrði, að hv. þm. mæti mig ekki mikils. Ég veit ekki, hvernig fer fyrir mér, að verða að búa við slíkan vitnisburð af hans hálfu, að svona stór og stæðilegur maður og mektugur í höfuðborg landsins skuli ekki meta mig mikils. En ekki dey ég þó af því, og ég verð að reyna að þola það, þótt hv. þm. hafi þessa skoðun á mér. Enda hefi ég að undanförnu sótt mitt traust til þeirra manna, sem leggja annað á metaskálarnar en lögfræðingar og skinhelgir alþýðupostular, eins og þessi hv. þm.
En í sambandi við þetta sífellda lúksustal, þetta þvaður um lúksusíbúðir, lúksusvinnukonur o. s. frv., manna, sem sýnast sjálfir vera hálfgerðir lúksusgripir í þjóðfélaginu, vil ég benda á, að það þarf ekki að vera neinn vottur um íburðarlíf, eða með orði hv. þm. lúksuslíf, þó að vinnukonur séu í einhverju húsi Fleiri en ein, eða jafnvel fleiri en tvær. Getur það stafað af margskonar erfiðleikum, svo sem veikindum eða barnafjölda. Þegar svo er ástatt, er verra að komast af með litla hjálp en annars. Vinnukvennafjöldi er enginn ábyggilegur mælikvarði á efnahag.
Læt ég svo útrætt um ágreiningsefni okkar, að öðru leyti en því, að ég vil beina spurningu til hv. þm.: Ef allt er satt, sem hann sagði um Austurríki, hvernig stendur þá á því, að skoðanabræður hans hafa aldrei haft minna fylgi með þjóðinni en nú, og það eftir að þessi maður er að velli lagður, sem var mestur andstæðingur þeirra? Eðlilegast hefði verið, þegar harðstjórinn, er hann nefndi svo, var lagður að velli, að föðurlandsvinirnir hefðu tekið völdin, ef það hefði allt verið rétt, sem hv. þm. fór með. Á þessu fellur öll hans kenning, á þeirri staðreynd, að marxistarnir unnu ekkert á, þó að harðstjórinn væri fallinn. Sýnir þetta, hvaða falskenningar hv. 1. landsk var að fara með.