04.11.1935
Neðri deild: 64. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (1916)

156. mál, erfðaábúð og óðalsréttur

Sigurður Kristjánsson:

Það er rétt, sem tekið hefir verið fram, að í þessu máli eru tvær höfuðstefnur, sem eru mjög andstæðar. Annarsvegar er sjálfseignarstefnan, hinsvegar leiguábúðarstefnan og þá helzt ríkisleigustefnan.

Þegar þessi mál komu fyrir þingið eftir síðustu kosningar, þá mátti ætla, að leigustefnan hefði miklu meiri byr vegna þeirra samninga, sem hv. þm. Hafnf. gat um áðan. Það er vitað, að ég stend utarlega í þeirri fylkingu, sem krefst þess, að unnið sé að því, að jarðeignir landsins verði yfirleitt í eiginábúð. Ég verð þess vegna að láta í ljós ánægju mína yfir því, að þetta frv. sýnir, þar sem því er fylgt af fjórum af fimm landbnm., að sjálfseignarstefnunni hefir aukizt fylgi að talsverðum mun. Vænti ég, að verði áframhald á því, þar til sú stefna sigrar alveg.

Sökum þess, að ég er, eins og ég sagði, utarlega í þeim fylkingararmi, sem krefst þess, að sjálfsábúð verði sú ríkjandi í landinu, þá lít ég náttúrlega svo á, að fyrsti kafli þessa frv. sé óþarfur, en í hans stað ætti að koma ákvæði um það, að þjóð- og kirkjujarðir yrðu afhentar ábúendunum endurgjaldslaust. Ég mun athuga það við næstu umr., hvort ég sé mér fært að gera þar brtt. við frv., sem snúa því í það form, sem er samkv. minni stefnu í þessu máli. Ég skal því ekki fara fleiri orðum um það við þessa umr.