07.11.1935
Neðri deild: 67. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (1930)

156. mál, erfðaábúð og óðalsréttur

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Út af þeim umr., sem síðast urðu um rétt óðalseiganda til þess að gefa jörðina, vil ég segja það, að það getur staðið svo á að það sé óverjandi að standa á móti því. Ég þekki dæmi um bónda, sem vildi koma jörð sinni í hendur ákveðins manns, og hann vildi selja hana við vægu verði, eða m. ö. u. við fasteignamatsverði. En erfingjar mannsins, sem voru á móti því, að jörðin færi til þessa manns, ætluðu að ógilda söluna með því að fá hreppinn til þess að kaupa hana, en hann hafði forkaupsréttinn. En þegar bóndi fékk ekki að selja jörðina þeim, sem hann vildi, þá hugsaði hann sér að fara þó að l., og hann gaf jörðina. — Ég hygg, að þetta sé ljóst dæmi um það, að mönnum er ekki sama, hvað verður um jarðir þeirra, og því er ekki nema eðlilegt, að þeir fái að láta annan hafa jörðina, þegar þeir óska þess, og þess vegna mun ég fylgja brtt. hv. 7. landsk.

Annars vil ég segja það, að ég er hissa á því, að þeir, sem vilja gera allar jarðir að ríkiseign, skuli ekki hafa hreyft andmælum gegn 28. gr. frv. Í 28. gr. frv. er gert ráð fyrir undantekningu frá því, að jarðeigendur þurfi að beygja sig undir þá skyldu, sem annars er venjuleg undir þessum kringumstæðum, sem sé skylduna að byggja upp á jörðinni. Nú er það vitanlegt, að það að byggja upp á jörðunum er einna verst viðfangs fyrir ábúendur jarðanna, og það eru venjulega byggingarnar á jörðinni, sem koma bóndanum á kaldan klaka fjárhagslega, en ekki kaupverð jarðanna, því að byggingarkostnaðurinn er svo margfalt meiri. Nú ætla þessir menn að hremma undir ríkissjóð allar jarðir í landinu, en vilja þó losa ríkissjóð við þá sjálfsögðu skyldu, sem lögð er á herðar hverjum jarðeiganda. Það er því ekki glæsilegt fram undan hjá þeim, sem hallast á sveif í skoðunum með þessum mönnum. Þeir ætla þeim að verða leiguliðar ríkissjóðs, með vægum leigumála, segja þeir. En hann er ekki vægari en það, að þegar þeir verða að taka á sig byggingarkostnaðinn á jörðinni, þá verða árleg útgjöld þeirra svo að segja nákvæmlega þau sömu og tíðkazt hefir og komið hafa mönnum í greiðsluþrot vegna óhagstæðs búrekstrar. Það, sem ég taldi langmestu varða í sambandi við ábúðarlögin, var m. a. það í sambandi við jarðir ríkisins, að þá var þessum mönnum tryggt, að þeir fengju jarðir sínar viðunandi húsaðar, og voru því meiri skilyrði til þess, að þeir gætu rekið búskapinn á þann hátt, að þeir gætu sjálfir notið þeirra þæginda, sem þeim voru nauðsynleg. En þessu höfuðatriði er kippt burt gagnvart stærsta jarðeiganda landsins, ríkissjóði, þar sem hann á að vera laus við þessi skylduákvæði ábúðarlaganna.

Ég mun því greiða atkv. gegn 28. gr., sem ég álít óverjandi, a. m. k. ef að nokkru leyti verður skert ákvæði gildandi laga um sölu á þjóð- og kirkjujörðum, því að ef efnamenn gerast kaupendur að þessum jörðum og hafa efni á að byggja upp og gefa þannig framtíðinni nokkuð af sínum höfuðstól, þá eru eftirkomandi ábúendur á þeim jörðum miklu betur settir en hinir, sem verða að gerast leiguliðar ríkissjóðs með öllum skyldum um að byggja upp á jörðunum, og gera þær búskaparhæfar. — Skal ég svo ekki fjölyrða frekar um þetta. Ég tel brtt. á þskj. 483 sjálfsagða og býst einnig við, að brtt. 2 þskj. 485 sé að mörgu leyti til bóta. Þó sýnist mér þörf á að drepa á nokkur fleiri atriði í þessu máli, en ég mun þó láta það ógert að sinni.