07.11.1935
Neðri deild: 67. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (1932)
156. mál, erfðaábúð og óðalsréttur
Þorbergur Þorleifsson:
Ég ætla ekki að lengja umr., en vil aðeins flytja skrifl. brtt. við 2. gr. frv. um það, að afgjaldið af jörðunum verði fært úr 3% og niður í 2%. Það hefir komið fram hjá ýmsum, sem talað hafa um þetta mál, sérstaklega hjá hv. frsm., þm. Mýr., að menn álíti, að 3% afgjald væri of hátt eins og nú standa sakir, en þeir segja, að þetta eigi að laga með nýju skattmati; en það er engin trygging fyrir því, að þetta verði gert, svo að það er miklu hyggilegra að miða þetta gjald við það skattmat, sem nú gildir í landinu. Og það eru allir sammála um, að 3% sé of hátt gjald, miðað við núgildandi skattmat. Nú er það vitanlegt, að við munum búa nokkur ár enn við þetta skattmat, og þessi lög ganga væntanlega, ef þau verða samþ., fljótt í gildi. Það er líka miklu hægara að miða skattmatið við það afgjald, sem ákveðið er í lögum, heldur en að miða afgjaldið við eitthvert skattmat, sem kann að verða einhverntíma í framtíðinni. — Það er ekki ástæða til þess að fara fleiri orðum um þetta, en ég vil leyfa mér að bera fram þessa skrifl. brtt., sem ég óska, að komi hér til greina.