09.11.1935
Neðri deild: 69. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (1939)

156. mál, erfðaábúð og óðalsréttur

Gísli Guðmundsson:

Ég hefi borið fram brtt. á þskj. 505. Brtt. þessar eru nokkuð margar og allfyrirferðarmiklar, en þó mega þær allar heita orðabreyt., nema 7. brtt., við 16. gr. Efni allra hinna brtt. er það í fáum orðum, að orðið óðal og óðals- í samsetningum falli niður, þannig að í staðinn fyrir ættaróðal komi jörð, í stað óðalsbóndi ábúandi, í stað óðalsréttur erfðaábúð o. s. frv. Hefi ég farið í gegnum frv. og fært þetta til samræmis.

Ástæða mín til þessara brtt. er sú, að ég kann því illa að greina íslenzka bændur í tvo flokka, eðalsbændur og aðra, með fáfengilegum orðamun. Þetta skiptir a. v. ekki miklu og felur ekki í sér efnisbreyt. Hinsvegar er efnisbreyt. í 7. brtt., við 16. gr., þar sem fellt er niður það ákvæði frv., að myndir og munir, sem hafa menningargildi fyrir þá bændaætt, er setið hefir á jörðinni, skuli fylgja óðalinu. Mér finnst, að láta eigi menn sjálfráða um þetta og óþarft að lögfesta það, og ekki laust við hégómaskap.