15.02.1935
Neðri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2453 í B-deild Alþingistíðinda. (196)

Starfsmenn þingsins

Thor Thors:

Ég hefi tekið eftir því, að þegar auglýst voru störf hér við Alþingi, var tekið fram, að palla- og dyravörzlustörf yrðu aðallega veitt mönnum á aldrinum 25 til 40 ára. Ég vil í því sambandi spyrja hæstv. forseta, hvort það sé meining forseta þingsins að taka hér upp nýja reglu að því er viðvíkur aldurshámarki manna, er starfa fyrir ríkið. Á seinasta Alþingi voru samþykkt lög, er beina mönnum frá embætti við 65 ára aldur. Ég vil því spyrjast fyrir um, hvort nú á að ganga lengra í þessu efni og binda takmarkið við 40 ára aldur. Mér er kunnugt um, að allir þeir, sem gegnt hafa dyravörzlu hér undanfarið og flestir hafa gegnt því starfi um langt skeið, eru komnir yfir 40 ára aldur. Ég þykist því geta séð, að það muni vera meining a. m. k. einhverra af forsetum þingsins, að bægja þessum mönnum frá starfinu, og hygg ég, að þetta 40 ára aldurstakmark sé notað sem yfirskyn. Ég hefi ekki orðið annars var en þessir menn hafi gegnt starfi sínu eins og vera hér, og hygg ég, að þeir hafi starfað í góðri samvinnu við allflesta þingmenn. Ég vil því leyfa mér að spyrja hæstv. forseta, hvað veldur þessu og hver er stefna forsetanna í þessu efni.