11.11.1935
Neðri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (1986)

169. mál, tolllög

Frsm. (Jakob Möller) [óyfirl.]:

Eins og grg. þessa frv. ber með sér, þá er frv. flutt eftir sameiginlegri ósk ríkisstj. og tóbakseinkasölu ríkisins.

Efni frv. er í stuttu máli það, að framvegis verði sígarettur tollaðar án umbúða í staðinn fyrir það, að hingað til hafa þær verið tollaðar með umbúðum. Þetta er í framkvæmdinni þannig, að tollurinn á sígarettum hækkar að sama skapi og þungi á þeim mundi minnka við þetta. Hinsvegar er ekki gert ráð fyrir, að þessi tollbreyt. hafi nein áhrif á verðlag þessarar vöru, enda má ráða það af grg. frv., að svo er ætlazt til, að verðlagið haldist óbreytt. Hinsvegar er gert ráð fyrir því, að þessi lagabreyt. gildi ekki lengur en ríkiseinkasalan er starfandi, með tilliti til þess, að framkvæmd tollákvæðanna svo breyttra yrði þá erfiðari, og þyrfti þá að taka hana til sérstakrar athugunar, ef breytt yrði verzlunarfyrirkomulaginu.

Ástaðan til þess, að farið er fram á þessa breyt., er sú, að eins og þessi l. eru nú, þá skapast tilhneiging til að flytja þessa vöru inn í sem óvönduðustum umbúðum, og getur það haft áhrif á gæði vörunnar. Það þykir því ekki rétt, að löggjöfin stuðli að því, að umbúðir séu sem lélegastar og vörugæði þar með minni en þau ella geta verið. Þykir því rétt að verða við tilmælum tóbakseinkasölunnar um að breyta tolllögunum að þessu leyti.