18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (20)
Kosning fastanefnda
Magnús Guðmundsson:
Ég hefi svipað að segja um afstöðu Sjálfstfl. og hv. 4. landsk. fyrir sinn flokk, að Sjálfstfl. hefir ekki rætt um það, hvort fjölga skuli mönnum í landbn., en ég sé ekki ástæðu til að breyta skipun n. frá því, sem hún var á síðasta þingi, og tel ég því víst, að mér sé óhætt að fullyrða, að Sjálfstfl. muni fallast á till. hv. 10. landsk., þó um þetta hafi ekki verið rætt í flokknum. Mætti vænta, að Alþfl. gæti einnig gefið svar, ef hann fengi fundarhlé í nokkrar mínútur til þess að ræða málið.