15.02.1935
Neðri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2454 í B-deild Alþingistíðinda. (200)

Starfsmenn þingsins

Héðinn Valdimarsson:

Ég er einn af þeim, sem ekki hafa verið ánægðir með dyraverðina. En mér mundi ekki detta í hug að bera fram umkvartanir við hv. þm. Snæf., heldur við hæstv. forseta. Hygg ég, að svo muni vera um flesta hv. þm., að þeir snúi sér ekki til hv. þm. Snæf. í þessu efni.