25.11.1935
Efri deild: 78. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1276 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)

149. mál, stimpilgjald

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Ég held fyrir mitt leyti, að óskynsamleg leið sé farin í þessu máli, sem sé, að sektirnar séu allt of háar. Það er svo hér eins og annarsstaðar, að of þungar refsingar verka öfugt við það, sem þeim er ætlað að gera. Ef lagðar væru við hóflegar sektir, mundu þær miklu fremur koma að gagni, því þá yrði refsiaðgerðum heldur beitt. Held ég, að skynsamleg sekt væri um 50% af stimpilgjaldinu. Það mundi gefa dálitlar tekjur í ríkissjóð, en með því, sem nú er að fimmfalda gjaldið, greiðist það ekki, nema um litlar upphæðir sé að ræða.

Hæstv. fjmrh. er nú staddur hér í d. og getur upplýst, hvort ekki er rétt, að stimpilsektir greiðist sjaldan.

Ég vildi einmitt nú beina því til hv. fjhn. að athuga, hvort ekki væri ástæða til að breyta nú stimpillögunum í það horf að lækka sektirnar. Ég er ekki í vafa um, að það er rétt leið að veita stj. heimild til að falla frá sektum, en vafasamt, hvort ástæða er til að takmarka tímann. Þess eru fjölmörg dæmi, að vanrækt hefir verið að stimpla og þinglesa skjöl, sem nauðsynlegt er að fá inn í afsals- og veðmálabækur. Og þessi háa sekt hefir aðeins orðið til þess að auka óreglu í þeim efnum.