25.11.1935
Efri deild: 78. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)

149. mál, stimpilgjald

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Ég skal játa, að það skiptir ekki miklu máli, hvort ákvæðum um sektir verður breytt á þessu þingi eða því næsta, eða áður en þessi frestur er útrunninn. En hinsvegar álít ég, að það þurfi ekki að bíða til 1. júlí 1937 til þess að sjá, hverju fram vindur í þessu máli, því að það er þegar fengin reynsla í þessu efni. 1. jan. 1932 var útrunnin heimild ríkisstj. til að falla frá stimpilsektum, og var það talsvert af skjölum, sem þá var sótt um undanþágu fyrir. En það hefir sýnt sig síðar, að það er til meira og minna af skjölum, sem vanrækt hefir verið að stimpla, og verður eins í framtíðinni. Og þá sýnist mér, að það sé alveg nauðsynlegt að miða sektina við það, að stjórnarvöldin sjái sér fært að innheimta hana, því að annars verða l. að þessu leyfi algerlega marklaus. Og ég held, að fram að þessu hafi það bara verið víxlar, sem farið hafa í „protest“, sem hafa lent í stimpilsekt, ég þekki ekki fleiri dæmi.

Ég held því, að það sé engin ástæða til, þegar maður veit, hvernig þetta verður í framtíðinni, að fara að draga að breyta l. Það er veigalítil ástæða, að þetta þurfi svo mikla athugun, þar sem hér sé um svo mikinn lagabálk að ræða, því að hér þarf vitanlega engu að breyta nema sektarákvæðunum, og er auðvelt að koma þeirri breyt. á án þess að efni l. raskist.