25.11.1935
Efri deild: 78. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)

149. mál, stimpilgjald

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

N. er í raun og veru alveg sammála hv. 2. þm. Rang. um þetta atriði, þó að það kunni að vera, að það hafi ekki verið tekið fram í nál. eins skýrt og ástæða hefði verið til. Till. n. er sú, að sektarákvæðunum verði breytt, því að henni var það ljóst, að sektin er ákveðin of há, og þegar hún er borin saman við aðrar hliðstæðar sektir, þá er engin von, að menn sjái sér fært að kalla þetta inn. Þess vegna virtist n. það rétt, að á þessu yrði breyt. Auðvitað er það alveg rétt, sem hv. 2. þm. Rang. sagði, að n. hefði getað gert þessa breyt. Hún gat fengið sér til aðstoðar fagmenn í þessari grein og gert svo sínar brtt. við frv. En þetta virtist okkur aðgengilegri aðferð, sérstaklega þar sem búast má við, að þing komi bráðlega saman aftur og málið er ekki í neinu öngþveiti, þar sem stj. hefir málið alveg í hendi sér fram að þeim tíma.

Ég get ekki fallizt á það hjá hv. 2. þm. Rang., að þetta sé svo einfalt mál, þar sem sektarákvæðin eru í mörgum gr. og alls ekki víst, að þetta ákvæði um fimmfalt stimpilgjald yrði eina sektarákvæðið, sem þyrfti að breyta. Það verður að fara í gegnum öll sektarákvæðin, og þó að sá undirbúningur tæki kannske ekki mjög mikinn tíma, þá verður þetta samt sýnilega að vera unnið af fagmönnum. Nú er sennilega bráðum komið að þinglausnum, og má búast við, að fjárl. taki mikinn hluta af þeim tíma þingsins, sem eftir er. Er því ráðlegra að gefa stj. þá heimild, sem hér um ræðir, um stuttan tíma, og að hún leggi svo fyrir þingið till. til framtíðarúrlausnar. Og án þess að ég álíti, að ég þurfi að hlaupa í skarðið fyrir hv. frsm., þá vil ég að endingu taka það fram, að n. vill leggja megináherzlu á það, að fá þessum ákvæðum í lögunum breytt.