23.11.1935
Efri deild: 77. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)

158. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Allshn. hefir haft þetta mál til meðferðar, og leggja 4 af 5 nm. til, að frv. verði samþ. óbreytt.

Efni frv. er það, að veita megi fiskimatsmönnum undanþága frá l. um aldurshámark embættismanna, ef yfirfiskimatsmenn mæli með því. Þetta byggist m. a. á því, að þm. munu yfirleitt ekki hafa ætlazt til þess, að l. næðu yfir þessa menn, er þau voru samþ., enda eru þessir menn launaðir af atvinnarekendum, en ekki ríkinu, enda þótt þeir séu stjórnskipaðir. Mér er kunnugt um, að sumir þessara manna hafa fullkomið starfsþrek, þótt komnir séu yfir hinn ákveðna aldur, og með því að leggja þetta á vald yfirfiskimatsmanna ætti að vera tryggt, að ekki yrði öðrum en hæfum mönnum veitt slík undanþága.

Einn nm. hefir ekki getað orðið okkur samferða og telur, að þessir menn þurfi að vera með fullu þreki, en það séu menn sjaldnast á þeirra aldri. Þetta er að vísu rétt, en við teljum, að margra ára leikni vegi allmikið á móti því, þótt líkamsþreki væri eitthvað farið að förla.