26.11.1935
Efri deild: 79. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í B-deild Alþingistíðinda. (2064)
158. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna
Ingvar Pálmason:
Mér þykir rétt, áður en þetta mál fer út úr þessari hv. d. og verður sennilega að l., að benda hv. þdm. á það enn að nýju, að frv. þetta er þess eðlis, að það gengur lengra en nokkrum hefir dottið í hug að heimila, að embættis- og starfsmenn ríkisins séu í stöðum samkv. núgildandi l. Þessi undanþága, sem hér er farið fram á að veita, nær aðeins til manna eftir 70 ára aldur, því eins og tekið hefir verið fram, er í l. undanþáguheimild um það, að menn geta fengið að vera við starf sitt í þjónustu ríkisins til 70 ára aldurs. Ég efast um, að hv. þdm. hafi gert sér þetta ljóst, og vil ég því skýra málið frekar. Þegar þetta frv. var flutt í Nd., þá var það flutt á þeim grundvelli, að undanþáguna í 2. gr. l. væri skylt að veita í þessu tilfelli, ef meðmæli væru fyrir hendi frá yfirfiskimatsmanni. En þessu var breytt í Nd., svo að frv. er nú orðið annað en hv. flm. ætluðust til, að það væri. Og ef það yrði að l. eins og það er nú, þá yrði það hortittur í l. Hitt er skiljanlegt, sem hv. flm. ætluðust til í upphafi, að það væri skylt að veita undanþágu samkv. 2. gr. l., ef meðmæli lægju fyrir frá yfirfiskimatsmanni. En þau lausatök hafa orðið á þessu máli, að það er óforsvaranlegt að afgr. það og gera það að l. eins og það nú er. Nú eru síðustu forvöð til þess að koma í veg fyrir, að málið verði afgr. frá Alþ. þannig, að það nálgist það að vera hortittur í l.
Ég skal nú ekkert um það segja, hvort þessi skýring mín hefir áhrif á hv. dm. Ég hygg, að hv. dm. hafi ekki kynnt sér það, hvernig þetta mál var flutt. En þar sem svona er komið, þá vil ég gera eina tilraun til þess, að málið sé afgr. á skynsamlegan hatt, og vil ég því stinga upp á því, að málið sé tekið af dagskrá nú, og sjá, hvort hv. flm. sannfærast ekki um, að það eigi að færa það í það form, sem það var upphaflega í, því það var meining í því eins og það var upphaflega. Ég vil því mælast til þess við hæstv. forseta, að málið sé tekið út af dagskrá. Og vil ég fyrir mitt leyti vinna með fylgismönnum málsins að því að breyta því svo, að það sé frambærilegt og þannig úr garði gert, að hægt sé að samþ. það.