08.11.1935
Neðri deild: 68. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)
87. mál, eignarnámsheimild landa í Hafnarfirði
Jón Pálmason:
Ég geri ráð fyrir því, að hv. þdm. hafi veitt því eftirtekt, að ég hefi skrifað undir þetta nál. með fyrirvara, og vil ég því gera grein fyrir, í hverju þessi fyrirvari minn liggur.
Þegar um það er að ræða að taka eignarnámi lönd handa kaupstöðum. frá einstaklingum eða sveitarfélögum, þá koma til greina tvo sjónarmið. Í fyrsta lagi er að athuga að verða við óskum þeirra, sem þurfa á ræktanlegu landi að halda, og sjá um, að þeir fái það, því að halda landi fyrir þeim, sem vilja rækta, er neyðarkostur.
Að hinu leytinu verður að taka tillit til þess, að ganga ekki á rétt einstakra manna eða héraða, sem landið eiga, nema sem allra minnst. Að draga merkjalínuna rétt milli þessara sjónarmiða er oft vandasamt og veldur eðlilega ágreiningi.
Nefndin hefir nú skoðað þessi lönd, og mér satt að segja ofbýður, að nokkur maður skuli þurfa á því að halda að taka til ræktunar í okkar frjósama landi slíka urð sem hér er um að ræða. En mér finnst ekki, að landinu eigi að halda frá ræktun, ef nokkur þarf þess með, og get því ekki verið á móti slíkum kröfum, og er ég því samþykkur meiri hl. landbn. að því er snertir landspildurnar kringum Hafnarfjörð.
Aftur á móti er það að segja um Krýsuvík og Nýjabæ, að það er í nokkurri fjarlægð frá Hafnarfirði og getur verið spursmál, hvort þörf sé á að taka þær jarðir eignarnámi fyrir Hafnarfjörð, en ég vil ekki ganga lengra í þessu efni heldur en brýn nauðsyn krefur.
Sýslan á 2 fulltrúa hér í þessari hv. d., þar sem eru hv. þm. Barð., sýslum. í Gullbringu- og Kjósarsýslu, og hv. þm. G: K., og fyrirvari minn þýðir það, að ég hefi áskilið mér rétt til þess að vera með brtt., sem væru bornar fram af þessum mönnum, sem eiga að gæta réttar sýslunnar. Nú standa svo sakir, að sýslumaður G.-K. er ekki viðstaddur, en ég hefi átt tal við hv. þm. kjördæmisins og býst við, að svo kunni að fara, að hann beri fram brtt. við 3. umr. málsins, en ég sé ekkert því til fyrirstöðu, að málið gangi til 3. umr. og þá sé tekið til athugunar, að hve miklu leyti það teljist nauðsynlegt, að heimild þessi nái til Krýsuvíkur og Nýjabæjar.