08.11.1935
Neðri deild: 68. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (2078)

87. mál, eignarnámsheimild landa í Hafnarfirði

Ólafur Thors:

Mér er ekki kunnugt um, hvort þetta mál hefir verið sent sýslumanni Gullbr.- og Kjósars. til umsagnar. En hafi það ekki verið gert, þá virðist mér, að öll sanngirni mæli með því, að málið sé ekki afgr. án þess að hann fái að athuga það og segja álit sitt á því. Hitt er bert af grg. frv., að hreppsn. í Garðahreppi virðist vera andvíg þessu eignarnámi, að því er það snertir þann hrepp sérstaklega.

Ég verð að viðurkenna það höfuðsjónarmið, sem kemur fram greinilegast hjá hv. þm. A.-Húnv., og ég hygg, að líka liggi til grundvallar fyrir flutningi frv., þ. e. a. s., að það verði að sjálfsögðu að reyna að taka fullt tillit til þarfar þeirra manna, sem við lítið landrými búa. Og ég vil ekki þvertaka fyrir, að það megi færa fyrir því nokkuð gild rök, að Alþ. beri að hlutast til um slíkt eignarnám, þar sem þörfin er annarsvegar rík fyrir landið og kannske hinsvegar ekki hægt að færa jafngild rök fyrir því, að sá, sem eignarnámið mundi ganga út yfir, missi mikið við eignarnámið. En þó að ég viðurkenni þetta höfuðsjónarmið, þá virðist mér að þingið verði á hverjum tíma a. m. k. að fá fullkomnar upplýsingar um þau gögn, sem sá aðili, sem eignarnámið gengur út yfir, hefir fram að færa gegn þeim vilja, sem kemur fram í frv. Mér hafa nú, meðan ég er að flytja þessa ræðu, verið færð skjöl frá sýslumanni Gullbringu- og Kjósarsýslu, bæjarfógeta Hafnarfjarðarkaupstaðar, þessu máli viðkomandi. En ég hefi því miður ekki vitað um, að þessi umsögn lá fyrir, og því hefi ég ekki haft tækifæri til að kynna mér hana. En það ætla ég, að muni nærri sanni, þegar ég get þess til, að sýslunefnd Gullbringu- og Kjósarsýslu sé einnig andvíg þessu máli. Ég geri það ekki í því skyni að tefja framgang málsins, að ég ber fram ósk um, að umr. um þetta mál verði frestað, þar til oddviti sýslunefndar í viðkomandi sýslu, sem sæti á í þessari hv. d., getur verið hér viðstaddur. Mér virðist, að við hliðina á mér eða jafnvel fyrir framan mig eigi hann að standa sem réttur málsvari þeirra manna, sem þetta frv. sætir andstöðu frá og gengur út yfir. Leyfi ég mér þess vegna, og einnig vegna hins, að ég hefi ekki vitað fyrr um þessa umsögn, en einkum og sér í lagi vegna þess, að oddviti sýslunefndar í viðkomandi sýslu, sem á sæti hér í hv. d., er veikur, að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fresti umr. um þetta mál, þar til sá hv. þm. getur verið viðstaddur.

Ég mun ekki á seinna stigi þessa máls gera neina tilraun til að tefja eðlilegan framgang þess. En ég hygg, að málinu sé ekki stofnað í neina hættu með því, að umr. um það verði nú frestað, eins og ég gerði till. um.

Ég vil svo aðeins bæta því við, að þangað til ég hefi kynnt mér ýtarlega alla gagnrýni viðkomandi sýslunefndar, hefi ég náttúrlega af eðlilegum ástæðum tilhneigingu til þess að vera andvígur þessu máli, en geymi mér þó að taka endanlega afstöðu um fylgi við það, þar til ég hefi heyrt umsögn oddvita sýslunefndar.