18.11.1935
Neðri deild: 76. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1319 í B-deild Alþingistíðinda. (2158)
136. mál, sameining Blönduóskauptúns í eitt hreppsfélag
Guðbrandur Ísberg [óyfirl.]:
Hv. þm. V: Húnv. var fjölorður og þó sérstaklega um anda laganna. Hann hneykslaðist mikið á því og telur, að þetta sé því aðeins gert, að frv. sé á móti orðun laganna. Þetta er algerlega rangt af því sveitarstjórnarlögin ná ekki yfir þetta tilfelli, svo sem ég hefi sagt, vegna þess að búið er að skilja nokkurn hluta kauptúnsins frá öðrum hreppi. Það er svo allt annað en að þetta sé á móti lögunum, að á Alþ. hafa verið afgr. lög hvað eftir annað með hliðsjón af og byggð á anda sveitarstjórnarlaganna.
Annars var virðingarvert hjá hv. þm., að hann var búinn að finna vissa ástæðu fyrir því, að frv. hefði komið fram, og það var sú ástæða, sem bent var á við 1. umr., að mennirnir fyrir norðan ána hafa ekki land, fá ekki land og vilja ekki lifa á mölinni, og með frv. var leitazt við að bæta úr þessu. Nú ætlar hv. þm. sjálfur að leggja hönd á plóginn og bera fram frv. um að laga þennan þátt. Er gott eitt um það að segja, að hann skuli þó vera samþykkur einu atriði frv.
Þá minntist hann með mikilli þykkju á, að Blönduóshr. hefði ranglega ætlað að fá tekjur ef Engihlíðarhreppi, fá þær ranglega af mönnum norðan árinnar. Hefir Engihlíðarhr. þá ranglega tekjur af íbúum í kauptúninu norðan ár? — Annars talaði hv. þm. á við og dreif um ýmsa hluti, svo ekki var gott að átta sig á. Sló hann föstum allskonar rakaleysum og fór með tóman þvætting á stundum, en minntist aldrei á aðalatriðin. Fannst mér ræða hv. þm. minna æðimikið á það, sem borið hefir verið fram í þessu máli og gefið út sem vísindalegur hlutur, að staðvindar ríki eða vindsveiflur svo óðar við Blönduósbrú, að börnum sé ekki fært yfir brúna. Ég held, að einhver þvílíkur vindsveipur sé um heilann á hv. þm. — Ég nenni svo ekki að eltast við hann meira, en bið hann að bera kveðju mína þeim, er hafa sent hann með þessar flugur, og skila frá mér, að forsendingin hafi engan árangur borið.