21.11.1935
Neðri deild: 79. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)

136. mál, sameining Blönduóskauptúns í eitt hreppsfélag

Guðbrandur Ísberg:

Ég hefi borið fram brtt. við frv. á þskj. 587, sem í því felst, að á eftir orðinu „fjörubeitar“ komi: að vetrarlagi. Þessi breyt. er miðuð við það, að þeir menn, sem búa norðan við ána, geti að ósekju rekið fé af höndum sér, til þess að verja tún sín og garða. Annars má líta svo á, að orðið „fjörubeit“ tákni aðeins beit að vetrarlagi, en þó tel ég vissara að taka þetta fram.

Það eru til menn, sem vanrækja að reka fé sitt á fjall að vorinu, eins og gildandi fjallskilareglugerð mælir fyrir, en það verður að teljast alveg ótækt, að það fé fái hindrunarlaust að ganga á túnum manna og görðum.