09.12.1935
Efri deild: 90. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (2199)

136. mál, sameining Blönduóskauptúns í eitt hreppsfélag

Páll Hermannsson:

Ég vildi aðeins gera grein fyrir því, hvers vegna ég get ekki fallizt á brtt. á þskj. 703. Auk þess, sem hv. 1. þm. Eyf. hefir bent á, þá tel ég tvo galla á brtt. Fyrst er það, að það er hvergi ákveðið, hverjir eða hvernig eigi að jafna úr þeim ágreiningi, sem kynni að rísa um skoðanamun á staðreyndum. Auk þess finnst mér, að regla sú, sem bent er á að fara í brtt. þessari, geti orðið ósanngjörn, að greiða bætur til Engihlíðarhrepps þannig, að leggja til grundvallar þær tekjur, sem hreppurinn hefir haft af þeim hluta sínum, sem nú á að sameina Blönduóshreppi, síðastliðin 5 ár, og draga þar frá þau gjöld, sem hann hefir haft vegna þessa hreppshluta, og kapítalisera svo mismuninn. Þessa aðferð tel ég geta orðið ósanngjarna, því að 5 ára reynslutími getur ekki talizt ábyggilegur eða réttur mælikvarði til þess að byggja þessa útreikninga á. Við getum hugsað okkur, að fátækraframfærsla Engihlíðarhrepps hafi þennan umrædda tíma stafað að miklu leyti frá þessum hluta hreppsins, sem nú á að leggja undir Blönduós; þá gæti svo farið, að skaðabæturnar yrðu mjög litlar. Svo má snúa dæminu við og hugsa sér það þannig, að fátækraframfærslan vegna þessa umrædda hluta hreppsins hafi verið þennan tíma nær engin. Þá gæti svo farið, að bæturnar yrði óeðlilega háar. Nú veit ég ekki, hvernig þetta hefir verið undanfarin 5 ár, en eins og ég hefi tekið fram og sýnt fram á, þá tel ég, að þessi regla geti orðið ósanngjörn eða jafnvel ranglát. Eina leiðin, sem mér finnst vera sanngjörn og geti því verið um að ræða í þessu tilfelli, er sú, að dómkveðja menn til þess að framkvæma mat á þeim tekjumissi, sem Engihlíðarhreppur verður fyrir vegna missis þessa hluta síns til Blönduóss, og láta þá jafnframt hafa rúmar hendur. Af því, sem ég nú hefi sagt, get ég ekki greitt atkv. með brtt. á þskj. 703.