19.11.1935
Efri deild: 73. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)
167. mál, Kreppulánasjóður
Jón Baldvinsson [óyfirl.]:
Það má náttúrlega segja, að ýms sveitarfélög séu illa stödd. En ég held, að brýn þörf sé á því að koma lagi á fjárreiðu kaupstaðanna, því að það eru allir sammála um, að þeir séu í miklum vandræðum með fjárreiður sínar. Ég ætla ekki að vera langorður að þessu sinni.
Hv. 1. þm. Skagf. hefir misskilið orð mín. Ég talaði ekki um, að það þyrfti ný uppgjör að fara fram á skuldum lántakenda úr kreppulánasjóði, heldur yrðu að fara fram ný skipti samkv. því, sem hv. 2. þm. Rang. hélt fram. Hann sagði að nokkrir lántakendur hefðu þegar nokkrum dögum eftir að þeir voru búnir að taka lánin tekið skuldirnar að sér, Og ég segi, að ef þeir, eftir að hafa tekið lánin, hafa tekið að sér niðurfelldar skuldir, sem ábyrgðarmenn áttu, þá verða önnur skipti að fara fram, er ábyrgðarmenn taka að sér skuldina aftur.
Mér þykir það dálítið undarlegt, ef uppgjöri í kreppulánasjóði hefir verið þannig háttað, að mikill hluti af skuldum bænda skuli enn svífa í lausu lofti. Ég verð að segja, að mér þykir það nokkuð losalegt, ef fjöldi bænda hefir tekið aftur við skuldunum án þess nokkuð væri um það hugsað. Er það alleinkennilegt, að svo hafi verið gengið framhjá ábyrgðarskuldunum, sem vitanlega er mikill hluti af skuldum almennings. Þykir mér mikið bresta á um framkvæmdastjórn kreppulánasjóðs, að það skuli hafa verið látið viðgangast, að stórar skuldarupphæðir standi hingað og þangað sem ekkert hefir verið hugsað um, og fjöldi manna, sem þar átti hlut að máli, hafi hvergi komið þar nálægt. Lánin munu hafa verið miðuð við eignir og getu lántakanda, og samt standa eftir stórar upphæðir, sem þeir taka einnig á sig. Því reyndi stj. kreppulánasjóðsins ekki að semja um þetta í upphafi?
Út af ummælum hv. 1. þm. Skagf. um, að hann teldi óvíst, að 3. gr. l. um kreppulánasjóð væri rétt orðuð, vildi ég aðeins segja það, að það er nokkuð seint að sjá það nú, þegar verið er að ljúka við að lána úr sjóðnum. Hún hefði þurft að vera ljósar orðuð, svo það væri skýrt, að hún ætti aðeins við þau lán, sem síðar kæmu fram.
Ég vil aðeins skjóta því hér inn í, að prentun þingtíðindanna, virðist vera nauðsynleg og óhjákvæmileg, svo að hægt sé að sækja í þau lagaskýringar, þegar svipað stendur á og í þessu tilfelli, sem hv. 1. þm. Skagf. var að ympra á.