09.12.1935
Neðri deild: 94. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (2290)

91. mál, fávitahæli

Frsm. (Thor Thors):

Allshn. hefir tekið þetta mál til athugunar og hefir orðið ásátt um að leggja til, að frv. nái fram að ganga með þeirri einu breyt., að ríkið greiði 4/5 af kostnaði, í stað 3/4, sem ráðgert er í frv. Þessi brtt. er í samræmi við þá ákvörðun, sem ætlazt er til, að tekin verði upp í frv. til framfærslulaga sjúkra, þar sem gert er ráð fyrir, að ríkið leggi fram 4/5 af kostnaði.

Ég vil geta þess, að hv. þm. Barð. var ekki á fundi, þegar þetta var rætt, en ég veit ekki annað en hann sé samþykkur n. um að samþ. frv. með þessari breytingu.