30.11.1935
Neðri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1396 í B-deild Alþingistíðinda. (2303)

189. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Með frv. á þskj. 604 á að gera þá breyt. á tekju- og eignarskattsl., að sami frestur skuli vera til að skila skattskýrslum í Reykjavík og öðrum kaupstöðum landsins, sem sé fyrir janúarmánaðarlok ár hvert, í staðinn fyrir að gera greinarmun á Reykjavík annarsvegar og öðrum kaupstöðum hinsvegar, sem hafa frest til febrúarloka.

Fjhn. hefir athugað þetta frv., telur það til bóta og leggur til, að það verði samþ. N. bárust frá ríkisskattanefnd aðrar till. til breyt. á tekjuskattsl., sem meiri hl. n. hefir tekið upp á þskj. 650. Eru það smábreyt. á 6. gr. l. um tekju- og eignarskatt frá 1935. Fyrri brtt. er sú, að afföll skuli telja til tekna hjá gjaldendum, ef afborgunartíminn er skemmri en 5 ár, eftir því sem bréfin segja til, en ef afborgunartíminn er 5 ár eða lengri, þá skuli afföllin talin til tekna með jöfnum fjárhæðum í 5 ár.

Ríkisskattan. gefur þær upplýsingar, að óheppilegt sé að skipta afföllunum niður á mörg ár, það hafi ýmsa erfiðleika í för með sér bæði fyrir skattan. og gjaldþegna. Hefir hún því lagt til, að þessi regla verði upp tekin. Meiri hl. fjhn. sá heldur ekkert því til fyrirstöðu og taldi breyt. til bóta.

Hin brtt., sem er gerð við e-lið 7. gr. tekju- og eignarskattsl., nr. 16 frá 1935, er um það, hvernig eigi að reikna mönnum til tekna hagnað af sölu fasteigna, sem menn hafa keypt og selt aftur hærra verði.

Í l. frá 1935 eru sett þau tvö skilyrði fyrir, að þetta teljist til tekna, í fyrra lagi, að húseignarinnar hafi verið aflað í því skyni að selja hana aftur með ágóða, og í öðru lagi, að hún hafi verið í eign skattþegns skemur en 5 ár. Í meðferð tekju- og eignarskattsl. á síðasta Alþingi, 1934, var gerð sú breyt. á orðun þessarar gr., að í staðinn fyrir orðið „eða“, sem var í tekju- og eignarskattsl. frá 1921, hefir verið sett orðið „og“, sem gerir þá efnisbreyt. á þessu ákvæði, að bæði skilyrðin verða að vera fyrir hendi til þess að verðhækkunin geti reiknazt til tekna, en eftir l. frá 1921 þurfti ekki nema annað skilyrðið. Mér skilst samt, að þeir, sem hafa undirbúið tekju- og eignarskattsl., sem nú gilda, hafi ekki ætlazt til, að þessi breyt. væri gerð, heldur megi nánast álykta, að hér sé um prentvillu að ræða, sem ríkisskattan. vill leiðrétta, og hefir meiri hl. fjhn. fallizt 5 það.

Báðar þessar breyt. eru smávægilegar. Fyrri brtt. er til þess að gera framkvæmd l. auðveldari, en síðari breyt. er til að hafa það ákveðið, sem upprunalega gilti í þessu efni, eins og sýnist ekki heldur vera ósanngjarnt.

Meiri hl. n. leggur því til, að þessum 2 nýju gr. verði bætt framan við 1. gr. frv. á þskj. 604. Minni hl. n., hv. 3. þm. Reykv. og hv. þm. G.-K., hefir óbundnar hendur um þessar brtt., sem eru bara brtt. frá ríkisskattan.