15.11.1935
Neðri deild: 74. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (2321)
179. mál, skipun prestakalla
Flm. (Gísli Guðmundsson):
Hér er aðeins um smámál að ræða, sem ég vænti, að geti gengið greiðlega gegnum d. Það er um það að ræða í þessu frv., að flytja til prestssetur á einum stað frá því, sem nú er. Er það vegna þess, að núv. sóknarprestur hefir þegar skipt um bústað og verið alllengi búsettur annarsstaðar heldur en upphaflega. Frv. fylgja á þskj. 336 meðmæli hans með því, að þessi breyt. sé gerð.
Ég ætla ekki að hafa um þetta fleiri orð, en legg til, að frv. verði að lokinni umr. vísað til hv. allshn., og vil ég beina þeim tilmælum til hennar, að hún afgr. það fljótlega.