27.11.1935
Neðri deild: 84. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (2343)
164. mál, skipun barnakennara
Frsm. meiri hl. (Bjarni Bjarnason):
Það tókst nú ekki, því miður, að ná öllum nm. saman á fund til þess að ræða þetta frv., eins og nál. á þskj. 607 ber með sér, Mér er því ekki kunnugt um álit þeirra nm., sem forfallaðir voru. En meiri hl. n. var sammála um að mæla með því, að frv. næði fram að ganga, með lítilli viðbót við 2. gr. þess. Í síðari mgr. 2. gr. er gert ráð fyrir, að skólanefndum og skólastjórum sé skylt að tilkynna fræðslumálastjóra árlega, hverja kennara þeir ætli að hafa næsta skólaár, ef þeir eru ekki settir eða skipaðir af fræðslumálastjórninni. Við þetta bætist svo, eftir brtt. okkar í nál. á þskj. 607, að sama skylda hvíli á þeim, er stofna vilja einkaskóla, og að þeir skuli jafnframt tilkynningunni leggja fram sannanir fyrir rétti hlutaðeigandi kennara til kennslustarfsins.
Ég sé enga ástæðu til að segja meira um þetta frv. að svo komnu máli. Yrði það aðeins til þess að endurtaka það, sem ég sagði um það við 1. umr. Aftur á móti mun ég taka til athugunar það, sem kann að verða að þessu frv. fundið.