29.11.1935
Neðri deild: 86. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (2346)

164. mál, skipun barnakennara

Frsm. (Bjarni Bjarnason):

Ég var ekki viðstaddur, þegar hv. 11. landsk. hóf ræðu sína, og hefi því ekki heyrt allt það, sem hann fann að þessu frv.

Það er vert að athuga það, hvers ber fyrst að gæta, þegar reynt er að fullkomna einhverja framkvæmd, hvaða þáttur hennar sem það er. Og sérstaklega ber þó að athuga þetta í sambandi við starfsmenn í opinberum greinum, og ég hygg, að alveg sérstaklega beri að athuga kröfur og vilja kennarastéttarinnar.

Ég hygg, að allir séu sammála um það, að kennarastéttin í hverju þjóðfélagi eigi að leysa af hendi eitt það vandasamasta starf, sem með þjóðfélaginu gerist. Það eina, sem hægt er að gera í því sambandi, sem virðist vera öruggt, það er að fá tryggingu fyrir því, að kennarar séu vel upplýstir og heilbrigðir. Það eru kennararnir, sem eiga að leggja undirstöðuna að lífi mannanna samhliða heimilunum. Þess vegna er það, að kennarar gera mikið til þess að vera í samvinnu við heimilin og vita um heimilisástæður barna, svo að hægt sé að sameina þessa tvo krafta uppeldisstarfsins, svo að grundvöllurinn að lífi barnanna megi verða sem allra fullkomnastur og svo áreiðanlegur sem tók eru á. Auðvitað taka ýmsir fleiri aðiljar en heimili og kennarar þátt í þessu starfi, en þessir tveir verða þó þýðingarmestir. Það er því illa farið, ef ráðandi menn ámæla kennarastétt okkar fyrir það, að hún vill standa saman um kennslustörfin. Ekki þarf langt að leita til þess að sjá, að kennarastéttin, og þá sérstaklega barnakennarastéttin, var fyrir fáum árum í mikilli niðurlægingu. Við vitum, að þetta stafaði m. a. af því, að störfin voru misskilin, af þeim fyrst og fremst, sem réðu, og kom þetta fram í litlu áliti á stéttinni og lítilli launagreiðslu. Voru mörg dæmi þess, að menn, sem ekki voru nothæfir til venjulegra starfa, voru notaðir til þess að kenna börnum. Það voru jafnvel mörg dæmi þess, að menn, sem voru á sveit, voru látnir kenna börnum, annarsvegar til þess að létta undir með hreppnum með gjöld og einnig til þess að þeir yrðu léttari baggi á sveitinni. Það er augljóst, að slík stétt er ekki lifandi, og það eru ekki nema örfá ár síðan íslenzk barnakennarastétt fór að lyfta sér upp úr þessu volæði. Og það vil ég segja barnakennarastéttinni til maklegs lofs, að hún hefir tekið á þessu máli með mikilli festu og goðum samtökum og framúrskarandi góðum árangri á jafnstuttum tíma. Afleiðingin af þessum hugsunarhætti er sú, að kennarastéttin vill vinna að því tvennu, að mennta stéttina betur en verið hefir og — svo að tryggja stéttinni sjálfri þau kennarastörf, sem henni ber. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er einn þáttur í því, að tryggja kennarastéttinni aðstöðu til kennarastarfa betur en verið hefir. Hv. 11. landsk. kallar þessar vaxandi kröfur stéttarinnar, bæði til sín sjálfrar og þjóðfélagsins, frekjulegt ráðríki og sérgæði. (EE: Þetta er ofsagt). Þetta er a. m. k. nálægt því, sem hann sagði. Nú er stéttabaráttan hörð hér í landi. Hver stétt heldur saman um sína starfsmöguleika og hagsmuni.

Hv. þm. gat um það, að alveg á sama hátt og hér eigi að fara aftan við siðunum, sé það öfugt að setja upp tvo menntaskóla á sama tíma og þrengt er að með sérmenntunina. En þetta er ekki öfugt, því að það er gert til þess að gera sem flestum mönnum kleift að mennta sig, og við ættum ekki að sjá neinum ofsjónum yfir því, þó að fjöldi ungra manna gæti náð stúdentsmenntun, því að það er mjög goð menntun undir lífið og mjög æskilegt, að sem flestir gætu hlotið hana. Þetta er því ekki í neinu ósamræmi við það, þó að takmörkuð hafi verið sérmenntun við þau störf, sem þjóðfélagið þarf. Það er líka mikill misskilningur hjá þessum hv. þm., að menntaskólanám og stúdentspróf þurfi að vera í nokkru sambandi við sérmenntunn.

Þá vil ég einnig benda á það almennt, að þjóðir, sem eru okkur framar í menntun, telja sér fyrst og fremst nauðsyn að hafa kennara sem allra bezt menntaða, og ekki sízt með tilliti til smábarnakennslunnar. Þó að við höfum marga duglega menn meðal barnakennara, stöndum við eigi að síður að baki um kennaramenntun margra annara þjóða, og þó sérstaklega í því, að kenna litlu börnunum. En nú er farið að vinna að því af miklu kappi, að gefa kennaraefnum kost á lærdómi og æfingu, sem gerir þá sérstaklega hæfa til smábarnakennslu, því að það er eitt höfuðatriðið, að litlu börnin séu svo meðhöndluð, að þau geti hugsað með gleði til skólalífsins, sem fram undan er, en kvíði því ekki né álíti það staglsamt og leiðinlegt. Nú geta menn komizt að þessum kennarastöðum, þó að þeir hafi alls ekki nauðsynlega menntun né réttindi. Þetta sjá kennararnir vel. Þess vegna vilja þeir, og ég vil styðja þá í því, fá það ákveðið, hverjir hafi réttindi til að gegna kennarastörfum, og þeir einir geri það.

Vitanlega þarf ekki að fara út í slíkar öfgar, að foreldrar megi ekki kenna þeim börnum, sem þeir geta og vilja. Það er ekki venja að telja það skóla, og það eru ekki skólar í þeirri merkingu þess orðs, sem lög gera ráð fyrir. En frv. á að fyrirbyggja, að þeir, sem hafa ekki kennarapróf, geti tekið að sér kennarastörf í opinberum skólum, og ekki heldur í einkaskólum eða smábarnaskólum. (PO: Þeir geta verið góðir fyrir því). Það var gott, að hv. þm. Borgf. minnti mig á þetta. Hverjum dettur í hug að neita því, að lítt lærðir menn geti verið góðir kennarar? Það geta alstaðar fundizt svo vel gefnir menn og góðum hæfileikum búnir, að þeir standi framar þeim, sem sérmenntun hafa fengið, en þetta eru undantekningar, og þær raska ekki því almenna. Við getum t. d. tekið bónda, sem hefir aldrei komið á skólabekk. Hann getur verið miklu snjallari að lækna en lærður læknir lélegur. Þessi dæmi eru til, en við getum ekki verið svo þröngsýnir og barnalegir að taka stór mál út frá einstökum fáum dæmum; við tölum um heildina og miðum við hana, en ekki einstöku dæmin, og vænti ég, að menn líti ekki svo á, að einstöku dæmin, sem má finna í þessu sambandi, eigi að vera þau ráðandi öfl í eins stóru máli og því, er hér ræðir um.