29.11.1935
Neðri deild: 86. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (2355)
164. mál, skipun barnakennara
Guðbrandur Ísberg [óyfirl.]:
Hv. 2. þm. Árn. og hv. 9. landsk. gáfu í skyn í ræðum sínum, að ég hefði farið með harðyrði í garð kennaranna. En ég minnist þess ekki, að ég hafi sagt neitt í ræðu minni, sem hafi verið ofmælt. Ég sagði, að kröfur kennaranna væru hóflausar, og ég skal standa við þau ummæli hvar sem er. Það kalla ég hóflausar kröfur, þar sem þeir gera kröfur um það, að engum sé heimilt að kenna ungbörnum að stafa, nema hann hafi gengið í gegnum kennaraskólann. Þetta er ef til vill framkvæmanlegt í kaupstöðunum, en í sveitunum er það alls ekki framkvæmanlegt. En samt gera þeir kröfur til þess. Á þessu byggi ég það, að kröfurnar séu hóflausar. Það er fráleitt að gera þær kröfur, að engum sé heimilt að kenna börnum, nema þeim, sem gengið hafa í gegnum kennaraskólann, og stúdentum, sem gengið hafa í gegnum námskeið í kennaraskólanum. Ég hefi ekki neitt á móti þessu námskeiði. En það er fráleitt að gera gagnfræðingum ekki kleift að kenna, en það verður, ef því á að bæta við login frá 1919, að enginn megi kenna smábörnum að stafa nema þeir, sem útskrifaðir eru af kennaraskólanum. En ef svo vill til, að ekki er hægt að fá neina af þessum ágætu mönnum til þess að sækja um stöðu, sem auglýst er laus, þá á skólanefnd samt að gera sérstakar ráðstafanir til þess að reyna að fá kennara, sem hefir próf, sem vildi gera svo lítið úr sér að leggja sig niður við að kenna á þeim stað, sem um er að ræða. Þetta var það, sem ég átti við, þegar ég talaði um hinar hóflausu kröfur kennaranna. Og þeir tveir hv. þm., sem töluðu um, að ég hefði verið með harðyrði í garð kennaranna, hafa ekki reynt að andmæla þessu.
Á önnur atriði minntist ég ekki, svo sem launakjör kennaranna. Ég viðurkenni, að kennarar, einkum í kaupstöðum, búa við óviðunandi launakjör. Og hið sama gildir að nokkru leyti um kennara í sveitum, þó ekki undantekningarlaust.
En launin eru alls ekki léleg af því, að kennarar hafi ekkert látið til sín heyra. Ég hygg, að á hverju þingi, sem ég hefi setið á — en ég skal viðurkenna að þau eru nú ekki mörg —, hafa alltaf komið fram raddir um að bæta laun kennaranna, og hafa kennarar ætið staðið á bak við þær raddir. Ég lái kennurum þetta ekki, en þetta er bara önnur hlið málsins. Og ég fór alls ekki inn á þetta í ræðu minni.
Hv. 2. þm. Árn. sló því sjálfur föstu, að fyrir fáum árum hefði kennarastéttin verið í hinni mestu niðurlægingu. Ég hafði þessi orð upp eftir honum og benti á, að svona hefði kennarastéttin verið að hans dómi, og væri hann þó ekki andvígur kennarastéttinni. Og þessu var svona varið, eftir að kennaraskólinn hafði starfað í nálega hálfan mannsaldur og undirbúið þessa ágætu kennara. Ég skildi þessi orð hv. þm. á þann veg, að kennararnir hefðu ekki verið starfi sínu vaxnir. Ég býst ekki við, að það hafi verið af því, að þeir voru svo illa launaðir, því það þarf ekki að fara saman. Það getur vel farið saman, að kennarar eigi við erfið lífskjör að búa og ræki þó kennslustarfið vel. Ekki sízt, þegar tekið er tillit til þess, að fjöldi þessara manna, þó að þeir hafi lág laun miðað við árslaun, þá er það, sem betur fer, að margir af þessum mönnum geta á þeim tíma, sem við Íslendingar köllum bjargræðistímann, innunnið sér álitlegar upphæðir til viðbótar við sín litlu laun. En sem sagt, hv. frsm. áleit, að kennarastéttin hefði verið í þessari niðurlægingu, þrátt fyrir menntun hennar og mikla viðkomu. Og þetta gaf mér eðlilega ástæðu til að efast um, að þessir menn væru allir svo vel starfi sínu vaxnir, að þeir væru einfærir, svo að útiloka mætti alla aðra, jafnvel frá því að kenna smábörnum að stafa.
Hv. 2. þm. Árn. var eitthvað að víkja því að mér, að mér væri full þörf að læra hitt og annað, og dró hann það út af þeim orðum, sem ég hafði um þetta frv. Ég skal fúslega viðurkenna það, að ég hefi enga von um að komast nokkurntíma svo langt, þó að ég settist á skólabekk aftur og yrði gamall maður, að ekki væri alltaf nóg að læra. Það munu menn, sem eitthvað hafa átt við menntun, viðurkenna. En ég vil í allri vinsemd beina þeirri spurningu til hans fyrir hönd kennarastéttarinnar, að gefnu tilefni og fenginni reynslu, hvort kennarastéttin muni vera viðbúin að lýsa því yfir, að hún þurfi eitthvað að læra. Það er sem sé alkunnugt um kennara, bæði hér á landi og í öðrum löndum, sem hafa gengið menntaferilinn, lesið í 2—3 ár, hvort sem það er á gagnfræðaskóla eða kennaraskóla, einmitt á því stigi finnst mönnum þeir vita einhver lifandi ósköp. Hitt er jafnkunnugt, að þeir, sem komast eitthvað lengra, fá augun opin fyrir því, hve óendanlega lítið það sé, sem þeir kunna, og jafnvel því meira sem þeir reyna að auka við menntun sína, því ljósara verður þeim þetta atriði, en kennararnir eru yfirleitt þekktir að því, að þeim finnst þeir kunna einhver lifandi ósköp, og það er áreiðanlegt, að það stafar að mjög miklu leyti af því, hvað þeir gera háar kröfur til annara manna, sem eiga að einhverju leyti að gegna starfi á þeirra starfssviði.
Þó að ég sé andstæðingur þessa frv., eða öllu heldur andstæðingur þessarar hóflausu kröfustefnu, sem kemur fram í þessu frv., þá hefi ég veitzt meira að þeirri hlið, sem að starfi kennaranna snýr, sem helzt má að finna, og ekki sérstaklega undirstrikað kosti þessara ágætu manna, en það viðurkenni ég auðvitað, að í kennarastéttinni er fjöldi ágætra manna. En ég hefi ekki skoðað það hlutverk mitt í sambandi við þessa andstöðu mína að benda á það, en þó vil ég undirstrika það, eins og ég tók fram í fyrri ræðu minni, að ég tel kennarastéttina þarfa stétt, sem eigi allt gott skilið, svo framarlega sem hún gerir sig ekki seka um þá glópsku, að gera jafnhóflausar kröfur og hér er gert.
Hv. þm. V.- Húnv. var með einhverjar slettur til mín í þá átt, að ég hefði verið með einhver óverðskulduð harðyrði í garð kennaranna. Mér finnst þessi ásökun koma úr hörðustu átt, því að ég tók ekki hefur eftir en að hann hefði gefið í skyn, að fjöldi kennara teldi pólitíska agitation vera hlutverk sitt samhliða kennslunni, eða jafnvel sitt aðalstarf. Ég fór alls ekki svo langt, þó að mér hafi dottið það í hug með starfsemi eins og eins kennara. Hann fór því miklu lengra en ég, og mætti því snúa þessu við og veita honum sjálfum ofanígjöf fyrir slík ummæli, ef þau eru óréttmæt. En ég benti á, alls ekki sem rök, heldur sem aukaatriði, að þegar kennaraskólinn leysti hlutverk sitt ekki betur af hendi en það, að hann virtist sérstaklega hæna að sér lausingjalýð og kommúnista, þá væri von, að sumir yrðu vantrúaðir á þá blessun, sem landið ætti að hafa af öllum þessum mönnum. Og að ég tók þetta svo víðtækt, að ég teygði það til allra þessara manna, stafar af því, að samkv. 4. gr. er gert ráð fyrir því, að þótt enginn kennari sé fáanlegur í fræðsluhérað, þó að farin sé venjuleg leið, þá eigi samt að gera ráðstafanir til að ná í einhvern slíkan mann, ef mögulegt er. Meira að segja virtist ekki heimilt að ganga framhjá manni, sem gæfi sig fram, ef hann hefði kennarapróf, þó að þeim mönnum, sem eiga að njóta kennslu hans fyrir börn sín, væri kunnugt, að hann væri ekki starfi sínu vaxinn. Svo ríkt er að orði kveðið í frv.
Ég vil enda þessi orð mín með því að beina því til hv. 2. þm. Árn. sem flm. frv., í allri vinsemd, að hann athugi það á ný, hvort hann getur ekki við nánari athugun komizt að þeirri niðurstöðu, að hér sé farið of langt, eins og ég og fleiri álíta.