29.11.1935
Neðri deild: 86. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (2359)
164. mál, skipun barnakennara
Pétur Halldórsson:
Mig langar aðeins til þess að gefa skýringar á atriði, sem hv. 2. þm. Árn. virtist misskilja í ræðu minni, en það var hvað ég hefði átt við með hinum teknisku örðugleikum í sambandi við þetta mál. Hina teknisku örðugleika kallaði ég það, sem ráðh. talaði um að væru á framkvæmd þessa máls.
Hv. þm. leizt ekki á, að ég gerði greinarmuná óskum kennaranna, hverrar tegundar þær væru. En þetta er rétt. Kröfur og óskir kennarastéttarinnar eru mjög mismunandi í eðli sínu, enda þótt stéttin sjálf telji þær sama eðlis. Það getur t. d. alls ekki talizt sérkrafa kennarastéttarinnar, þó að sett séu lög um aukna menntun stéttarinnar. Slíkt er krafa þjóðfélagsins.