03.12.1935
Neðri deild: 89. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1431 í B-deild Alþingistíðinda. (2366)
164. mál, skipun barnakennara
Guðbrandur Ísberg:
Það hafa komið fram brtt. frá hæstv. kennslumálaráðh., sem eru mjög til bóta á frv., sérstaklega á 1. gr., en eins og hún er í frv. er hún óhæf En með orðalagi því, sem hæstv. ráðh. leggur til, að sé á greininni, má vel við hana una. Ef brtt. verða samþ., þá má segja, að það mikið sé sniðið af frv., að það, sem eftir er, eru meinlausar breyt., og má einu gilda, hvort þær ganga í gegn eða ekki. Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta. Brtt. mun ég greiða atkv., en ég mun greiða atkv. á móti frv.