04.12.1935
Sameinað þing: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í B-deild Alþingistíðinda. (237)

1. mál, fjárlög 1936

Jón Baldvinsson:

Herra forseti! Enn er hafin hríð að landstj. fyrir störf hennar og framkvæmdir á undanförnum árum. Það hafa talað allmargir af stjórnarandstæðingunum, bæði úr Bændafl. og Sjálfstfl., og mun ég víkja lítilsháttar að einstökum atriðum í ræðum flestra þeirra, sem hafa talað. En ég mun ekki rekja ræður þeirra lið fyrir lið, enda er ekki til þess tími.

Það var hv. 10. landsk., sem hóf eldhúsumr., og í ræðu hans fólst árás á Alþfl., naglaleg árás, sem hann gerir jafnan í hvert skipti, sem hann tekur til máls í áheyrn alþjóðar. En það hefir alltaf verið rekið ofan í hann aftur, en það er með það eins og selshausinn á Fróðá, að það þarf að berja á með járnsleggju til þess að reka ofan í hann aftur. Það þarf ekki að spyrja að því, að hv. þm. V.-Húnv. tók dyggilega undir þetta, og bandamaður þeirra, form. Sjálfstfl., lagði svo blessun sína yfir allt saman. Þessi ósannindi þeirra eru þau, að bera á Alþfl., að hann hafi notað flokkslega aðstöðu sína til þess að hagnast á mjólkurmálinu, þó að hann hafi fórnað meiru fyrir bændur heldur en þessum þremur mönnum, sem ég nefndi, hefði nokkru sinni dottið í hug að fórna, ef þeir hefðu verið í sömu aðstöðu og Alþfl. í þessu máli, því að það er vitanlegt, að það voru stórfelldar kröfur um, að mjólkin lækkaði ennþá meira heldur en varð, og það eru kröfur uppi um það ennþá. En Alþfl. hefir ekki viljað taka undir það að sprengja mjólkursamtökin, en vill bíða eftir og sjá, hvernig úr rætist með skipulagið, sem vitanlega þarf tíma til að festast í framkvæmdinni og finna heppilegar leiðir, eins og alltaf þarf, þegar nýjungar eru teknar upp.

Ég ætla aðeins að víkja að þeirri ásökun, að Alþfl. hafi notað flokkslega aðstöðu sína til þess að hafa fé upp úr mjólkurmálinu. Sannleikurinn er sá, að Alþfl. gerði mjólkursölunefndinni það mögulegt að koma þessu skipulagi á. Sjálfstfl. hér í bænum var svo fjandsamlegur þessum málum, að sjálfstæðismennirnir létu konur sínar mynda með sér félagsskap til þess að neita að kaupa mjólkina, og höfðu þar svo mikið af mjólkursamsölunni, að sjálfsagt nemur tugum ef ekki hundruðum þús. króna.

Þannig var um að litast, þegar skipulagningin var hafin, og þá var það, að Alþýðubrauðgerðin, sem er fyrirtæki alþýðufélaganna hér í bænum og hefir það að markmiði að reyna að selja ódýrt neyzluvörur, eins og t. d. brauðvörur, tók að sér að selja mjólk og mjólkurafurðir, þrátt fyrir það, að hún yrði að lækka talsvert sölulaun frá því, sem áður hafði verið, aðeins til þess að koma þessari skipulagningu á. Ég veit, að Alþýðubrauðgerðin er svo stórt fyrirtæki, að hún hefði sennilega getað haft hærri prósentur af mjólkursölunni, ef hún hefði verið skipulagslaus. En þá hefði ekki heldur verið stefnt að þeim möguleika að reyna að lækka mjólkurverðið fyrir bæjarbúa, sem litið hefir verið gert að ennþá, en ætti að stefna að með bættu skipulagi, enda gætu þá bændur líka fengið hærra verð. Það er með því að lækka kostnaðinn milli fjóss og eldhúss — milli framleiðenda og neytenda. Þegar þetta mál var tekið upp, vildu verzlanir hér í bænum, sem sjálfstæðismenn gátu haft áhrif á, ekki verzla með mjólkina. Þeir ætluðu að stöðva skipulagninguna með því að neita að selja mjólkina. Bakarameistarafélögin vildu ekkert tilboð gera, en þegar Alþýðubrauðgerðin var búin að gera tilboð, buðust þeir til þess að hafa á hendi söluna fyrir sama verð og Alþýðubrauðgerðin. Og þegar var verið að ræða þetta mál, þá ætla ég að lofa ykkur að heyra úr fundargerð mjólkursölunefndar, hvernig ástandið var hjá þessum bakarameisturum í garð mjólkursamsölunnar. Mjólkursölunefndin hafði kallað til sín bakarasveina og talað við þá, og um það segir svo í fundargerðinnni, með leyfi hæstv. forseta:

„Ennfremur svöruðu þeir játandi fyrirspurn Guðmundar Oddssonar, hvort það væri rétt, að Bakarameistarafélagið hafi farið fram á það við Bakarasveinafélagið, að það neitaði að vinna við brauðframleiðslu til búða mjólkursamsölunnar“.

Þeir ætluðu að taka þátt í verkfallinu til þess að hindra, að mjólkursamsalan gæti komið mjólkinni inn í búðirnar. Í öðru lagi, þegar þeir komust ekki upp með þetta, buðu þeir með bréfi, dags. 20. des., sama brauðverð og sömu sölulaun og Alþýðubrauðgerðin býður eða mun bjóða“, eftir að þeir voru búnir að neita að gera tilboð. Seinna hefir það svo skeð, að sumir þessara manna, sem fengu mjólk frá samsölunni — því að það er ekki satt, að það sé einungis Alþýðubrauðgerðin, sem hefir þessa mjólkursölu. ég veit ekki nema um þrjár búðir frá Alþýðubrauðgerðinni, sem hafa mjólk — þessir sömu bakarar fóru fram á, að sölulaunin yrðu hækkuð. Ég hefi hér í höndunum bréf, þar sem einn mjólkursalinn tilkynnir svolátandi til mjólkursölunefndar, með leyfi hæstv. forseta:

„Vér leyfum oss hér með að tilkynna yður, að vér sjáum oss ekki fært að hafa á hendi framvegis útsölu á mjólk frá mjólkursamsölunni gegn sömu sölulaunum og verið hafa“.

Þetta er dagsett 14. sept. 1935. Þá kemur bréf frá öðrum, sem selt hefir mjólk undanfarið. Bréfið er dagsett 8. janúar 1935; þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Viljum vér fara þess á leit, að sölulaun verði 3 aurar á lítra og 15% af rjóma og skyri“.

Það er þetta tilboð, sem er verið að flagga með, þegar sagt er, að mjólkursölunefndin hafi hafnað því, til þess að hagna Alþfl. En hvað felst í þessu boði? Það felst í því, að mjólkursamsalan, sem sjálf rekur flestar búðirnar léti þær af hendi — búðir, sem valdar eru með það fyrir augum, að þær séu í þeim hverfum bæjarins, þar sem mestar eru líkur til, að seljist mest af mjólkurvörum. Samsölustj. hafði náð tökum á góðum búðum víðsvegar um bæinn og þess vegna betur sett um sölu mjólkurinnar heldur en ef hún afhenti hana í hendur bakarameisturunum, því að þá yrði hún að leggja niður allar sínar búðir. Hvar væri hún þá stödd, ef þeir kæmu nokkrum dögum seinna og segðust vilja fá tveggja aura hækkun á hvern lítra? Ef samsalan væri búin að segja upp sínum búðum, yrði hún að byrja á nýjan leik og leigja sér búðir og áhöld, og gæti þá kannske farið svo, að hún næði ekki í beztu búðirnar. Það væri því heimskulegt af samsölunni að sleppa úr höndum sér sölumöguleikunum, sem í því felast að hafa beztu búðirnar í þeim hverfum bæjarins, sem mest selst. Það var þetta vopn, sem átti að losa samsöluna við. En þessu tilboði var ekki hafnað vegna Alþýðubrauðgerðarinnar eða Alþfl., heldur vegna bænda, til þess að þeir hefðu sem bezta aðstöðu á markaðinum og væru ekki háðir bakarameisturunum og konum sjálfstæðismanna hér í bænum.

Það skildist á hv. þm. V.-Húnv., að Alþfl. græddi ekki neitt lítið á þessu, þegar þess væri gætt, að Alþýðubrauðgerðin hefði áður haft miklu hærri sölulaun heldur en nú. En þá eru einmitt líkur til þess, Alþýðubrauðgerðin frekar tapi á þessu heldur en hún græði, þó að hún geri þetta fyrir skipulagið. Það lá í orðum hv. þm., að Alþfl. væri að reisa stórhýsi hér í Reykjavík, sem kostaði um 1/2 millj. króna. Það sest á þessari tölu, á hvaða hundavaði hv. þm. fer í sinni röksemdafærslu. Hann er ekki sérlega nákvæmur — honum er sama hvort hann fer með satt eða ósatt. Þetta „stórhýsi“, sem verið er að byggja hér í bænum fyrir alþýðufélögin, kostar ekki 1/2 millj. króna. Það er gert ráð fyrir, að húsið muni kosta um 250 þús. kr. Ég má segja, að það fengist tilboð um byggingu á því fyrir svipaða upphæð, og það sest þá á því, að hv. þm. V.-Húnv. hefir bætt helming þar við. Þá hafa þeir allir, hv. þm. V.-Húnv., þm. G.-K. og 10. landsk., verið að tala um bitlinga, nefndir, sem stjórnarflokkarnir hefðu skipað. En sannleikurinn er sá, að þessir flokkar vildu gjarnan koma einhverju að í því starfi, sem nú er unnið í þarfir þess opinbera, ekki vegna þess, að þeim hafi dottið í hug að brjóta upp á því, þegar þeir höfðu aðstöðu til þess, heldur af því að þeir sjá ofsjónir yfir því, að ríkisstj. og landið í heild hefir gagn af því starfi, sem þessar n., sem ríkisstj. hefir skipað, inna af hendi.

Ég ætla þá aðeins að minnast á fiskimálanefnd, sem sjálfstæðismenn mega ekki heyra nefnda. Þessi n. hefir unnið að margvíslegum umbótum á sölu sjávarafurða. Henni hefir orðið það ágengt t. d., að hér var framleitt ekki svo lítið af fiskitegund, sem lítil not hafa orðið að hér á landi áður, það er karfinn, sem settur var í ríkisverksmiðjurnar, og lítur út fyrir, að allveruleg atvinnugrein geti af þessu skapazt. Marga hluti hefir fiskimálanefnd með höndum til þess að reyna nýbreytni á þessum erfiðu tímum með að selja afurðir okkar til annara þjóða. Hún hefir t. d. beitt sér fyrir herðingu á fiski. Þar hefir fiskimálanefnd haft miklar framkvæmdir, og það er undarlegt, að þessir menn, sem hafa þótzt sjálfkjörin forsjón um allt, sem lýtur að framleiðslu sjávarafurða, eins og form. Sjálfstfl., að þeir skuli eingöngu í sinni framleiðslu hafa bundið sig við saltfisk og ekkert annað, þó að markaðurinn hafi dregizt svo saman, að engar horfur eru á, að við getum selt eins mikið og við getum framleitt. Þó að landsmenn hafi um margar aldir haft harðfisk sem sína aðalútflutningsvöru, hefir þeim ekki dottið í hug að reyna það. Það sama eða hliðstætt fiskimálan. hafa kjötverðlagsn. og mjólkursölun. gert, og að svo miklu leyti, sem Bændafl. hefir nokkurntíma dottið í hug að koma skipulagi á þessi mál, hefir það alltaf verið í sambandi við að setja á stofn nefnd til þess að hafa á hendi framkvæmd þessara mála. Ég fæ ekki heldur séð, að það geti á annan hátt verið hægt.

Hv. þm. G.-K., sem flutti hér í gærkvöldi langa ádeiluræðu á ríkisstj. og þá flokka, sem að henni standa, kom víða við, en eitt sagði hann, sem mér finnst ástæða til að svara og dvelja fáeinar mínútur við. Það var þegar hann var að brýna bændur landsins, hvetja bændurna til þess að gera uppreisn. Það er raunar ekki í fyrsta sinn, sem hv. þm. G.-K. hefir hótað uppreisn eða talað þannig, að ráða mætti af orðum hans, að hann byggist við uppreisn gegn núv. ríkisstj. Hann talaði til bændanna og sagði:

„Ef þið ætlið að halda uppi rauðu flokkunum og láta þá ræna ykkur, þá mun Sjálfstfl. hætta að krefjast umbóta fyrir ykkur.“

Ef bændurnir gerðu ekki uppreisn, þ. e. a. s. kæmu og héldu fund, rækju stj. frá völdum, tækju í sínar hendur framkvæmd ýmsra mála, þá ætlaði Sjálfstfl. að hætta að berjast fyrir umbótum handa þeim. Þetta er alveg nasistisk till. hjá hv. form. Sjálfstfl. En þó hann sé að brýna bændur til þess að fara þessa herferð, ætlar hann samt sjálfur að standa utan við og alls ekki að vera í orustunni. Það er líkt eins og þegar herforingjar fólu sig inni í herfylkingunni. Það er kveðið í gömlum rímum um herforingja, sem var mikill í máli: „felast inn í fylking skal“. Eins á að fara með form. Sjálfstfl. Hv. þm. G.-K. ætti að felast inni í fylkingu bændanna og gera árás á stj. og taka í sínar hendur afurðasölumálin. Það, sem hv. þm. G.-K. hafði fram að bera viðvíkjandi því, hvað gera ætti vegna þessara fjárhagsvandræða, sem eru, gæti engum blandazt hugur um, hver ætlun hans væri, því að hann tæpti á orðunum. Það er enginn vafi á því, að þeir eru sama sinnis hv. þm. V.-Húnv. og hv. þm. G.-K., og það, sem þeir meina með því að tæpa á till. viðvíkjandi meðferð fjárl., er það, að þeir hafa rýting uppi í erminni. Það sest aðeins á oddinn, en þeir eru viðbúnir að taka hann fram til þess að skera niður á fjárl. Það, sem lagt er til framkvæmda og á að vera til þess að halda uppi almenningi í landinu á þessum erfiðu tímum. Þeir eru viðbúnir að skera niður atvinnuleysisstyrkinn og styrk til nýbýla, þeir eru viðbúnir að murka niður framlag til vegalagninga í landinu, sem veitir mikla atvinnu á þessum erfiðu tímum. Þetta eru þeirra ráð, og það er auðséð, hverju þeir ætla að svara almenningi, ef þeir væru einráðir, þegar almenningur kæmi að biðja um atvinnu. Þeir mundu svara með skurðarhnífnum, hvort sem hann væri í höndum ríkislögreglu eða ekki.

Hv. 3. þm. Reykv. talaði hér næstur á undan mér. Hann gerði að umtalsefni þær skattaálagningar, sem nú eru ráðgerðar af hálfu ríkisstj. og þeirra flokka, sem að henni standa. Hv. 3. þm. Reykv. og sjálfstæðismenn yfirleitt eru alltaf að gera veður út af því, að ég sagði um daginn, að við værum í umsátursástandi. Þeir viðurkenna þá ekki það, að okkur er meinað að selja vörur til Englands; t. d. er togurunum ekki leyft að selja þangað nema nokkurn hluta af sinni veiði. Það er tiltekið magn, sem við megum selja til Spánar, lítið til Ítalíu, takmarkað, sem við megum selja til Noregs af saltkjöti. Þó að kaupendurnir séu til, megum við ekki flytja vöruna þangað. Ég held, að það sé ekki ofmælt að segja, að við séum að þessu leyti í umsátursástandi.

Þá gerði hv. þm. að umtalsefni viðskiptagjaldið, sem á að leggja á, og minntist sérstaklega á kaffitollinn. mér þykir vænt um að fá tækifæri til þess að tala um þetta gjald við hv. sjálfstæðismenn; þeir gera svo mikið veður út af því.

Þó að Alþfl. hafi þurft að stíga þetta hliðarspor nú og leggja gjald á innfluttar vörur, þá ber það ekki vitni þess, að hann hafi misst sjónar á því marki að létta af tollunum. En eins og nú standa sakir telur hann óhjákvæmilegt að koma í framkvæmd alþýðutryggingunum og nýbýlalöggjöfinni, þó að til þess þurfi að hækka lítilsháttar toll á kaffi og sykri.

En á síðasta þingi var létt af gengisviðauka á kaffi og sykri. En hvað var hann hár? Hann var 15 aurar á hvert kg. af kaffi en 4 aurar á hvert kg. af sykri. Sá skattur, sem nú er lagður á kaffi, nemur ekki nema 4 aurum á kg., svo að það lækkar raunverulega um 11 aura, og gjaldið af sykri er tæpur 1 eyrir á kg. Hefir því sykurinn lækkað raunverulega um 3 aura. Þess hefir verið getið til, að meðalfjölskylda notaði um 200 kg. af sykri yfir árið. Yrði því þessi gjaldaaukning, sem lenti á 5 manna fjölskyldu, um 2 kr. á ári, eða nánar tiltekið kr. 1.75.

Þegar gengið er á móti slíkri réttindalöggjöf sem alþýðutryggingarnar eru, efa ég það ekki, að allur þorri Alþýðuflokksmanna teldi okkur hafa gert rangt, ef við hefðum hafnað því að koma þeim á, þó að það kostaði þennan litla toll.

Hv. 3. þm. Reykv. minntist á í sambandi við tollálagninguna, tekjuöflunarmöguleika bæjarsjóða. Hann hélt því fram, að þessi álagning mundi minnka möguleika bæjanna til þess að afla sér fjár. Það er aðgætandi, að helminginn af þeirri hækkun á tekjuskattinum, sem frv. gerir ráð fyrir, fá bæirnir, og ef hv. þm. hefir lesið það, sem nú er fram komið, hlýtur hann að sjá, að stj. hefir einnig hug á að reyna að létta undir með bæjarfélögunum. Það eru till. frammi um það, að koma fyrir lausum skuldum bæjarfélaganna, sem nema um 11/2 millj. kr., og breyta þeim í vaxtalág lán. Þetta mundi verða til þess, að bæjarfélögin ættu miklu auðveldara með að afla sér tekna og bjarga þeim út úr því öngþveiti, sem mörg þeirra eru í. Það er því síður en svo, að níðzt sé á bæjarfélögunum.

Hv. þm. var svo broslegur í lok ræðu sinnar að tala um, hvernig fjárhagur landsins væri nú, ef Sjálfstfl. hefði stjórnað, og hann sagði: „Dettur nokkrum í hug, að fjárhagur ríkisins væri svona núna, ef Sjálfstfl. hefði alltaf stjórnað?“ Það vill nú svo vel til, að Sjálfstfl. fékk að grípa um stýrið hjá Framsfl. nokkurn tíma, til þess að sýna, hvernig honum tækist að bjarga við fjárhagnum. Ég veit ekki betur en að þeir hafi skilið eftir ekki óverulegan tekjuhalla, og auk þess miklar skuldir, svo maður segi nú ekki meira. En þeir komu á ríkislögreglunni, sem kostaði um 400 þús. kr., sem var fyrsta verk núv. stj. að létta af.

Ég held, að ég þurfi ekki að fara fleiri orðum um þennan hv. þm., enda er tími minn á þrotum.

En ég vil að lokum lýsa sambandi þeirra flokka, sem hafa sérstaklega haldið uppi árásum á ríkisstj. Það eru að nafninu til tveir flokkar, sem hér deila á ríkisstj. og flokka þá, er að henni standa.

Það er því í ekki að undra, þó nokkuð kveði við sama tón, þegar þeir tala um ríkisstj. og verk hennar.

Það er rétt að gera grein fyrir, hvernig á því stendur, að þessir flokkar eru svona samrýmdir. Það stendur þannig á því, að áður en Jón í Stóradal fór úr Framsfl. og sórst í fóstbræðralag við sjálfstæðismenn, var hann með þeim í hverju máli, sem þeim þótti mikils um vert, og sveik þá sinn eigin flokk. Og Sjálfstfl. hjálpaði Jóni aftur til þess að ganga frá kosningalögunum þannig, að ákvæði stjskr. fengu ekki notið sín til fulls, þó hann þyrfti til þess að bregðast gefnum loforðum. Samvinnan var því þannig, að Jón brást sínum flokki til þess að þóknast sjálfstæðismönnum, og sjálfstæðismenn brugðust sínum loforðum til þess að þóknast Jóni. Það má því með sanni segja, að ill var þeirra fyrsta ganga, og líklegt er, að framhaldið verði eftir því.

Þegar Bændafl. var stofnaður, voru ekki allir í þeim flokki jafnþekkir sjálfstæðismönnum eins og Jón í Stóradal, hv. 10. landsk. og hv. þm. V.-Húnv. Framarlega í Bændafl. voru tveir frjálslyndir menn, sem aldrei samþ. samvinnu við íhaldið með þessum mönnum, og þeir fengu heldur engan stuðning frá Sjálfstfl. í kosningunum 1934. Annar þessara mann er hv. 2. landsk., og er því ekki að furða, þó það syngi í tálknunum á hv. þm. G.-K. um hann, þegar þess er minnzt, hvað óþarfur þessi hv. þm. hefir jafnan verið íhaldinu í landinu. Hann hefir aldrei fengizt til þess að veita sjálfstæðismönnunum, sem nú kalla á stuðning, og því er gremja þeirra skiljanleg. Hinsvegar er það alkunnugt, að sjálfstæðismenn í V.-Húnavatnssýslu studdu að kosningu hv. þm. V.-Húnv. í síðustu kosningum, eftir skipun frá æðri stöðum í flokknum, þrátt fyrir það, þó þeir hefðu þar sinn eiginn frambjóðanda. Og ósýnt þykir, hvor meiri ítök á í Sjálfstfl., hv. þm. A.-Húnv. (JónP) eða, keppinautur hans í kosningunum, Jón í Stóradal, eða hvor þeirra er þar elskaður meira. Þegar þessir tveir frjálslyndu menn í Bændafl. eru ekki lengur til fyrirstöðu beinni samvinnu milli flokkanna, má ganga út frá því sem vísu, að þeir gangi út og inn hver hjá öðrum eins og þar væri einn flokkur og eitt heimili. Við næstu kosningar má telja víst, að samvinna takist með þeim um öll framboð og slíkt. Eins og upphafið var hjá þessum flokkum ætlar því endirinn að verða, og þætti mér ekki ólíklegt, að þar um mætti syngja eftir næstu kosningar hið alkunna vers úr passíusálmunum: Sjá hér hve illan enda o. s. f rv.