04.12.1935
Sameinað þing: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

1. mál, fjárlög 1936

Þorsteinn Briem óyfirl.:

Ég skal ekki verða langorður um þessar síðustu getsakir hv. 4. landsk. Hann veit það vel, að Bændafl. er algerlega sjálfstæður flokkur og alveg óháður öllum öðrum flokkum í landinu, og hefir þar af leiðandi greitt atkv. ýmist með sjálfstæðismönnum framsóknarmönnum eða jafnvel jafnaðarmönnum, hafi þeir dottið ofan á að flytja gott mál. T. d. bjargaði hann máli, sem ég álít gott mál, út úr Ed. nýlega, sem laut að því að tryggja betur líf sjómannanna. Ég vil því vísa algerlega heim til föðurhúsanna þeim rógi og ósannindum, sem hv. 4. landsk. leyfir sér að viðhafa hér í áheyrn alþjóðar. Bændafl. stendur fast við þá yfirlýsingu, sem form. hans, hinn ágæti maður, sem nú er látinn, gaf í blaðinu Framsókn, að hann mundi haga fylgi sínu við hvern flokk eftir því, hvernig afstöðu hann tæki til hagsmunamála landbúnaðarins og hvernig bezt væri hægt að sjá þeim málum borgið. En það á hinsvegar vel við, að flokkur sósíalista tali um fylgitungl, því hann sjálfur er stóra sólin, sem Framsfl. snýst í kringum, ekki aðeins á Alþingi, heldur og í ríkisstj., þar er ráðh. sósíalista stóra sólin, sem hefir tvo fylgitungl um sig. Þykir mönnum stundum þessi tungl heldur lítil og aumingjaleg, og stundum sest ekki nema á bláhornið á þeim útundan móðurhnettinum. Skal ég svo ekki eyða fleiri orðum að þessum rógburði hv. 4. landsk.

Ég ætla þá að víkja að hv. landbrh. Hann var að reyna að svara sumu af því, sem ég hafði sagt, en skildi mestan hlutann eftir, því vitanlega gat hann ekki svarað máli mínu neinu. Hafði ég þó vænzt þess, að hann kæmi með einhver andmæli, sem gagn væri í, því ég sagði honum áður en ég hélt mína ræðu, um hvaða mál ég ætlaði að tala, svo hann gæti verið undir það búinn. Var það meira heldur en ég átti að mæta, þegar ég sat í hans sæti; þá fékk ég aldrei að vita, hvað átti að ráðast á mig fyrir, og það hafa ráðherrar yfirleitt ekki fengið að vita á seinni árum.

Eftir allan undirbúninginn fann hæstv. ráðh. eitt gullkorn. Þegar hann var búinn að blaða hóflega í þingtíðindunum, fann hann ummæli eftir mér um það, að ég gladdist yfir því, þegar kjötverðið á enska markaðinum hækkaði upp í 72 aura á árinu 1933, úr 45 eða 50 aurum árið áður. Þetta þótti honum svo góð rúsína fyrir sig, að ég hafði glaðzt yfir því, að kjötið hækkaði um þriðjung í Englandi, að hann gleymdi öllu öðru, sem máli skipti í þessu sambandi. Hver hafði flutt till. um að heimila stj. að greiða verðuppbót á kjötið? Það var Jón í Stóradal. Og hæstv. ráðh. gleymdi líka, að þegar ég spurðist fyrir um það undir þessum umr., hvað landbn. teldi nauðsynlegt að hafa kjötuppbótina háa, þá reis upp form. landbn. þáv., sem er framsóknarmaður, og lýsti yfir, að hann bæri bezta traust til mín í þessu efni. Enda hafði ég, eins og ég skýrði frá í útvarpsumr. í fyrra, rækilega undirbúið skýrslusöfnun viðvíkjandi verðuppbótinni, svo ekki var annað eftir en reikna upphæðina út, þegar skýrslurnar komu.

Hæstv. ráðh. játaði eiginlega flest af því, sem ég hafði sagt í ræðu minni, því, sem hann reyndi annars nokkurn hlut að svara. Hann játaði það, að Sláturfélag Suðurlands hefði ekki fengið neina hækkun á kjötverðinu fyrir geymslukostnaði fram í miðjan nóv., og að fram í miðjan jan. fékk það aðeins 8 aura hækkun á kg. á móti 20 aura kostnaði við geymsluna, og varð þannig að selja hvert kg. með 12 aura tapi. Hann játaði líka, að Sláturfélagið hefði á þennan hátt orðið fyrir 5 aura tapi á kg. frá miðjum jan. og langt fram á sumar. Hann játaði, að Sláturfélagið hefði orðið að taka alla gæruverðuppbótina frá árinu áður, sem nam 41 þús. kr., upp í þetta tap og einnig mestan hluta af rekstrarágóða ársins, eða 66 þús. kr. af 83 þús. kr. Það, sem hann svaraði því er snertir framkvæmd kjötlaganna, var þannig að mestu leyti staðfesting á því, sem ég hafði sagt. En hann var að reyna að gera mig tortryggilegan með því að halda fram, að ég væri á móti kjötlögunum, af því ég hefi átalið ýmislegt viðvíkjandi framkvæmd þeirra. Hvernig getur hæstv. ráðh. haldið slíku fram, þegar það var einmitt ég, sem lét undirbúa þessi lög, og þegar ég greiddi atkv. með þeim við allar umr. og reyndi að fá þeim komið í betra horf, þ. e. a. s., fá lagfært aftur það, sem hæstv. ráðh. hafði reynt að spilla þeim? Hinsvegar get ég ekkert fullyrt um, hvort ágóði bændanna af þessum lögum er eins mikill eins og núv. form. kjötverðlagsnefndar vill vera láta. Hæstv. ráðh. kom með skýrslu frá honum um 600 þús. kr. ágóða, en þar er nú víst eitthvað af ríkissjóðsuppbótinni talið með og margt fleira. Og ég verð að segja það, þó sá góði formaður eigi í hlut, að við höfum nú rekið okkur á það, að tölurnar hans Páls Zóphoníassonar eru ekki alltaf sem ábyggilegastar. Það kom t. d. fyrir í Nd. fyrir ekki mörgum dögum, að hann varð að gleypa ofan í sig tölu úr sinni eigin skýrslu, þar sem munaði bara um 150 tonn, og þarf mikla kokvídd til að geta gleypt slíkan kjötbita í einu lagi.

Nei, hæstv. ráðh. þarf ekki að reyna að telja mönnum trú um, að þeir, sem finna að slælegri framkvæmd afurðasölulaganna, séu á móti þeim lögum. Einmitt af því þeir eru með lögunum, af því þeim er annt um þau, af því þeir hafa átt þátt í að undirbúa þau, þá er þeim annt um, að þau séu vel og skynsamlega framkvæmd.

Hæstv. ráðh. var að skopast að því, að búnaðarþingið hefði kosið nefnd úr öllum þremur flokkunum — Bændafl. er þar þriðji flokkurinn — til þess að rannsaka framleiðsluverð landbúnaðarframleiðslunnar, eins og það var í landinu. Hann skopaðist að þeim mönnum, sem í þessa n. voru kosnir, þó einn þeirra væri jafnmætur framsóknarmaður eins og Jón í Deildartungu, sagði, að þeir hefðu ekki haft nema fáar skýrslur eða búreikninga að byggja á o. s. frv. Ég get frætt hæstv. ráðh. um það, að þegar gerðar eru skýrslur í Danmörku um afkomu landbúnaðarins þar, þá eru ekki teknir reikningar eins margra búa til að vinna úr eins og þessi n. hafði. Og Búnaðarfélagið skoraði á ríkisstj. að sjá um, að hægt væri að taka fullt tillit til þess, sem fram kæmi frá þessari n. um framleiðsluverð, en auðvitað daufheyrðist hæstv. landbrh. við því, eins og öðrum till., sem fram koma til umbóta landbúnaðinum, a. m. k. þeim, sem koma frá öðrum.

Þá skal ég víkja að mjólkurlögunum. Ég verð að segja frá því eins og það er, að það hafa verið stöðugar hringingar til mín í dag frá ýmsum bændum hér í nágrenninu, og jafnvel í mikilli fjarlægð, í sambandi við það, sem ég sagði um mjólkurmálið í gærkveldi. Og það eina, sem þeir finna að ræðu minni, er það, að ég hafi ekki tekið nógu fullan munninn. Þeir, sem í meiri fjarlægð búa, tala um það, hvort ekki muni vera óhætt að koma til hæstv. landbrh. og rukka hann um þessa 7 aura af lítra, sem hann telur, að samsalan hafi grætt á lækkuðum sölu- og dreifingarkostnaði í Reykjavík. Þetta nemur töluverðri upphæð, og er gott, ef hæstv. ráðh. vill leggja þá upphæð á borðið; 7 aurar af hverjum lítra af 5 til 6 millj. lítra sölu yfir árið. Af því árið er ekki alveg liðið, getum við reiknað með 5 millj. lítrum. Þetta eru þá hvorki meira né minna en 350 þús. kr., sem hæstv. ráðh. situr með eða þessir menn heldu a. m. k., að ekki þyrfti annað en rukka hann um það, En hann gaf nú reyndar nokkrar pósitívar upplýsingar í sömu andránni. Hann sagði sem sé, að það væru ekki til nema 12 þús. kr. af þessari upphæð. Ja, ég get vel trúað, að þetta sé satt. En það er nokkuð lítið, hafi ekki græðzt nema 12 þús. á tveimur mánuðum, eins og hann sagði, á sölu-, dreifingar- og umsetningarkostnaði mjólkurinnar. Því vitanlega eru þessir tveir mánuðir. okt. og nóv., beztu mánuðir ársins fyrir mjólkursöluna, því þá er hægt að selja mestan hluta mjólkurinnar sem nýmjólk. Því hefir að undanförnu verið safnað í sjóð þessa tvo mánuði til þess að mæta tapi seinni vetrarmánaðanna, þegar mjólkin vex svo, að mikið af henni verður vinnslumjólk. Upp í þetta tap og upp í þær 330 þús. kr., sem ættu að vera til, ef rétt væri það, sem hæstv. ráðh. talaði um 7 aura sparnaðinn, hefir hann aðeins 12 þús. kr.

Þetta kom nú frá þeim bændum, sem fjær búa. En þeir, sem nær búa, símuðu til mín og sögðu, að ég hefði ekki sagt alveg rétt frá, þegar ég sagði, að sumir þeirra hefðu tapað allt að 7—11 aurum í lítra. Rétt væri að segja 9 og upp í 12 aura á lítra, og einstaka maður jafnvel upp í 14 aura. Ég skal ekki dæma um þetta, en ég tók lægri tölurnar til þess að vera viss. Það, sem þessum mönnum svíður mest, er það, að enginn maður hefir gott af þessu tapi, nema þá bitlingamennirnir, sem hann taka hjá samsölunni.

Það er náttúrlega lítið til upp í þennan í 7 aura gróða hæstv. ráðh., og það er bezt ég segi þá frá, hvernig á því stendur. Það liggur nefnilega í því, að hæstv. ráðh. miðar við allt annað ár heldur en árið þegar samsalan tók til starfa. Samsalan tók til starfa, eins og menn vita, í jan. 1935, en hæstv. ráðh. miðar við einhverja skýrslu, sem fram kom í blaðagrein á árinu 1933. Eftir þann tíma breyttist meðferð þessara mála allmikið, einmitt á árinu 1934, þannig, að þó kostnaður sumra mjólkurbúanna hafi komizt allt upp í 16 aura 1933, þá komst hann í nóv. 1934 niður í það, sem hér segir: Gerilsneyðingargjald 5 aurar á lítra, skrifstofukostnaður og sölukostnaður búðanna 51/3 eyris á lítra. En í dag er þessi kostnaður þannig, að gerilsneyðingargjaldið hefir lækkað um 2 aura. eða niður í 3 aura, en sölu-, dreifingar- og skrifstofukostnaður hefir hækkað úr 51/3 eyris upp í 6 aura. Nokkuð af því, sem sparast á gerilsneyðingunni, fer því til að mæta þeim 2/3 úr eyri á lítra, sem sölu-, dreifingar- og skrifstofukostnaðurinn hefir aukizt hjá samsölunni frá því, sem áður var. Þetta er þá sannleikurinn í málinu, að í staðinn fyrir í aura lækkun á dreifingarkostnaðinum er hér að ræða um 2/3 eyris hækkun. Hvort samsalan treystir sér á sínum tíma til þess að endurgreiða eitthvað af þessari hækkun, það er ekki ennþá komið í ljós.

Hæstv. ráðh. var að tala um það, að Mjólkurfél. Rvíkur hefði tekið hærra gerilsneyðingargjald heldur en það þurfti, þó það lækkaði úr 5 aurum niður í 3. Með þessu játar hann bara, að mjólkursölunefnd hafi ekki haft vit á að semja um þetta eða taka tilboðinu um að mjólkin væri gerilsneydd fyrir kostnaðarverð undir eftirliti. Hann viðurkennir þannig óhæfni mjólkursölunefndar til að fjalla um þessi mál.

Þá minntist hann á bakaratilboðið, að því væri ekki treystandi eða lítandi á það á neinn hátt, af því bakararnir væru svo vond stétt. ég veit ekki, hvort hæstv. ráðh. heldur, að hann vinni á því að taka þannig einstakar stéttir og níða þær niður, og læt ég hann um það. Það er einmitt upplýst, að þeir fáu bakarar, sem nú fá mjólk til útsölu, selja hana fyrir 2 aura á lítra, og hv. 4. landsk. talaði um, að einhverjir vildu fá það gjald hækkað, væri þá ekki gott að komast að samningum um, að engin hækkun yrði og öll mjólkin væri seld fyrir þetta gjald, úr því mjólkursölunefndin getur ekki sjálf selt hana með svo litlum tilkostnaði, heldur verður að borga 6 aura fyrir það, sem áður kostaði 51/3?

Tilgangur bakaranna með þessu tilboði var einmitt sá, að geta um leið skipulagt brauðasöluna, og mun ekkert vera því til fyrirstöðu, að náðst geti tryggir samningar til lengri tíma og með löngum uppsagnarfresti. Hv. 4. landsk. var að tala um að þessir bakarar hefðu ekki viljað gera tilboð í fyrra. Það liggur þannig í því, að þeir hættu við að koma með tilboð vegna þess, að þau fáu tilboð, er fram komu, voru opnuð jafnóðum, en fengust ekki opnuð öll í einu að tilboðsmönnunum viðstöddum, eins og venja er til með öll tilboð. Hvers vegna voru þau opnuð jafnóðum? Það lítur út fyrir, að einhver hafi þurft að fá að vita, hvernig lægsta tilboðið var, til þess að geta gengið í það. Er bezt, að hv. 4. landsk. geti sér þess til, hvaða aðili það hefir verið.

Hæstv. ráðh. og hv. 9. landsk. voru að tala um mjólkurlækkunina í fyrra haust, og hv. J. landsk. taldi þetta vera eitt af því góða, sem hefði skeð, að bændur verða þarna fyrir tekjumissi, er nemur 400 kr. á meðalframleiðanda, með 50 lítra mjólkursölu á dag. Hæstv. landbrh. talaði um það sem afsökun fyrir sínu framferði í þessu efni, að einstaklingar í bænum hefðu verið farnir að bjóða mjólk fyrir lægra verð heldur en mjólkurbúin í Mjólkurbandalagi Suðurlands. En það var einmitt fyrsti tilgangurinn með setningu mjólkurlaganna að koma í veg fyrir, að mjólkin væri boðin þannig niður af einstaklingum. Þennan fyrsta tilgang mjólkurlaganna eyðileggur hæstv. ráðh. með því að feta í fótspor þessara einstaklinga, sem voru í rauninni að eyðileggja markaðinn með því að bjóða mjólkina niður fyrir hinum. Það var af sumum framsóknarmönnum ekki talað sérlega vel um þessa undirboðsmenn, en þegar ráðh. þeirra er kominn í sitt valdasæti, gengur hann í spor þessara sprengingarmanna.

Þá kem ég að þriðja atriðinu, er mjólkursölulögin snertir, nefnilega skipulaginu. Ég hefi nú talað um sölu- og dreifingarkostnaðinn og um verðfallið, en á eftir að minnast á þriðja atriðið, skipulagninguna. Þar játaði einmitt hæstv. ráðh. allt, sem ég sagði, og það svo undur fallega, að ég hafði alls ekki búizt við, að hann gerði það svo vel og glögglega. Hann bar ekki á móti því, að mjólkurbú, sem áður hafði eingöngu skyrsölu, hefði verið kúgað til þess að fara að búa til osta, byggja til þess hús, fá sér nýjar vélar og nýja kunnáttumenn, í stað þess að það fengi að halda áfram skyrsölunni. Og hann játaði meira. Hann bar ekki á móti því, að mjólkursamsalan hefði kúgað búin til að útvega sér ný tæki og húsrúm og til að fá sér kunnáttumenn til að búa til osta og slíkt, og að öll skipulagning hennar hefði verið komin í slíkt öngþveiti, að orðið hafi að sækja sérfróðan mann norðan af Akureyri til að koma einhverju skipulagi í vitleysuna.

Áður en samsalan komst á, hafði Mjólkurbandalag Suðurlands samþ. að koma slíku skipulagi á málin, en mjólkursölun. eyðilagði það allt. Svo þegar allt var komið í vitleysu, var maður sóttur norður á Akureyri, ágætur maður, til að lagfæra öngþveitið. Og þar með er játað, að meiri hl. mjólkursölun. hefir ekki haft mátt eða vit eða hagsýni til að stjórna þessum málum, þar sem setja þarf sérstakan kunnáttumann yfir n. Eitt af því, sem hann gerir, er það, að fá skyrþétta frá einni skyrgerðinni, sem mjólkursölun. hafði lagt niður. Hann kynnir sér skyrgerðina í bænum og kemst að sömu niðurstöðu og Sigurður Pétursson, að sumt af skyri n. sé svo slæmt, að lítið sé í því af þeim gerlagróðri, sem á að vera í góðu skyri. — Þannig kúgar n. ágæta skyrgerð til að fara að búa til osta, en lætur annað mjólkurbú fara að búa til skyr, en það er ónothæf vara, af því að útlendur viðvaningur er við verkið, sem ekki kann til þess. við skulum nú vona, að manni þeim, sem settur hefir verið yfir mjólkursölun., takist að lagfæra þetta.

Þá kom hv. þm. með upplýsingar um skyrsöluna. Mér þótti gott að fá þær upplýsingar. Af þeim kemur sem sé í ljós, að á árinu hefir n. selt 167 tonn af skyri. Með þessu ætlaði hann víst að slá mig niður. Nei, það er einmitt bezta vopnið, sem ég gat fengið, því að það upplýsir, að skyrsalan hefir minnkað um helming undir stj. n. Þetta magn er minna en Mjólkurbandalagið hafði selt áður eitt saman. Svo var vitanlega selt skyr frá Mjólkurbúi Borgfirðinga, skyrgerðinni á Hvanneyri og ýmsum einstaklingum, sem seldu a. m. k. eins mikið og bandalagið. Þessar tölur, sem hæstv. ráðh. er að flagga með upplýsa því, að n. hefir eyðilagt helming skyrmarkaðarins. Þetta hafði mér ekki dottið í hug í gærkvöldi. Þegar ég heyrði þetta, hryggðist ég í mínu hjarta yfir því, að svo hörmulega skyldi vera komið.

Hann var að tala um skyrveizlu, sem stæði til, að haldin yrði. Ég vona, að hún gangi sem bezt, ef hún gæti orðið til að auka skyrmarkaðinn. Reykvíkingar ættu sannarlega að borða meira skyr en þeir gera. Og ég vona líka, að hæstv. landbrh. framkvæmi eitthvað af loforðum sínum um að koma þessum málum í gott lag.

Ég er þó búinn með tímann og verð að hætta. Ég hefi fengið að heyra margar játningar af munni hæstv. landbrh., og gefst mér væntanlega tækifæri til að koma inn á þær einhverntíma seinna.