22.11.1935
Neðri deild: 80. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (2418)
150. mál, Brunabótafélag Íslands
Garðar Þorsteinason:
Það eru aðeins örfá orð. Hér kemur enn fram misskilningur hjá hv. þm. Það er einmitt af því, að það er ekki skyldutrygging í Rvík, að önnur félög hafa rétt til þess að bjóða á móti Brunabótafélaginu. Afleiðingin er sú, að iðgjöld í Rvík eru lægri en annarsstaðar, og það er þess vegna vafasamt, hvort hægt er að segja, að áhættan sé minni hér en annarsstaðar. Ég geri ráð fyrir, að sérfræðingar leggi það niður fyrir sér, hvað Rvík er stór, og sú minnkandi áhætta, sem af því leiðir, sé ljós umbjóðanda hins útlenda félags. En það er misskilningur hjá hv. þm., ef hann heldur, að þessi minnkandi áhætta komi Brunabótafél. að haldi, því það fær auðvitað lægri iðgjöld eftir því, sem áhættan er minni.