14.12.1935
Efri deild: 95. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1450 í B-deild Alþingistíðinda. (2430)
150. mál, Brunabótafélag Íslands
Magnús Torfason [óyfirl.]:
Ég hafði ætlað að gera stutta grein fyrir atkv. mínu við 2. umr. þessa máls, en komst þá eigi að fyrir ös. Nú er þetta síðasta umr. málsins, og þykir mér því rétt að segja nokkur orð.
Þetta frv. hefir tekið allmiklum stakkaskiptum frá því er það kom upphaflega frá hæstv. stj., og get ég ekki neitað, að eins og frv. er nú er það að ýmsu leyti myndarlegra heldur en það var þá. En það er líka færzt meira í fang og sennilegt er, að þessi l. verði til talsverðra útgjalda fyrir ríkissjóð, a. m. k. fyrst í stað. Ég hefði nú eiginlega haldið, að þessu frv. lægi ekki nein ósköp á. Þetta er nýmæli, sem hefir í för með sér mjög gagngerða breyt. á þeim hlutum, sem hér er um að ræða, og mér hefði satt að segja fundizt mega taka sér góðan umhugsunartíma og undirbúa málið vel, því það væri óneitanlega skemmtilegra, að þetta gæti farið vel af stað.
Ég geri nú ekki mikið úr sumum þeim andmælum, sem komið hafa fram gegn þessu frv. og meðfram stafa af því, að sá, sem bezt og rækilegast hefir um málið talað, er kunnugur hér í Reykjavík, en ekki úti til sveita. Ég veit ekki betur en að í sveitum sé það siður, að kennararnir sjái um útvegun skólabóka, annaðhvort á þann hátt, að þeir geri næsta bóksala aðvart um, hvað mikils þarf við af hverri bók, eða þá að þeir panti sjálfir bækurnar og miðli þeim út á meðal barnanna. Ég get því ekki hugsað mér, að það yrði neitt óhóf við útbýtingu bókanna fremur hér eftir en hingað til, þó kennurunum sé ætlað að hafa hana með höndum. Ég get ekki heldur hugsað mér, að mikið þurfi að kvíða því, að illa verði farið með bækurnar, þótt þær fáist gefins, enda er til ósköp einfalt ráð við því. Það mætti taka upp þá reglu að leggja áherzlu á það, þegar gefnar eru einkunnir fyrir hegðun barnanna, hvernig þau fara með bækurnar, og það væri rétt þegar af þeim sökum, að það er talsvert uppeldisatriði í því fólgið að kenna börnunum að fara vel með bækurnar sínar; við það venjast þau á nýtni og þrifnað.
En það er eitt í þessu máli, sem ég hefi ekki orðið var við, að hafi komið hér fram í umr. Ég verð að vísu að játa, að ég hefi ekki heyrt allar umr., en ég hlustaði á allmiklar umr. um þetta mál á þingi í fyrravetur og varð ekki var við, að sú hlið málsins væri tekin til athugunar. Ég á við það atriði, hvort sú missa, sem bóksalarnir verða fyrir, er aðeins missa þægilegs kaupmannságóða, eða hvort hér er eitthvað meira í húfi. Ég minnist á þetta vegna þess, að mér er kunnugt um það, að í öðru landi, þar sem talsvert var talað um að skipuleggja útgáfu og dreifingu námsbóka og taka hana af forlögum og bóksölum, var þetta atriði alls ekki talið þýðingarlaust, því námsbækurnar styddu menninguna í landinu að því leyti, að bóksalar, og einkum þó bókaforlög, launuðu rithöfunda og gæfu út listaverk og vísindarit, sem ekki borguðu sig peningalega, sér til frægðar, og notuðu til þess það fé, sem þeir m. a. fengju fyrir útgáfu og sölu kennslubókanna. Við vitum t. d. að Gyldendal-forlagið hefir marga rithöfunda á sínum snærum, sem það launar rétt eins og hverja aðra starfsmenn og sér þeim fyrir öllum þörfum þeirra. Hvort eitthvað líkt er ástatt hér, er mér ekki kunnugt um. En ef svo væri, að bókaforlög hér á landi hefðu styrkt höfunda þeim til framdráttar, og ef þau gæfu út góð ritverk, jafnvel þó þau töpuðu á því, þá er ekki því að neita, að það væri atriði, sem vel mætti koma til athugunar.
Hv. 3. þm. Reykv. sagði um þetta frv., að það væri ekkert listaverk, og það er alveg víst, að það er ekki neitt laga-listaverk. Ég er ekki að tala um frv. eins og það kom upphaflega fram af hálfu hæstv. stj., en það hafa fleiri kokkar komið hér að og frv. öllu verið gerbreytt; og við það hafa að mínu viti komið þeir ljóðir á frv., sem jafnvel gera það að verkum, að það er spursmál um það, hvort mögulegt er að samþ. það eins og það liggur nú fyrir. A. m. k. þarf góðan vilja til þess, og ég er ekki í neinum vafa um það, að ef frv. verður samþ. eins og það er nú, þá mun þurfa annaðhvort að rétta það með bráðabirgðalögum, eða þá a. m. k. að breyta því þegar í stað á næsta þingi. Ég get t. d. bent á ákvæði 7. gr., þar sem sagt er, að ríkissjóður eigi að annast innheimtu nefskattsins hjá foreldrum. Þetta er dálítið undarleg fígúra, sem ég hefi ekki seð fyrr í l. Ég veit ekki almennilega, hvað meint er með þessu. Það eru vitaskuld dæmi til þess, að sjóðir hafa verið sendir til til þess að leita að peningum. Við vitum dæmi til þess, að þegar sjóður einn tapaði tveimum milljónum á einum sinna viðskiptavina, þá voru sendar aðrar tvær milljónir til að leita að þeim tveimur milljónum. Hitt er annað mál, hvort þær heimtast nokkurntíma aftur. En ég býst nú ekki við, að þetta sé meiningin. Og þá liggur næst að halda, bar sem ríkissjóður er í vörzlum ríkisféhirðis, að það sé einmitt ríkisféhirðir, sem á að sjá um þessa innheimtu. Eins og við vitum, þá er nú ríkisféhirðir í kjól, og við vitum líka, að sum verzlunarfyrirtæki hér í bænum láta kvenfólk vinna fyrir sig ýms störf, og gengur vel. Ég get vel trúað, að innheimtan gengi vel, ef ríkisféhirðir færi sjálfur á stað í kjól frá Printemps í París og parfúmeruð í Coty parfúmi til þess að sækja þetta fé; ég býst bara við, að honum yrði vel ágengt. Hitt er annað mál ef ríkissjóðurinn stæði opinn á meðan, hvort þá mundi ekki eitthvað fara úr honum meðan á þessu stæði.
En svo ég sleppi nú þessu gamni, þá er það að segja, að þetta orðalag á alls ekki við, og hinsvegar vantar í gr. reglur um, hvernig á að innheimta þetta gjald. Það er því undarlegra, þar sem í 8. gr. eru settar reglur um, hvernig útbýta á bókunum. Ég hélt satt að segja, að ekki væri minni ástæða til að setja reglur um innheimtu gjaldsins heldur en um útbýtingu bókanna. Við höfum líka ákvæði um innheimtu í l. um annan nefskatt, sem þetta þing er búið að samþ., nefnilega ellitryggingagjaldið. Í þeim l. er 3. gr. um innheimtu, og auk þess er heimilað að setja um hana nánari reglur. Þessu atriði hefir algerlega verið sleppt hér, og því þarf að kippa í lag. Hæstv. ráðh., sem þetta heyrir undir, mun að sjálfsögðu upplýsa, hvernig hann hugsar sér þetta. Ég hefði búizt við, að það yrðu lögreglustjórarnir, sem ættu að innheimta þetta gjald.
Þá skal ég geta þess, að síðast í 7. gr. er sagt, að námsbókasjóðurinn eigi að vera í vörzlum fjmrh. Þetta er líka annað orðalag heldur en venja er til. Ég hefði a. m. k. ekki hugsað mér, að það kæmi til mála, að sjóðurinn ætti að liggja inni í skip hjá fjmrh. Ég hefði búizt við, að þar sem Landsbankinn er ríkisstofnun með ábyrgð ríkisins, þá væri óhætt að trúa honum fyrir að geyma þetta fé og hafa einhverja vexti af því. Hinsvegar býst ég ekki við, að þetta ákvæði sérstaklega sé þannig vaxið, að það mætti ekki bíða að færa það í réttara horf, því ég geri ekki ráð fyrir, að það safnist mikið í þennan sjóð á næstu árum.
það var þetta, sem ég vildi sagt hafa um frv. eins og það liggur nú fyrir; ég vildi ekki, að það færi svo frá þessari hv. d., að ekki kæmi fram, hvernig ég lít á sum atriði þess, enda þótt ég verði að viðurkenna, að aðaltilgangur frv. er að mörgu leyti merkilegur, og telji engan vafa á því, að fyrr eða síðar komist það lag á, sem hér er gert ráð fyrir.