30.11.1935
Neðri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (2447)

186. mál, bæjarstjórn í Neskaupstað

Frsm. (Garðar Þorsteinsson):

N. mælir með, að frv. nái fram að ganga. Frv. er flutt, eins og segir í grg., eftir beiðni bæjarstj. Neskaupstaðar og gengur í þá átt, að skipta embættunum þannig, að þar verði sérstakur bæjarstjóri.

Sé ég ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en vísa til grg.