30.11.1935
Neðri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (2454)
186. mál, bæjarstjórn í Neskaupstað
Guðbrandur Ísberg:
Ég hlustaði með mikilli athygli á ræðu hv. 6. landsk. og gat ekki heyrt, að hann færði nein gild rök fyrir því, að forsvaranlegt sé af honum að ætla hv. þd. að hlaupa fram fyrir skjöldu með afgreiðslu á svona máli, þegar það er vitað, að þingnefnd er að afgr. frv. til breyt. á lögsagnarumdæmum í landinu. Hv. flm. hefir ekki bent á neitt, sem gerir það svo bráðnauðsynlegt fyrir Neskaupstað að tvískipta störfum núv. bæjarfógeta, árinu fyrr en ætla má, að það geti orðið með eðlilegum hætti. Nú veit hv. þm. það, sem ég áður gat um, að í öðrum stærri kaupstað gegnir sami maður bæjarfógeta- og bæjarstjórastörfum. Siglufjarðarkaupstaður er miklu stærri en Neskaupstaður, bæjarmálin víðtækari og allur atvinnurekstur miklu umfangsmeiri, einkum síðari hluta sumars og á haustin, og veldur það gífurlegri fyrirhöfn, sérstaklega fyrir bæjarstjórnina. Ég vil því enn beina því til hv. flm., að hann taki þetta frv. aftur; mér finnst það eðlilegra. En ef hann gerir það ekki, þá sé ég ekki annað en að hv. þdm. verði að bregða fæti fyrir það og fella það. — Hv. 2. þm. N.-M. lagði til, að því yrði vísað til launamálan. Ég hefi í sjálfu sér ekkert á móti því, en ég viðurkenni fúslega, að það er rétt, sem hv. 6. landsk. sagði, að frv. á í raun og veru ekkert erindi þangað, því að n. gerir ekkert við það.
Inn á málið sjálft ætla ég ekki að fara, en þar sem hv. 6. landsk. skaut því fram, að bæjarfógetinn ætti að fá 3600 krónur í laun, auk skrifstofufjár, eftir að búið er að losa hann við bæjarstjórastörfin, þá er það ekki jafnlítið og lægstu byrjunarlaun sýslumanna, eins og hann sagði, heldur töluvert hærra. Og eftir því sem ég veit bezt, þá mun þessi bæjarfógeti ekki vera búinn að ná fyrstu aldursuppbót, sem svarar til þessara launa. Hann mundi því koma til með að fá um 600 kr. hærri laun, ef þetta frv. nær fram að ganga. Ég gæti sannað þetta nákvæmlega með tölum, og mun gera það, ef hv. 6. landsk. óskar eftir því, en læt að þessu sinni nægja að benda á þetta.