06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1474 í B-deild Alþingistíðinda. (2479)
80. mál, nýbýli og samvinnubyggðir
Forseti (JörB):
Ég held það væri gott, að hv. þdm. gætu rætt málið nokkru meira nú í kvöld og að það myndi flýta fyrir afgreiðslu þess á morgun. Ef þingi á að ljúka fyrir jól, þá er alsett á þá daga, sem eftir eru, og finnst mér þá, að nú mætti halda áfram um stund að ræða þetta mál og flýta þannig fyrir afgreiðslu þess, og taka svo á eftir 1—2 mál, sem lítill ágreiningur er um, og afgreiða þau.