06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1474 í B-deild Alþingistíðinda. (2482)

80. mál, nýbýli og samvinnubyggðir

Jón Pálmason:

Úr því umr. fæst ekki frestað, verður ekki hjá því komizt að víkja nokkuð að málinu nú, þótt það sé óviðfelldið, þegar jafnstórt mál er um að ræða, að þá sé komið fram undir miðnætti og ekki nema helmingur af hv. þdm. viðstaddur.

Áður en ég vík að málinu get ég ekki látið hjá líða að minnast með nokkrum orðum á þau ummæli, sem fellu hér við eldhúsumr. frá tveimur af hæstv. ráðh., þó þessi ummæli komi þessari málsmeðferð ekki beinlínis við. Hvorugur þessara hæstv. ráðh. er nú viðstaddur, en ég vona, að hæstv. fjmrh., sem hér er viðstaddur, skýri þessum stallbræðrum sínum frá ummælum mínum, að svo miklu leyti sem ástæða er til þess.

Hæstv. forsrh. hafði þau ummæli, að ef Sjálfstfl. réði völdum í landinu, þá væri það víst, að nýbýlamálið yrði ekki leyst. Hæstv. atvmrh. sagði síðan við sömu umr., að við sjálfstæðismenn vildum, að sveitirnar væru látnar í friði fyrir umbótabrölti og byggingu nýbýla. Þetta leyfði hæstv. atvmrh. sér að segja þjóðinni, samhliða því, sem lagt er fram í þessari hv. d. shlj. álit frá öllum mönnum í landbn., sem sýnir bezta samkomulag um afgreiðslu málsins og að hv. n. hefir gersamlega umturnað því frv., sem hv. stjórnarflokkar höfðu lagt fram fyrir þingið. Ég verð að segja það, að þegar slík ummæli eru flutt þjóðinni, þá sýnir það þann hugsunarhátt, sem ég tel, að sé fyrir neðan það, sem eigi að vera sæmilegt fyrir mann, sem er falið það trúnaðarstarf að vera í ríkisstjórn.

Ég skal svo ekki fara nánar út í þetta, en víkja að starfi n. og málinu sjálfu eins og það liggur hér fyrir.

Eins og þeir hv. þdm., sem hér eru við staddir, sjálfsagt hafa veitt eftirtekt, hefir þetta frv. verið stytt um 12 greinar og 37 brtt. gerðar við það. Meiri hl. landbn. eru flm. frv. hér inn í þingið. Þeir hafa sameinazt okkur hinum, þ. e. fulltrúum Sjálfstfl. í n., um að breyta þessu frv. til betra horfs, og tel ég það þeim til hross. Ég skal ekki miklu bæta við lýsingu hv. frsm. n. á störfum n., en þó um þetta mál væri góð samvinna, get ég ekki látið svo fram ganga umr. að ég fari ekki fáeinum orðum um málið í heild og það viðhorf, sem blasir að baki þess. Mér finnst sjálfsagt, að Alþ. setji lög um það efni, sem hér liggur fyrir, og svo sé gengið frá ákvæðum þeirra l., að við getum vel við unað, sem höfum alið allan okkar aldur í sveit og gert ráð fyrir, að þar yrði framtíðarbústaður fyrir okkur sjálfa og afkomendur okkar, gert okkur vonir um góða og bjarta framtíð fyrir íslenzkan sveitabúskap, að búin heldust í blóma og fólkinu fjölgaði í sveitunum. Í sambandi við þessar vonir hefir verið sá draumur, að nýbýlum fjölgaði þar, sem náttúruskilyrði væru í betra lagi. En þessar vonir hafa því miður fölnað og þeim daprazt flugið á síðari árum, síðan kreppan og vandræðin og hrun atvinnuveganna kom fram á íslenzkum sveitabúskap, hefir það sannast ár eftir ár, að unga fólkið hefir streymt í burtu, og almennt, m. a. af þeim sökum, borið á vonleysi þess fólks, sem eftir er í sveitum landsins.

En þótt þannig sé háttað, þá lít ég svo á, að ástand það, sem nú ríkir hvað snertir afkomumöguleika sveitanna, hljóti að vera bráðabirgðaástand, sem ekki geti staðið lengi og ekki megi standa lengi, ef þjóðfélag vort á ekki að hrynja í rústir. Ef svo á að ganga áfram sem nú hefir verið, að meginhluti unga fólksins safnist í kaupstaðina og í þann hóp, sem kallaður er verkamenn og á allan sinn hag undir því að geta fengið þar einhverja vel borgaða atvinnu hjá bæjarfélögunum, ríkinu eða öðrum, sem atvinnu reka, þá hlýtur þjóðfélagið að fara í rústir.

Nú lít ég svo á, að það, að verkalýðnum fjölgar úr hófi fram og atvinnurekendum fækkar, eigi annarsvegar rót sína að rekja til breytts verðlags og hinsvegar til þess, að þjóðfélagsvaldinu sé beitt á óhyggilegan hátt. Ég skal ekki fara langt út í þetta að sinni, enda minni ástæða til þess vegna þess, hve fáir af hv. þdm. eru viðstaddir. En ég lít svo á, að sú fjármálastefna, sem orsakar þessa byltingu í atvinnulífi voru, hljóti nú að vera í síðustu fjörbrotunum, og ósennilegt sé, að lengi geti haldið áfram í sama horfi og nú er. Hvað sem öllu öðru líður, þá getur ekki hjá því farið, að það fari að koma stefnubreyt. í þá átt, að framleiðendunum taki að fjölga í sveitum og kaupstöðum, og það verður að gera þær ráðstafanir, að þeim fjölgi eðlilega og geti unnið fyrir sér og hafi aðstöðu til að vera frjálsir og sjálfstæðir menn. Á þessum grundvelli byggi ég það álít mitt, að miklu varði um það, að þetta mál verði leyst á hyggilegan hátt með löggjöf.

Ég skal taka það fram, að ef því heldur áfram, að almennt vonleysi ríki um íslenzkan sveitabúskap, ef jarðirnar halda áfram að leggjast í eyði og ef ekki næst meira samræmi milli tekna af framleiðslunni og kostnaðar við hana en nú er, þá er til lítils að ganga langt í þá átt að stofna nýbýli. En mín von stefnir í þá átt, að þetta hljóti að fara að breytast, og fyrst og fremst af því, að það getur ekki gengið áfram að halda jafnmörgu fólki í kaupstöðunum og líkur eru til, að bætist þar við á mestu árum, og þá verður þjóðfélagið að hverfa að því að nota þau margvíslegu og líft tæmandi lífsskilyrði, sem sveitirnar hafa að bjóða og bundin eru við það, að fólk lifi þar á framleiðslu sinni og verzli sem minnst. Ég tel því, að fjölgun nýbýla og þar með fjölgun framleiðenda sé eitt af grundvallaratriðum í stefnu Sjálfstæðisfl., sem óskar þess, að sem allra flestir menn fái skilyrði til að framleiða sjálfir til þarfa sinna. — Um málið almennt skal ég svo ekki fara fleiri orðum, en snúa mér að brtt. þeim, sem liggja fyrir frá n.

Ég skal taka það fram, að ég hefi tvö höfuðsjónarmið fyrir augum með brtt. n. á þskj. 672. Þessi tvö sjónarmið eru, eins og hv. frsm. vék að í fyrsta lagi það, að stofnun nýbýlanna sé ekki gerð dýr, heldur sá minnsti kostnaður hafður, sem hægt er að komast af með, og er þar æðimikið bil á milli n. í till. hennar og þeirra manna, sem sömdu frv. Þetta sjónarmið n. byggist á því, að n. er ljóst, að ef nýbýlin yrðu eins dýr eins og gert er ráð fyrir í frv., þá gætu orðið af því alvarlegir árekstrar í framkvæmd, vegna vaxtaþunga og takmörkunar á því, hve mörg býli væri hægt að styrkja. — Hitt höfuðsjónarmiðið, sem hv. frsm. vék ekki verulega að, er, að áður en ráðizt er í byggingu nýbýla og farið að veita lán til þeirra, þá sé það vitað, hvaða menn það eru, sem taka hvert býli, og hvort þeir séu tilbúnir að gera þann undirbúning, sem þarf. Samkv. frv. var þetta allt ótryggt, en samt hefir af hæstv. ríkisstj. verið hafizt handa um að stofna til undirbúnings á stórri nýbyggð austur í Árnessýslu, án þess á nokkurn hátt hafi verið gerðar ráðstafanir um, hverjir tækju við þeim býlum. Samkv. okkar brtt. er ætlunin sú, að það verði ákveðið, áður en að verulegum framkvæmdum er snúið, hvaða menn eigi að taka við býlunum, og að þeir hafi gert það, sem við köllum samþykktir um samvinnubyggðir, og myndað samvinnubyggðafélagsskap og sýnt, að þeir hefðu vilja á að fullnægja þeim skilyrðum, sem lögin setja.

Þá skal ég lítilsháttar víkja að þeim ágreiningi, sem hv. frsm. gat um, að ég hefði sérstaklega gert og kemur fram í þeirri brtt., sem ég flyt á þskj. 694. Það er í raun og veru sá eini ágreiningur, sem ég geri í n., og menn verða að gera það upp við sjálfa sig, hvort þeir telja hann mikilvægan eða ekki. En þessi ágreiningur er um stjórnarfyrirkomulag nýbýlamálanna. Ég tel eðlilegt og sjálfsagt, að þegar farið er af stað með þetta mál, þá sé það allsherjar félagsskapur bænda, Búnaðarfél. Ísl., sem hafi yfirstjórn þess á hendi ásamt viðkomandi ráðh. Ég tel óþarft að byrja á því að stofna nýtt dýrt embætti og að öðru leyti kosta til yfirstjórnar fram yfir þarfir. Þess vegna legg ég til, að yfirstjórn þessara mála verði hjá Búnaðarfél. Ísl. og það feli 3 mönnum að hafa stjórn þeirra með höndum. Þetta ætti, frá mínu sjónarmiði, að nægja fyrst um sinn. Ég tel þess enga þörf og ekkert vit í því, að fara mjög hart af stað með þetta mál, heldur fikra sig áfram eftir því, sem reynslan sýnir, að heppilegast er. Komi það hinsvegar í ljós, að þessi starfsemi verði svo umfangsmikil, að Búnfél. Ísl. geti ekki látið þá starfsmenn sína annast þessi mál ásamt öðrum störfum, sem þeir þurfa að inna af hendi, þá ætti Búnaðarfél. að geta bætt við sig starfsmönnum.

Viðvíkjandi því, sem hv. frsm. sagði nokkuð seint í ræðu sinni, að það væri ætlunin að leggja fram 200 þús. kr. frá ríkissjóði til þessara framkvæmda nú á næsta ári og stofna 60 nýbýli, skal ég taka það fram, að eins og brtt. ber með sér, ætlast n. til, að þetta fari eftir því, sem fé er veitt í fjárl. til þessara framkvæmda á hverju ári. Ég mundi vel geta sætt mig við, að lægri upphæð yrði til þessa veitt á meðan engin reynsla er fengin um það, hve mikil keppni verður um að fá styrkinn, því ég tel, að fara verði eftir reynslunni í þessum efnum, en ekki eigi að taka stórt stökk í byrjun án þess að vita. hve sterkur áhugi ríkir fyrir því að njóta þeirra hlunninda, sem með þessu eru af hálfu ríkisvaldsins boðin þeim, sem vilja reisa nýbýli.

Af því að nú er fáskipað hér í hv. d. og af því að hv. frsm. fór ýtarlega út í einstakar brtt., skal ég ekki að sinni eyða miklu meiri tíma til að ræða um þetta mál; en ég vænti þess, að þeir hv. þdm., sem hér eru viðstaddir, geti gert sér ljóst, hverri stefnu þeir telji rétt að fylgja í þessu máli. Ég vænti þess líka, að hæstv. forseti taki til greina þá ósk, sem fram hefir komið, að slíta ekki umr. um þetta mál í nótt, því ég álít ekki sanngjarnt að slíta umr. um stórmál, þegar komið er fram á hánótt og aðeins lítill hluti hv. þdm. er viðstaddur.