06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (2485)
80. mál, nýbýli og samvinnubyggðir
Hannes Jónsson:
Ég vil benda hæstv. forseta á, að þó ég feginn vildi, er mér ómögulegt annað en endurtaka á morgun nokkuð af því, sem ég segi nú í nótt, af því að þm. eru ekki viðstaddir, nema fáir. (HV: Er þm. ekki vanur að tala yfir tómum stólum?). Hv. 2. þm. Reykv. er vanur að tala yfir tómum stólum, og ég held, að hann ætti að fara upp í benzín og leggja sig þar.