13.12.1935
Neðri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1489 í B-deild Alþingistíðinda. (2500)

80. mál, nýbýli og samvinnubyggðir

Bjarni Bjarnason:

Í 23 gr. þessa frv., sem hér er til umr., er gert ráð fyrir því, að nýbýlanefnd geri till. um það, hvernig því fé skuli skipta á milli heraða og umsækjenda, sem á hverju ári er veitt til nýbýla. Þar er og gert ráð fyrir, að nýbýlanefnd geri till. um lán úr nýbýladeild byggingar- og landnámssjóðs.

Þessi brtt., sem ég flyt, ásamt hv. 1.þm. Árn., á þskj. 788, gerir aftur á móti ráð fyrir, að nýbýlanefnd geri einnig till. um lán úr byggingar-og landnámssjóði, bæði til endurbygginga á jörðum í ábúð og til nýbygginga á nýbýlum og samvinnubyggðum. Og þar sem í frv. þessu felast breyt. á l. um byggingar- og landnámssjóð, að því leyti að sjóðurinn er þar klofinn í tvennt, þá álítum við flm. þessarar brtt., að vel fari á því, að nýbýlanefnd geri till. um lán úr báðum deildum sjóðsins, eða úr sjóðnum yfirleitt.

Þetta er í fám orðum innihald þessara brtt. á þskj. 788. Og þar sem þær liggja nú hér frammi fyrir hv. þm., munu þeir verða fljótir að átta sig á þeim.

Skal þess getið, að bankastjórn Búnaðarbankans telur þetta fyrirkomulag haganlegt og álítur, að það sé styrkur fyrir hvern bankastjóra, sem á að ráða þessum málum til lykta, að nýbýlanefnd geri á þennan hátt till. sínar og landbrh. geri svo um þetta fullnaðarákvarðanir.