13.12.1935
Neðri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (2515)

80. mál, nýbýli og samvinnubyggðir

Jörundur Brynjólfsson [óyfirl.]:

Ég ætla aðeins að segja örfá orð, og ég vona, að ég þurfi ekki að lengja mikið umr., því að það eru óþarfar langar umr. um svo lítið atriði sem hér ræðir.

Ég hefði sparað mér að taka til máls, ef ekki hefði komið fram í ræðu eins hv. þm., að brtt. sú, sem ég hefi gert með öðrum þm., væri ekki frambærileg, hvorki að formi né efni. Sá hv. þm., sem varpaði þessu fram, rokstuddi það ekki frekar, eins og kemur stundum oftar fyrir þennan hv. þm., að honum finnst óþarfi að rökstyðja það, sem hann fer með.

Brtt. okkar fjallar um það, að eins skuli farið með lán úr byggingar- og landnámssjóði, hvort heldur er til endurbygginga á jörðum eða til stofnunar nýrra býla og samvinnubyggða.

Það virðist koma fram hjá landbn., eða 4 nm. af 5, að þetta væri röskun á eldri löggjöf, en sjálfir virðast þeir ekki vera sér þess meðvitandi, að þeir eru að raska eldri löggjöf í till. sínum. Brtt. okkar felur einmitt í sér að koma samræmi á þau lán, sem þeir fara nú að gera ráðstafanir með á sérstakan hátt. Það segir í 21. gr. frv.: „Byggingar- og landnámssjóði Búnaðarbanka Íslands skal skipt í tvær deildir. Önnur deildin skal veita lán til þess að endurbyggja hús á jörðum, sem eru í ábúð. Hin deildin kallast nýbýladeild. Hún skal veita lán til þess að reisa nýbýli og samvinnubyggðir.“ 23. gr. frv. tekur síðan fram, að með fjárl. skuli ákveðið, hve mikið fé sé lagt til stofnunar nýbýla á hverju ári. Skal svo nýbýlanefnd gera till. um, hvernig því fé skuli skipt milli landshluta, og eins hvað miklu fé sé varið til lánveitinga úr nýbýladeild byggingar- og landnámssjóðs.

Við, sem stöndum að þessari brtt., leggjum til, að úr hinni deild sjóðsins, sem varið er til endurbygginga á býlum, sé farið með lánin á sama hátt. Þessi brtt. er flutt eftir ósk þess manns, sem hefir yfirstjórn þessa sjóðs. Hann hefir óskað eftir, að þessar ráðstafanir yrðu gerðar á sama veg. Honum finnst, að með því yrði meira samræmi á stjórn sjóðsins, ef hann væri undir einni yfirstjórn.

Í till. landbn. er ekki vikið að því, hvernig sjóðnum skuli skipt, hvaða hlutfall eigi að vera milli deildanna, þegar sjóðnum er skipt, eða hvernig starfsemi hans skuli háttað í þessum deildum í framtíðinni. Ég get búizt við, að ekki sé auðvelt að ákveða þetta fyrirfram, og því sé bezt, að sömu menn fjalli hér um, bæði lánveitingar og styrkveitingar úr nýbýladeildinni, og eins hvernig verja skuli fé úr hinni deildinni til endurbygginga á jörðum í sveitum.

Þetta er ekki skylt því, sem landbn. leggur til. Hún vill koma lánveitingum úr nýbýladeild undir sérstaka yfirstjórn við Búnaðarbankann. Það getur verið skoðunarmál, hvort rétt sé að bera styrkveitingar úr þessum sjóði undir nýbýlan. En ef við hefðum flutt till. um svo mikla röskun á frv., þá hefði landbn. getað lagzt á móti. Hinu bjóst ég síður við, að 4 nm. af 5 legðust á móti því, að samræmi yrði í starfsemi sjóðsins. því það verða ekki nein greinileg skil, hvað eru nýbýli og hvað er endurbygging á eldri býlum, t. d. hvort eitthvert býli hættir að heita nýbýli þó að endurnýjaðar séu byggingar á því, hvort þau heita bara nýbýli fyrst. Vegna alls þessa hefði verið hyggilegra, að það hefði verið sama stjórn yfir þessum deildum báðum.

Hjá okkur flm. brtt. er þetta ekki neitt kappsmál. Fyrir okkur vakti ekki annað en það, að gætt væri samræmis í stjórn beggja deilda sjóðsins. Við fellumst þar á rök þess manns, sem hefir yfir sjóðnum að segja, og álítum við bezt, að sömu menn hefðu úrslitaatkvæði um það, hvernig farið væri með fjármál sjóðsins.

Ég get sagt sem mína persónulegu skoðun, að ég hefði kosið, að þessar till., bæði um nýbýladeild og hina, væru ekki bornar undir landbrh., heldur hefði stjórn bankans með nýbýlastjóra og nýbýlanefnd úrslitaatkvæði um þetta. En ég vildi ekki gera svo mikla röskun á frv., sem af því hefði hlotizt, og því áttum við ekki annars úrkostar en flytja till. til samræmingar á stjórn deilda sjóðsins.

Þá saknaði einn ræðumaður ákvæðis úr brtt. okkar við till. landbn., þess efnis, að þegar landbrh. hefir lagt till. nýbýlanefndar fyrir nýbýlastjóra væru teknar fullnaðarákvarðanir um þær í samráði við hann. Eftir till. okkar á að orða málsgr. þannig: „Tillögur nýbýlanefndar um styrki og lán úr deildum sjóðsins skulu jafnan lagðar fyrir nýbýlastjóra, en hann leggur tillögurnar fyrir landbrh., sem tekur um þær fullnaðarákvarðanir.“ Það er nákvæmlega það sama sagt í báðum málsgr., en þetta nær bara betur þeirri hugsun, sem fyrir landbn. vakti. Hvað þýðir, að nýbýlastjóri leggur fyrir landbrh. tillögur n.? Þeir bera ráð sín saman. Verði þeir ásáttir, kemur ábyrgðin á landbrh. Greini þá á, þá ræður landbrh., þó að orðalag landbn. haldist á till. Till. okkar og hennar bera því að sama brunni.

Landbn. hefir heldur ekki fundið að þessu, en aðeins einn ræðumaður. Og ég get sagt fyrir mitt leyti, að mér liggur í léttu rúmi, hvort þessi till. verður samþ. En andmælin gegn till. eiga ekki við rök að styðjast. Ef eitthvað er aðfinnsluvert við það, að landbrh. taki ákvörðun um slíkar lánveitingar, þá gildir það ekki síður um till. landbn. En mér stendur annars á sama, hvað deildin gerir við þessar till. Þær eru komnar fram eftir óskum þess manns, sem mest á um þessi fjármál að fjalla, og samræmis vegna var ég fús að flytja þær. En annars er mér hjartanlega sama, hvað við þær verður gert. En ég veit með vissu, að þegar fram líða tímar, þá mun sú verkaskipting, sem landbn. leggur til, ekki viðgangast lengi.