04.12.1935
Sameinað þing: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (254)

1. mál, fjárlög 1936

Þorsteinn Briem [óyfirl.]:

Mig undraði nú stórlega einurð hæstv. forsrh. Þegar ég er búinn að lesa skýrslurnar alveg svo nákvæmlega ár fyrir ar, þá ber hann þetta niður aftur og segir, að ég hafi farið með visvitandi ósannindi, þegar ég sagði, að hann hefði sagt í gærkvöldi, að selt hefði verið 167000 kg. af skyri, en áður sagði eg, að eftir nýjum upplýsingum, sem ráðh. hefði fengið, hefði hann sagt, að það væru 180000 kg. Þetta er nákvæmlega eins og hann sagði, og ég var nákvæmlega búinn sjálfur að segja það sama eins og hann sagði nú sjálfur sem visvítandi ósannindi. Ég get ekki skilið, hvaða heili það er, sem heldur þessu fram. (Forsrh.: Gerið svo vel, hér eru skýrslurnar).

Hæstv. forsrh. heldur því fram, að Borgfirðingar hafi selt minna í fyrra en Mjólkurbandalag Suðurlands. En ég tók fram, að svo er alls ekki. (Forsrh.: Það er tekið fram í skýrslunni). Það er alveg satt, sem ég sagði, að öll skyrsala var tekin af Borgfirðingum, en það er alls ekki rétt, sem hann sagði, því þeir voru neyddir til að búa til osta úr sinni mjólk, og þeir hafa ekki mátt búa til nema osta. Hann sagði, að þeir hefðu mátt framleiða 11% af nýja skyrinu, og það var ekki meira, en þeir mættu selja það fyrr en það var orðið súrt. Það er sama hvernig hann snýr þessu eða reynir að snúa því, að það snýr allt öfugt. (Fjmrh.: Þetta er meiri skyrhræringurinn hjá hv. þm.).

Það er undarlegt að þurfa að vera að eltast við þessar rangfærslur, — og svo þykist hann vera að elta flóttann. Þetta er hinn herfilegasti flótti hjá hæstv. ráðh. sjálfum.

Ég nenni ekki að vera að eltast meira við þetta, því það er svo margt, sem ég þarf að svara. Það er margt, sem ég spurði hæstv. ríkisstj. og hún hefir ekki þorað að svara. því hefir ekki verið svarað, hvers vegna brennivín og tóbak er flutt ótakmarkað inn í landið, meðan ekki er veitt innflutningsleyfi fyrir þakjárni á hlöðu bóndans, eða fyrir netum sjómannsins. Þeir hafa ekki reynt að verja einræðisgerðir sínar, mér liggur við að segja fasisma, sem hefir lýst sér í ýmsum aðgerðum þeirra. Þeir hafa ekki reynt að verju þessar ásakanir og margar fleiri.

Það er líka dálítið undarlegt, að þegar stjórnarflokkarnir gerðu með sér samninga og lögðu til grundvallar 4 ára áætlunina, þá felldu þeir niður eina greinina, sem hljóðaði um að veita embætti hlutdrægnislaust, enda mun það hafa komið sér betur, því algerlega hefir verið breytt á móti þessu ákvæði.

Þá hefir Framsfl. ekki tímt að sjá af 1/40 — einum fertugasta — hluta af skottunum, sem lagðir voru á af síðasta Alþ. til bændastéttarinnar.

Þeir hafa ekki sinnt mínum till., þó ég greiddi atkv. með sumum hinum nýju sköttum á síðasta þingi. Þeir vildu ekki auka styrkinn til jarðræktar né garðræktar, ekki til hlöðubygginga til að varðveita heyin, ekki til safnþróa til að spara áburðarkaup. Bændafl. hefir einn allra barist fyrir þessum og öðrum framkvæmdum og hefir stutt fastlega þær till., sem fram hafa komið til bóta fyrir landbúnaðinn.

Hitt var ekki nema hártogun hjá hæstv. ráðh. áðan, að afurðasölulögin hefðu ekki náð fram að ganga nema með samþykki sósíalista. Hann getur ekki neitað því, að þau hefðu gengið fram, þó sósíalistar hefðu verið á móti þeim, vegna þess að þau höfðu fylgi allra annara flokka þingsins. Hann getur ekki neitað því af þessum orsökum, að það var óþarft að kaupa sósíalistana til að koma þessum málum fram.

Hann gat ekki hrakið eitt einasta orð af því, sem ég sagði um skyrsöluna; hann veit líka og viðurkenndi, að hún hefði verið í ólagi síðan í fyrravetur.

Fyrrv. ríkisstj. lækkaði vesti af lánum bænda úr 7%, sem þeir voru af ýmsum lánum, og niður í 41/2%, af fasteignaveðslánum. Þetta hefir núv. ríkisstj. hækkað aftur í 5%, vexti. Þeir eru ekkert hræddir, sænskir og norskir bændur, við að eiga alla fulltrúana í sínum afurðasölunefndum, og það er af því, að þeir hafa ekki leyst þessi mál í sambandi við sósíalista.

Þeir gengu alveg framhjá að ræða ýms atriði, sem varða bændurna miklu. Hæstv. ráðh. játaði, að margt hefði farið aflaga t. d. í framkæmd mjólkurl. Hann gat ekki hrakið neitt af því, sem ég heit fram, t. d. að lækkun á mjólkurverðinu, sem skellt var á í byrjun, hefir numið á 4. hundr. kr. fyrir meðalbónda. Hann gat ekki hrakið þetta, né heldur að með því að hafna tilboði frá bökurunum muni verða nálægt því annað eins tap hjá meðalbónda og þetta. Hann hefir ekki hrakið neitt af því, sem ég sagði um sölu- og dreifingarkostnað mjólkurinnar. Hún er seld á 38 aura lítrinn. gerilsneiðingin er 3 aurar á lítra, verðjöfnunargjaldið 3 aurar, og sölu- og dreifingarkostnaðurinn 6 aurar á lítra. Þetta verða 12 aurar, og getur hver reikna, að 12 frá 38 verða 26, sem er þá það. sem að nafninu til er greitt til bændanna í Mosfellssveitinni, þ. e. a. s. fyrir þann hluta mjólkurinnar, sem ekki er notaður í vinnslu, en það er ekki svo lítill hluti. Þannig er allt hrakið, sem hann var að reyna að bera í bætifláka fyrir.

Það var ekki svo lítið ævintýri, sem núv. stj. flokkar ætluðu að stofna til með samvinnu þeirri, sem byggð var á 4 ára áætlun Alþfl. Það átti að útrýma atvinnuleysinu, setja fullt fjör í atvinnuvegina og allt eftir þessu. En hvað hefir svo verið gert? Atvinnuleysið er a. m. k. ekki minna en það var áður, og aldrei hefir verið minna fjör í atvinnuvegum landsins. Ævintýrið tók því fljótt enda, og ég vona, að þetta stjórnarfar, sem núv. ríkisstjórn viðhefir, taki líka skjótan enda, þ. e. a. s. að hennar lífdagar verði sem fæstir.

— Að lokum býð ég svo öllum landsins börnum góða nótt og óska þeim alls hins bezta, hvort sem þeir búa í sveit eða við sjó, og þó ekki siður þeim, sem í sveitunum búa.