05.12.1935
Neðri deild: 91. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1560 í B-deild Alþingistíðinda. (2553)

131. mál, alþýðutryggingar

Garðar Þorsteinsson:

Hv. þm. Snæf. hefir skýrt svo vel afstöðu minni hl., að óþarfi er að bæta þar við. Hins vegar er það eftirtektarvert að heyra hljóðið í hv. þm., ef talað er við þá, hvern í sínu horni. Hv. þm. Barð. og 2. þm. Reykv. þykjast báðir eiga hugsunina í frv. og hafa breytt því til batnaðar. Og þetta gengur svo langt, að blað Framsfl. segist hafa átt hugmyndina aldarfjórðungi áður en Alþfl. varð til. En hv. þm. Barð. segist ekki fylgja þessu frv. nema annað óskylt mál nái fram að ganga. Vitanlega segist meiri hl. allshn. hafa samið brtt., og á þann veg, að þær bæti frv. að nokkru. En hv. þm. vita vel, að allshn. öll gekk gegnum frv. og lagði í það mikla vinnu fund eftir fund, og voru jafnharðan skrifaðar niður þær brtt. við frv., sem taldar voru til bóta. Meiri hl. hefir að vísu orðað brtt., en flestar voru þær gerðar með fullu samstarfi allra nm. Þetta skiptir í raun og veru litlu máli, en sýnir að eins, hvað mennirnir eru lítilþægir, og um ráðvendnina efast enginn.

Hv. 2. þm. Reykv. vildi lýsa afstöðu Sjálfstfl. með orðunum: sýndu mér trú þína af verkunum. Vildi hann slá því föstu, að brtt. okkar minni hl. sýndu, að Sjálfstfl. væri á móti málinu. Ef hv. þm. hafa lesið grg. fyrir nál. minni hl., hafa þeir séð það, sem vitanlegt er, að hvorki er Sjálfstfl. hér á Alþingi eða utan þings á móti að koma á almennum tryggingum.

Hitt er annað mál, hvort flokkunum ber saman um, hvernig tryggingunum skuli fyrir komið og hve víðtækar þær eigi að vera. Eins og hv. þm. Snæf. benti á, var borið fram frv. um þetta efni fyrir nokkrum árum af þáv. þm. alþfl., hæstv. núv. atvmrh., sem gekk það langt, að ríkið átti að leggja fram iðgjaldið, en einstaklingarnir að njóta hlunnindanna. Nú hefir mér vitanlega ekkert gerzt, sem réttlæti að breyta þeim grundvelli, nema það, að hv. þm. var stj.andstæðingur og gat þá leyft sér að koma fram með till. í trausti þess, að andstæðingarnir ekki samþ. Nú er aðstaðan orðin það breytt, að stuðningsmenn stj. geta ekki með leyfi ráðh. komið fram með till., sem hann ekki vill bera ábyrgð á. Hv. þm. Barð. hefir hér talað fyrir munn Framsfl., að fylgi hans við frv. væri bundið því skilyrði, að frv. til framfærslulaga yrði einnig samþ., og einnig ákveðnar breyt. á frv. Af þessu má sjá, að þó allir séu sammála um að koma tryggingum á, eru mörg ágreiningsatriði og enginn vill samþ. frv. óbreytt.

Ég fæ ekki séð, að það sé réttlætanlegt af hv. þm. Barð. að binda fylgi sitt við frv. við annað mál. Það snertir ekki þetta mál á þann hátt, að framlag þess opinbera verði minna fyrir það, þó framfærslulögin verði samþ. Þetta sýnir aðeins, að þessi hv. þm. þarf að fá eitthvað fyrir sig til þess að samþ. þetta mál, jafnvel þó hann telji málið gott. Það er því ljóst, að hv. 2. þm. Reykv. getur ekki fellt þann dóm, að Sjálfstfl. sé á móti málinu, þó hann greiði atkv. með brtt. á þskj. 688.

Ég hugsa, að sá meginmunur, sem var á frv. því, sem Haraldur Guðmundsson bar fram á sínum tíma fyrir AlþfI. og frv. því, sem hér liggur fyrir, sé að nokkru leyti sá, að það opinbera greiði ekki iðgjöldin nema að nokkrum hluta, og í öðru lagi, að þar var farið út fyrir venjulegan tryggingargrundvöll. En hér er þetta byggt upp á þann áhættuminnsta hátt, að sem flestir séu interesseraðir, og tryggingin takmörkuð við það, að þeir njóti fullra hlunninda, sem iðgjöld greiða.

Í frv., er snertir sjúkratrygginguna, er farið út fyrir þennan grundvöll. Þar er gert ráð fyrir, að allir greiði iðgjöld til trygginganna, en ekki nema sumir, sem eiga að njóta hlunninda af þeim. En minni hl. vill flokka þetta á þann veg, að þeir, sem hafa undir 3 þús. kr. tekjur auk persónufrádráttar samkv. skattalögum, njóti hlunninda trygginganna að fullu, en ríki og bæir greiði 1/4 iðgjaldanna. Næsti flokkur, sem hefir frá 3 þús. til 4,5 þús., séu einnig skyldir að tryggja sig og greiða full iðgjöld, en njóti jafnframt fullra hlunninda, sem sjúkrasamlagið veitir. Í 3. fl. séu svo þeir, sem hafa yfir 4,5 þús. kr. tekjur auk persónufrádráttar. það virðist ekki ástæða til, að ríki og bæir leggi fram fé til þess að greiða fyrir þá, sem hafa svo háar tekjur, að þeir geta vel greitt sína læknishjálp sjálfir.

Ég fæ ekki séð, að það séu réttlætanlegar ástæður fyrir því, að Reykjavíkurbær ætti að fara að greiða 9 kr. fyrir hv. 2. þm. Reykv. eða mig, og ríkið annað eins. mér finnst miklu meiri ástæða, ef skylda á alla til að vera með, að þeir, sem geta, greiði að fullu, jafnvel þó þeir njóti engra réttinda. En ég sé enga ástæðu til þess, að ríkið fari að borga fyrir 2. þm. Reykv., fyrst og fremst 9 kr. fyrir hann sjálfan, 9 kr. fyrir konuna, 9 kr. fyrir vinnukonuna, 9 kr. fyrir foreldrana hvort um sig og 9 kr. fyrir hvert barn yfir 16 ára. Ef ég greiði á sínum tíma iðgjöld fyrir 5 manna fjölskyldu, verða það kr. 45.00. Ber þá ríkinu að greiða aðrar kr. 45.00 og Reykjavíkurbæ einnig kr. 45.00. Svo er eitt efnislega við frv. Hv. 2. þm. Reykv. var að tala um, að það gerði ráð fyrir mun meiri réttindum en sjúkrasamlag Reykjavíkur nú veitir. Þetta er að vissu leyti rétt, en iðgjöldin eru einnig hærri. Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefir 51 kr. iðgjald, en samkv. þessu frv. yrði það kr. 54.00. Auk þess njóta allir, sem borga iðgjöld, fullra réttinda, hér nema því greiðslurnar verulega hærri upphæð en Sjúkrasamlag Reykjavíkur reiknar með.

Þá er eitt enn, sem hv. 2. þm. Reykv. gat ekki um. Þó sjúkrasamlagið hér í Reykjavík ætlist til, að greitt sé bæði fyrir bóndann og konuna, mun í flestum tilfellum ekki vera greitt nema fyrir annað, og er þó þar í innifalin læknishjálp fyrir börn og alla fjölskylduna. Það mun vera regla hér að borga föstum heimilislækni 12 kr., í stað þess, að eftir frv. fær læknirinn ákveðið fyrir mann og konu, en auk þess fyrir aðra meðlimi fjölskyldunnar yfir l6 ára aldur. Þess vegna er ekki sambærileg sú greiðsla, sem sjúkrasamlög samkv. þessu frv. eiga að fá frá hverri fjölskyldu við það, sem sjúkrasamlög fá nú greitt. Þetta verður miklu meira.

Svo er eitt ákvæði, sem veit að því, sem ég er ekki búinn að gera mér ljóst, en það er það, hvernig fer með þá, sem eru yngri en 16 ára, og t. d. fjölskyldufaðirinn, sem borgar fyrir sig, konu sína, vinnukonu, foreldra og börn eldri en 16 ára, — hefir hann þá einnig fría læknishjálp fyrir börn innan 16 ára? Það gæti vei svo farið, að læknirinn segði: „Ég hefi fengið borgun fyrir þessa ákveðnu aðilja, sem eru 16 ára og eldri, en ég hefi ekki fengið borgun fyrir þessi 3—8 börn, sem ég verð að ganga til líka“. Ég geri ráð fyrir, að læknishjálpin eigi líka að ná til þessara barna, eins og það er í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, en hér stendur ekkert um það.

Það er alveg víst, að þeir, sem hér eiga hlut að máli, verða að gera sér það ljóst, að ef allir eiga að vera skyldutryggðir og nota þann rétt samkv. þessu frv., sem hafa innan við 4500 kr. skattskyldar tekjur, m. ö. o. allur meginþorri þeirra manna, sem eru í Rvík, og þá ekki síður í kaupstöðum og sveitum, — ef allir þessir menn eiga að vera samlagsmeðlimir, þá er það víst, að útreikningur frv. um útgjöld til læknanna, 12 kr. á meðlim, getur ekki staðizt. Það er óhugsandi; Það hafa sjúkrasamlagslæknar eins og Björn Gunnlaugsson og Valtýr Albertsson sagt mér, að það sé ekki viðlit fyrir nokkurn lækni að gegna fleiri en sem svarar 500 sjúkrasamlagsmeðlimum, ef börnin eiga að teljast þar með líka. Þá þýðir þetta 6000 kr. tekjur. Það er því ljóst, að læknir, sem hefir fulla tölu sjúkrasamlagsmeðlima með 12 kr. gjaldi á mann, hann getur ekki lifað á því. Það verður t. d. ekki komizt hjá að reikna með því, að hann verði að hafa bil. 6000 kr. tekjur er því of lítið fyrir hann.

Af þessu er það ljóst, að þær tölur, sem reiknað er með í frv., hljóta að raskast. Hinsvegar er það jafnvíst, að ef á að hafa skyldutryggða aðeins þá menn, sem hafa lægstar tekjur, þá mundu læknarnir eins gagnvart þessum sjúkrasamlögum eins og Sjúkrasamlagi Reykjavíkur álíta það skyldu sína að inna þetta af hendi fyrir sem lægst gjald, ef þeir hafa frjálsar hendur til að taka fulla greiðslu af þeim, sem hafa t. d. 3000—4000 kr. tekjur. Það er önnur aðstaða fyrir lækni, ef hann gætir sem sjúkrasamlagslæknir ákveðins fjölda manna, í staðinn fyrir það, að samkv. frv. yrði hann að hafa alla sína skjólstæðinga sem sjúkrasamlagsmeðlimi.

Ég veit ekki, hvað það hefir sérstaklega verið, sem vakti fyrir hv. þm. Barð., þegar hann benti á það hér áðan, að Framsfl. hefði sett það skilyrði fyrir samþ. þessa frv., að það ákvæði yrði sett í 33. gr. frv., að þetta gjald, sem ríkið átti að borga, næmi aldrei meiru en 9 kr. á hvern mann, því að í frv. er gert ráð fyrir þessu gjaldi sem hæsta gjaldi, og ef áætlunin mundi standast að hans áliti, þá var óþarfi fyrir Framsfl. að setja þetta skilyrði. En ef hann veit, að þetta gjald, sem reiknað er með hér í grg. frv., er of lágt, þá var sjálfsagt fyrir flokkinn að setja þetta ákvæði. Ég dreg þess vegna þá ályktun af þessari brtt., með þeirri skýringu, sem henni fylgir frá hv. þm. Barð., að hann sé hér sömu skoðunar og ég, sem sé þeirrar, að gjaldið, sem aðallega hvílir á sjúkrasamlögunum, sem sé til læknanna, hljóti að verða hærra en það, sem Sjúkrasamlag Reykjavíkur nú borgar, og þess vegna hrökkvi þessar 54 kr. ekki til. En ef þetta gjald stenzt ekki, þá er það engin goðgá, þótt minni hl. n. hafi í nál. sínu og brtt. viljað fresta því, að þessi kafli frv. kæmi til framkvæmda, þangað til fé væri veitt til þess í fjárl. Ef svo er, að ríkið sjálft verður að setja hámarksgjald með því að setja þetta í 33. gr. frv., þá tel ég engu síður, að þetta gjald muni vera það hátt, að allan almenning muni allverulega um að greiða það.

Það er einu sinni þannig, að þótt segja megi, að almenningur eigi að greiða það, vegna þess að hann fái fyrir það ódýrari læknishjálp, þá vona einstakir borgarar í lengstu lög, að þeir og þeirra heimili haldi heilsu sinni, og því vilja þeir ekki borga á 2. hundrað kr. á ári í læknishjálp, ekki vitandi, að þeir þurfi á slíkri hjálp að halda.

Ennfremur er það eitt í sambandi við þessar brtt., en það er brtt. við 58. gr. frv., sem sé það, að bæjarsjóðir eigi að ábyrgjast greiðslurnar til lífeyrissjóðs. ég tel ákaflega varhugavert að setja slíkt ákvæði. Samkvæmt 83. gr. eiga hjón að bera sameiginlega ábyrgð á iðgjöldum beggja, meðan hjónabandinu er eigi slitið að lögum, foreldrar og fósturforeldrar ábyrgjast fyrir börn og fósturbörn, húsbændur fyrir hjú, iðnaðarmenn fyrir starfsmenn sína og atvinnurekendur fyrir fasta starfsmenn sína. Mér skilst, að sú ábyrgð, sem þarna er færð yfir á vissa einstaklinga, þannig, að þeir verði að ábyrgjast fyrir allmikinn hóp manna, eigi gagnvart tryggingarstjórn að vera nægileg ábyrgð fyrir því, að iðgjöldin greiðist í flestum tilfellum, og því sé óþarft að skella þessu á bæjarsjóðina. Og auk þess er annað, sem mælir sérstaklega á móti því, að þessi ábyrgð sé sett á bæjarsjóðina, og það er það, að bæjarsjóðirnir hafa engan íhlutunarrétt um innheimtu þessa gjalds. Það er hart, ef trassafengnir menn, sem áttu að innheimta þetta gjald, láta líða hjá að gera allt, sem hægt er, til þess að fá það greitt, og svo ættu þeir að geta komið til bæjarsjóðs og sagt: „Þetta höfum við ekki fengið; viljið þið ekki gera svo vel og borga það?“ Það mætti ekki vera minna en að ef bæjarsjóðir ættu að ábyrgjast gjaldið, þá gætu þeir fengið að sjá um, að innheimtan væri góð.

Manni virðist, þegar hv. 2. þm. Reykv. og þessi stj., sem nú fer með völd, leggur sérstaka áherzlu á atvinnuleysistryggingar, að þeir hafi ekki sem sterkasta trú á því, að þeir geti framkvæmt þau loforð, sem sósíalistar gáfu, að láta allt atvinnuleysi hverfa. Hvers vegna leggur sú stj., sem ætlar að afnema allt atvinnuleysi, svo mikla áherzlu á atvinnuleysistryggingar? mér finnst mótsögn í þessu, og a. m. k. er þetta full viðurkenning þess, að þeir geti ekki fengið því framgengt að afnema atvinnuleysið. Það er fullt vantraust, sem þessi hæstv. ráðh. með þessu lýsir á sjálfum sér.

Ég vil einnig benda á það, að þegar hv. þm. Barð. var að telja upp þær brtt., sem gerðu það að verkum, að Framsfl. mundi verða með þessu frv., þá minntist hann ekki á atvinnuleysistryggingarnar. Þó hefir bæði þessi hv. þm. og margir aðrir hv. þm. í Frmsfl. margsinnis lýst því yfir, eftir að þetta frv. kom fram, að þeir yrðu aldrei með þessum tryggingum. En svo koma fram vissar brtt. við allt aðra kafla frv., og hv. þm. Barð. segir, að af því þessar brtt. verði samþ., verði Framsfl. með frv. Þess vegna er það ljóst, að það eru ekki brtt., sem gerðu það að verkum, að Framsfl. varð með frv., heldur er það af því, að sósíalistar fara hér eins og venjulega með sannfæringu framsóknarþm. eins og þeim sýnist, nota þá við atkvgr. við hvaða mál sem er, eins og hefir verið samþ. á flokksfundi sósíalista. Ég held, að hv. þm. Barð. hefði því ekki átt að geta yfirlýsingu um það, hvers vegna hann og hans flokksmenn séu með þessu frv., því að það hefir í aðalatriðunum lítið að segja, hvort þessar brtt. verða samþ. eða ekki, því að það vita allir, að þeir hafa margsinnis lýst yfir andstöðu sinni við þetta frv.

Hv. 2. þm. Reykv. talaði alveg á sama hátt um þetta mál, atvinnuleysistryggingarnar, og að menn hefðu frjálsan aðgang að verklýðsfélögunum, hvaða flokki sem verkamenn tilheyrðu, alveg eins og hann gerði hér á þingi í fyrra, þegar verið var að ræða um verkamannabústaðina. Þá var það goðgá að benda þessum hv. þm. á, að hann í mörgum tilfellum misnotaði sína aðstöðu sem formaður þessa fyrirtækis, sem þar greindi. Hinsvegar var ekki komið nema yfir að næsta máli, frv. um vinnumiðlun, þegar hann réðst með óbótasvívirðingum á Gunnar Benediktsson, sem stóð fyrir ráðningarskrifstofu bæjarins, ekki fyrir það, að hann hefði ekki rækt það starf vel og sómasamlega, heldur fyrir það, að til þessa starfs væri fenginn maður úr flokki sjálfstæðismanna, sem væri form. Varðarfélagsins. Þessi hv. þm., sem hvert einasta tækifæri notar til þess að bera öðrum á brýn allar vammir og skammir og aldrei hefir setið sig úr færi að gera öðrum þær verstu getsakir, sem hann hefir megnað, hann má ekki heyra það, að hann muni á nokkurn hátt nota aðstöðu sína sér til pólitísks framdráttar. Þetta eru svo oft endurtekin hræsnisfull ummæli hjá þessum hv. þm., að ég er hissa á því, að hann skuli ekki sjálfur vera orðinn leiður á þeim. Það sama mundi endurtaka sig, ef þetta væri samþ., eins og það varð með einn háttsettan embættismann, sem starfar í nágrenni Reykjavíkur, þegar einn ungur maður fór fram á það, að hann tæki sig í sína þjónustu. Manninn vantaði starfsmann, en hann svaraði: „Það er legið mér á hálsi, ef ég tek sjálfstæðismann í mína þjónustu“. Ég hugsa, að það yrði svipað, þegar farið yrði að úthluta atvinnuleysisstyrknum. Þeirri stjórn, sem það hefði á hendi, mundi verða legið á hálsi af hv. 2. þm. Reykv. og hans líkum fyrir það, ef þeir sýndu þar ekki hlutdrægni sósíalistum til framdráttar.

Það hefir fyrir skömmu verið bent á það í blöðum, og ég hefi ekki heyrt, að því hafi verið mótmælt, að maður, sem er framarlega í flokki sósíalista, Kristínus Arndal, hafi látið mann fá atvinnubótavinnu, þó að hann væri efnaður og hefði sæmilegar tekjur. Það var ráðizt að verðleikum á þennan mann, sem stoð fyrir hlutlausri úthlutun atvinnubótavinnu, og ég hefi ekki séð eitt einasta orð koma þessu athæfi til afsökunar. Og svo leyfir hv. 2. þm. Reykv. sér að segja, að það sé merkileg ósvífni að láta sér detta í hug, að þeir noti þetta fé, sem ríki og bær leggja fram til atvinnuleysisstyrks, til þess að efla sinn pólitíska flokk. Maður veit vitanlega ekkert fyrirfram, hvorki í þessu né öðru, en maður getur dregið ályktun af því, sem maður þekkir í öðrum svipuðum tilfellum. Það er enginn vafi, að þeir tugir þúsunda, sem yrði að greiða í þessa atvinnuleysissjóði, mundu í flestum tilfellum fara til þeirra manna, sem væru flokksmenn hv. 2. þm. Reykv., því að það mundi í því tilfelli sem öðru verða að lúta hans vilja.

Ég er því ekki í vafa um, að þessi úthlutun færi að miklu leyti eftir því, í hvaða flokki menn væru. Þessi ummæli skal ég vera reiðubúinn að endurtaka hvar sem er, ef hv. 2. þm. Reykv. finnur sig móðgaðan af þeim. Þetta er mín persónulega sannfæring og allra þeirra, sem þekkja hans mikla ráðríki í þessu máli sem öðrum.