05.12.1935
Neðri deild: 91. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1571 í B-deild Alþingistíðinda. (2556)
131. mál, alþýðutryggingar
Frsm. minni hl. (Thor Thors):
Það virðist ekki vera tilgangur stjórnarflokkanna að ræða rétta mál mikið; það mun víst ákveðið, að það skuli ná fram að ganga með þeim breyt., sem meiri hl. allshn. hefir borið fram. En ég verð að segja það, að ég sakna þess stórlega, þar sem um svo mikið stórmál er að ræða, að hv. framsóknarmenn skuli ekki gera frekari grein fyrir afstöðu sinni heldur en með þeim fáu orðum, er hv. þm. Barð. sagði hér áðan í þessu máli. það er þó vitanlegt, að það hljóta að vera mjög skiptar skoðanir í öllum sveitum landsins um það, hversu nauðsynlegt sé nú, eða hvort yfirleitt sé kleift eins og sakir standa, að verja stórum upphæðum til atvinnuleysistrygginga í kaupstoðunum. Og maður hefir haldið, eftir fyrri afstöðu Framsfl., að þm. hans væri eigi sérstaklega ljúft að knýja þetta í gegn, eins og nú virðist eiga að gera, og ég hygg, að umbjóðendum þeirra, mörgum a. m. k., komi það einkennilega fyrir, hversu fúsir framsóknarmenn nú virðast til slíkra ráðstafana, eftir það, sem á undan er gengið í stjórnmálabaráttunni. Þó Framsfl. hafi ekki nú á síðustu tímum talað eins mikið um það eins og áður fyrr, að þungamiðja þjóðlífsins eigi að vera í hinum dreifðu byggðum landsins, þá eru öllum þó þau vígorð í fersku minni. Og hvar sem maður á að mæta framsóknarmönnum á þingmálafundum eða almennum umræðufundum úti í hinum dreifðu byggðum, þá vilja þeir mjög halda þessum gömlu vígorðum á lofti. En ég hefi bent á, að þetta frv. er bein tilraun til þess að draga fólkið enn meira en ennþá hefir átt sér stað úr sveitunum í kaupstaðina. Þegar það heyrir um það, að í kaupstöðunum eigi það von um atvinnu, en ef sú von bregzt, þá taki við atvinnuleysistryggingarnar, þá er ekki óeðlilegt, að þeir, sem sjá fram á vonleysi lífsbaráttunnar í sveitunum, ginnist til að ganga eftir þeim góðu tilboðum, sem þeim eru boðin, ef þeir vilja flytja á mölina. mér þykir ennþá undarlegra, að Framsfl. skuli hneigjast að þessu, þegar það er aðgætt, að hann ber ábyrgð á þeim fjmrh., sem nú fer með völd, og þeim ætti því að vera ljóst, að ríkissjóður hefir vissulega ekki fé til umráða nema til hinna allra mestu nauðsynjamála. Og ef allir framsóknarmenn hneigjast að því að veita 75 þús. kr., árlega, eftir því sem formælendur frv. telja, til atvinnuleysistrygginga í kaupstöðum, þá hljóta menn að skilja, að þeir álíta þetta meira nauðsynjamál heldur en flest annað.
Mér þætti mjög eðlilegt, að einhver úr flokki framsóknarmanna yrði til þess að skýra þessa nýju stefnu Framsfl. betur fyrir hv. þm. heldur en ennþá hefir verið gert, því ræða hv. þm. Barð. var næsta ómerkileg og kom lítið nærri kjarna þessa máls.
Ég þarf litlu að svara síðustu ræðu frsm., hv. 2. þm. Reykv., meðnm. minn í allshn., hv. 8. landsk., hefir þegar svarað henni lið fyrir lið. En hv. þm. spurði m. a., hvað ætti að gera við fólkið, sem atvinnuvegir landsins gætu ekki veitt verkefni. Já, það er auðvitað mesta vandamál, hvernig með það á að fara. En það er öldungis víst, að þessi vísir til atvinnuleysistrygginga, sem að hálfu leyti á að byggjast á fram lögum verkamanna sjálfra, getur ekki séð fyrir þessu fólki. Þó sósíalistum sé þetta málefni mikið kappsmál, þá tel ég vafasamt, að þeir fái þær þakkir fyrir framgang þess, sem þeir ætlast til af hendi verkalýðsins. því reynslan mun sýna, að þó framlag ríkissjóðs sé allverulegt eftir núv. afkomu hans, þá verður sú hjálp, sem atvinnuleysistryggingarnar eiga að veita verkamönnum, næsta lítilfjörleg. Vandamálið um atvinnulíf landsins er því alveg jafn óleyst, þó þessar till. verði samþ. Þær hafa e. t. v. fyrst og fremst þá þýðingu, að telja mönnum trú um, að þeim verði veittur miklu meiri stuðningur heldur en raun verður á. Og einmitt vegna skrumauglýsinga sósíalista út af þessu máli verður það sérstaklega hættulegt til þess að ginna fólk burt frá hrörnandi atvinnulífi sveitanna til kaupstaðanna.
Hv. þm. Barð., sem því miður er ekki hér við nú, sagði, að hann mundi ekki ljá þessu máli fylgi sitt nema framfærslulögin næðu einnig fram að ganga. Ég vona, að þetta sé ekki eingöngu hreystiyrði, því það er mesta nauðsynjamál allflestra sveitarfélaga, að framfærslulöggjöfin sé færð í nýtt og betra horf. Ég verð því að vænta þess, að Framsfl. sjái til þess, að það mál verði ekki svæft, heldur nái fram að ganga.
Hv. 7. landsk. gerði glögga grein fyrir sinni skoðun á þessu máli, svo þar kom fram fjöldi röksemda fyrir því, hvernig þessi lagasetning verður í framkvæmdinni í sveitum landsins og hverjir erfiðleikar verða á innheimtu gjaldanna. Þess væri að vænta, að einhverjir af þeim, sem telja sig þm. hinna dreifðu byggða, svöruðu ræðu hans, og vona ég, að svo verði, því það er Framsfl. til hinnar mestu háðungar, að hann skuli koma svo fram í jafn stórkostlegu hagsmunamáli sveitanna sem raun er á ennþá a. m. k.