05.12.1935
Neðri deild: 91. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (2557)

131. mál, alþýðutryggingar

Gísli Guðmundsson:

Ég vil leyfa mér, af því tilefni hefir gefizt til þess í ræðum einstakra hv. þm., að fara nokkrum orðum almennt um þetta mál, þó nú sé 2. umr. Það hafa sumir hv. þm., sérstaklega hv. 8. landsk., sem ekki er hér staddur í d. nú, og sömuleiðis hv. þm. Snæf., gert nokkuð að umtalsefni afstöðu framsóknarmanna sérstaklega til þessa máls. Hv. þm. Snæf. kvað eitthvað á þá leið að orði í ræðu sinni áðan, að sig undraði stórlega, að Framsfl. skyldi vilja fylgja því frv., sem hér liggur fyrir. Ég verð nú að segja, að mig undrar stórlega, að hv. þm. Snæf. skuli nokkuð furða sig á þessu. Veit ekki hv. þm., að þetta mál, almennar tryggingar, er eitt af þeim málum, sem Framsfl. hefir frá upphafi haft á stefnuskrá sinni? Það er opinbert og engum dulið, að þegar í upphafi, er stefnuskrá var getin út fyrir Framsfl., þá var þetta eitt af stefnuatriðunum, og síðan hefir flokkurinn á flokksþingum sínum hvað eftir annað endurtekið samþykktir í þá átt, að hann vildi stuðla að því, að samþ. yrðu almennar tryggingar, sem kæmu að verulegu leyti í staðinn fyrir fátækraframfærið í landinu. Hv. þm. Snæf, eða aðra sjálfstæðismenn þarf því ekkert að furða á því, þó Framsfl. styðji frv. eins og þetta, ef það er borið fram í þeim búningi í einstökum atriðum, sem hann yfirleitt getur nokkurnveginn sætt sig við.

Það má einnig furðu gegna, þegar þessi hv. þm. er að gefa í skyn, að þetta mál, almennar tryggingar, sé sérstaklega mál sósíalista hér á landi og annarsstaðar. Veit ekki hv. þm., að það eru liðnir margir áratugir síðan farið var að lögleiða tryggingar hliðstæðar þeim, sem hér er um að ræða, í ýmsum löndum? Veit ekki hv. þm. t. d., að Bismark, sem enginn vænir um, að verið hafi sósíalisti, beitti sér fyrir tryggingum í sínu landi? Veit ekki hv. þm., að Lloyd George, sem engum dettur heldur í hug, að sé sósíalisti, var því mjög hlynntur að koma á tryggingum í Englandi? Og veit hann ekki einnig, að í Danmörku komust tryggingarnar fram undir stjórn vinstrimanna, áður en sósíalistar fengu stjórnaraðstöðu? Veit ekki þessi hv. þm., að sósíalistar einir hefðu alls ekki getað komið tryggingunum á í nágrannalöndunum yfirleitt, ef þeir hefðu ekki haft til þess stuðning annara flokka, þar sem þeir hafa aldrei haft hreinan meiri hl. á þingi? (TT: Alveg eins vel eins og þessi hv. þm.) Þess vegna hljóta ræður hv. þm. að vera í algerðu ósamræmi við það, sem hann veit. (TT: Ég talaði um atvinnuleysistryggingarnar). Þessi tryggingamál yfirleitt, einnig atvinnuleysistryggingar, eru eins og ég hefi sagt, almennt umbótamál, sem umbótaflokkar víðsvegar um lönd hafa beitt sér fyrir; þeir flokkar yfirleitt, sem ekki hafa þá sömu stefnu, sem fram kom hjá einum hv. sjálfstæðismanni við eldhúsdagsumr., að sem flest vandamál þjóðarinnar eigi að vera „látin í friði“, hafa beitt sér fyrir þessum málum, og því er mjög eðlileg sú afstaða, sem Framsfl. hefir tekið til þeirra hér á landi.

Ég vil þá leyfa mér að fara nokkrum orðum um einstaka kafla frv., sem fyrir liggur. Eins og hv. þm. geta séð, fjallar frv. um fjórar tegundir trygginga: slysatryggingar, sjúkratryggingar, elli- og örorkutryggingar og atvinnuleysistryggingar. Ein tegund þessara trygginga er ekki ný hér, slysatryggingarnar; l. um þær komu til framkvæmda fyrir nokkrum árum, og mér er nær að halda, að með þeim tryggingalögum hafi greitt atkv. menn úr öllum flokkum. Kafli frv. um slysatryggingar er þannig ekki nýr, heldur eru þar tekin upp hin eldri l. með nokkrum breyt., sem reynslan hefir sýnt, að eðlilegt er að gera. Hins vegar eru hinir þrír kaflar frv. ný löggjöf. Sjúkratryggingarnar eru byggðar á þeim grundvelli, að sjúkrasamlög verði stofnuð í hverjum kaupstað landsins og hverju hreppsfélagi, þó þannig, að aðeins í kaupstöðunum er um skyldutryggingar að ræða, en í hreppsfélögunum koma tryggingarnar fyrst til þegar meiri hl. kjósenda í viðkomandi hreppi hafa samþ. það. Það er gert ráð fyrir, eins og í þessum tryggingum yfirleitt, að þeir, sem tryggðir eru, beri meiri hlutann af kostnaði sjúkratrygginganna, en ríkið og viðkomandi bæjar- eða sveitarfélag eigi að leggja fram tillag á móti iðgjöldum hinna tryggðu. Þessi opinberu tillög eiga samtals að nema 1/3 af tryggingarkostnaðinum, en þó ekki meira en 9 kr. fyrir hvern tryggingarskyldan mann frá hvorum aðila, þ. e. 9 kr. frá ríkinu og 9 kr. frá bæjar- eða sveitarfélaginu.

Elli- og örorkutryggingarnar eru hins vegar byggðar þannig upp í aðalatriðum, að hinir tryggðu eiga að bera uppi allan kostnaðinn, en gert er ráð fyrir því, að á þeim tíma, sem líður, þangað til sjóðir ellitrygginganna eru orðnir nægilega stórir til að standa undir þeim skyldum, sem á þeim eiga að hvíla, verði lagt fram úr ríkissjóði nokkurt fé til þess að þeir, sem aldraðir eru orðnir eða örorka, geti fengið nokkurn styrk þegar eftir að l. ganga í gildi. Verður sá styrkur þó nokkru minni heldur en gert er ráð fyrir að verði þegar tryggingarnar eru að fullu komnar til framkvæmda.

Atvinnuleysistryggingarnar eru þannig byggðar upp, að einstök félög verkamanna koma sér upp tryggingasjóðum, og það er þannig beint skilyrði til þess, að tryggingar gegn atvinnuleysi komist á, að félög verkamanna, eða hópar verkamanna innan félags þeirra, er sömu atvinnu stunda, séu fúsir til að leggja á sig þau gjöld, sem tryggingunum fylgja. Það verður því ekkert lagt fram úr ríkissjóði eða bæjarsjóðum til þessarar greinar trygginganna, nema verkamennirnir vilji það sjálfir og leggi á sig meiri hluta byrðanna, eða tvo þriðju af tryggingargjöldunum.

Ef þetta frv. er borið saman við þá tryggingarlöggjöf, sem gildir í öðrum löndum, t. d. Danmörku, svo tekið sé það landið, sem við höfum mest saman við að sælda, þá verður ekki sagt, að í því sé sérlega langt gengið, þó hins vegar telja megi farið fyllilega eins langt og eðlilegt er á þessu stigi, bæði hvað snertir framlög hins opinbera og þau hlunnindi, sem hinir tryggðu eiga að fá. Ef þetta frv. verður að l., sem gera má ráð fyrir, þá verður ekki annað sagt en við eigum tryggingarlöggjöf, sem er hliðstæð tryggingarlöggjöf annara landa hér í álfu, þeirra, er vel eru á veg komin á þessu sviði. Fer því þó fjarri, að lengra sé gengið hér heldur en gert hefir verið í þeim löndum sumum, jafnvel fyrir alllöngu. Ég tel sem sagt þetta frv. vel við unandi fyrir þá, sem eiga að njóta þess, án þess þó að hægt sé að telja það sérlega róttækt, samanborið við aðgerðir annara þjóða. Þetta er vert að festa í minni, því margir athuga það ekki, þegar andstæðingar slíkra mála þyrla upp ryki og falsrökum, að hér er ekki verið að gera annað en það, sem aðrar menningarþjóðir í álfunni hafa þegar gert, sumar fyrir alllöngu síðan, án þess að sósíalistar eða aðrir álíka róttækir flokkar hafi verið við völd. Þetta er aðeins almennt menningarmál, sem þjóðirnar yfirleitt vilja koma á hjá sér.

Hv. 8. landsk. lét þess getið, að sér hefði skilizt, að einhverjir af framsóknarmönnum myndu ekki fylgja þessu frv., a. m. k. ekki atvinnuleysistryggingunum. Ég veit ekki, hvað hv. þm. hefir fyrir sér í þessu. Ég fyrir mitt leyti hefi gert ráð fyrir, að því leyti sem ég hefi um málið rætt, að ég gæti ekki fylgt frv. óbreyttu eins og það var lagt fram. En það liggur ekki fyrir nú að samþ. frv. óbreytt; það eru hér fram komnar ýmsar brtt., og sumar allverulegar, sem við framsóknarmenn a. m. k. teljum til stórbóta. Ég geri ráð fyrir, að þessar brtt. verði samþ. og ræði málið á þeim grundvelli.

Eins og hv. þm. Barð. tók fram, leggur Framsfl. áherzlu á ýmsar brtt. á þskj. 667. Þær eru í sem fæstum orðum fyrst og fremst fólgnar í því, að sett sé hámarksupphæð, sem það opinbera leggi fram í þessum efnum, svo ekki sé hætta á ófyrirsjáanlegum útborgunum. Þess vegna er upphæðin ákveðin í brtt.

Önnur meginbreyt., sem Framsfl. leggur áherzlu á, er breyt. á ákvæðum frv. gr. um lífeyri til gamalmenna, með tilliti til þess, hvort þau eru búsett í kaupstöðum eða sveitum landsins. Sá kafli frv., sem fjallar um ellitryggingarnar, gerir ráð fyrir misjöfnum lífeyri, eftir því, hvar menn eru búsettir, en ekki ríður á að ákveða um þetta fyrr en rétt áður en sjóðurinn fer að greiða út. Það verður haldið áfram að safna í sjóðinn þeim greiðslum, sem til hans falla, og það er höfuðatriðið, eins og sakir standa nú.

Þá hefir meiri hl. n. gert nokkrar almennar breyt. á kaflanum um atvinnuleysistryggingarnar, sem eru þess eðlis, að Framsfl. mun fylgja þeim. Einnig hefir hv. þm. Barð. komið fram með brtt. á þskj. 697, sem fjallar um hæsta styrk, sem greiða má úr atvinnuleysissjóði. Í stað þess, að frv. miðar hámarkið við 3/4 af fullu kaupi, kemur 2/3. Þetta er nákvæmlega sama hlutfall og í dönskum l. Annars skal ég taka fram, út af því, sem hv. þm. Snæf. sagði, að útgjöld ríkissjóðs til atvinnuleysistrygginganna næmu 75 þús. kr., að það er að vísu svo, að gert er ráð fyrir, að greiðslan geti numið þessari upphæð, ef öll verkamannastéttin stofnar sjóði og notar sér hámark frv. Hinsvegar sér hver maður, og einnig hv. þm. Snæf., að engar líkur eru til, að gjaldið fari svo hátt í náinni framtíð.

IV. kafli frv., sem fjallar um elli- og örorkutryggingar, er byggður upp í 3 flokkum. Í einum fl. er Rvík, í öðrum kaupstaðirnir og í þeim þriðja kauptúnin og sveitirnar. Þetta liggur þannig fyrir samkv. frv., áður en brtt. koma til, að gengið er út frá, að til úthlutunar komi til gamalmennanna það, sem inn kemur á hverju svæði með iðgjöldum og tekjuskatti. En vegna þess, að tekjuskatturinn verður langmestur hér í Rvík, verður eftir frv. lífeyrir til gamalmenna þar einnig langhæstur. Þykir okkur framsóknarmönnum þetta óeðlilega mikill munur.

Nú er ætlazt til, að iðgjöldin séu greidd á tvennan hátt, með persónugjaldi og tekjuskatti. Framsóknarmenn telja ekki rétt, svo framarlega sem „demokratiskt“ sjónarmið á að ríkja í löggjöfinni, að Rvík sé sett hærra, þó meiri gjöld komi þar inn en í sveitunum, sem eru fátækari, a. m. k. nú um skeið, og greiða þess vegna minni gjöld. Það væri ekki frjálslegt eða „demokratiskt“. Þess vegna hefir meiri hl. n. borið fram brtt. við frv. um, að þetta verði ekki ákveðið að svo stöddu, eða ekki fyrr en sjóðurinn tekur til starfa og greiðslur hefjast. En þangað til líður alllangur tími.

Með V. kafla frv. er verið að gefa verkamönnum, sem vilja leggja á sig persónuleg föst útgjöld sér til tryggingar í atvinnuleysi, kost á, að það opinbera veiti hlutfallslega aðstoð með því að leggja fram fé á móti. Hv. þm. Snæf. sagði, þegar hann var að tala um 75 þús. kr. tillagið til atvinnuleysissjóðanna — sem ég hefi sýnt fram á, að er í raun og veru rangt —, að úr því að framsóknarmenn hefðu viljað ganga inn á þá fjárveitingu, hefðu þeir þar með lýst yfir, að þeir teldu það nauðsynlegra en flest annað. Þetta eru hans óbreytt orð. En hvers vegna dettur hv. þm. í hug að segja þetta? Það er rétt eins og þessar 75 þús. séu sú hæsta fjárupphæð til almenningsþarfa, sem framsóknarmenn hafa greitt atkv. með. Ég skal aðeins minna hv. þm. á, að í fjárlögum undanfarinna ára hafa fyrir atbeina Framsfl. verið veittar 500—600 þús. kr. á ári til jarðræktar í sveitum landsins. Svo segir hv. um. Snæf., að úr því að við viljum veita 75 þús. í þessu skyni, hljótum við að telja það nauðsynlegra en flest annað. Hvernig stendur á, að hv. þm. skuli koma fram með slíka speki hér í hv. d.?

Ég verð að segja, að mér þykir nokkuð einkennileg afstaða Sjálfstfl. í þessu eða þeirra hv. þm. flokksins, sem hafa látið til sín heyra. Er auðséð, að þeir ætla að leika sama leikinn og í ýmsum öðrum málum. Sumir hv. sjálfstæðismenn tala um þau gífurlegu framlög, sem þessi lög leggi á kaupstaðina. En hann kvartaði ekkert fyrir hönd sveitanna. En í eldhúsumr. var því haldið fram af sjálfstæðismönnum, að þessi gjöld kæmu á bak bændanna, þeir ættu að standa undir útgjöldunum. Það var önnur rödd en sú, sem nú heyrist frá hv. þm. og blöðum flokksins hér í Rvík. Það er hrópað og skrifað um, að engir skattar komi frá sveitunum, það sé Rvík, sem standi undir öllu landinu. Þegar talað er til fólksins úti í byggðum landsins, þá eru það sveitirnar, sem standa undir kaupstöðunum. En þegar þessir sömu hv. þm. tala við Rvíkinga, segja þeir, að vegna þess að engir skattar komi frá sveitunum, sé bezt fyrir Rvík að segja skilið við ríkið og búa út af fyrir sig að tekjum sínum og gjöldum.

Hv. þm. Snæf. segir, að við framsóknarmenn, umboðsmenn sveitanna, séum að samr. gjöld, sem eingöngu fari til kaupstaðanna. En hv. 3. þm. Reykv. ræðst á brtt. meiri hl. alshn. vegna þess, að meiri hl. vill ekki slá því föstu, að gamalmennin í Rvík skuli fá þrisvar sinnum meira en gamalmenni sveitanna. Honum finnst ekki gengið á hlut sveitanna, heldur ræðst hann á okkur vegna þess, að kaupstaðirnir fá ekki forréttindi fram yfir sveitirnar.

Það er yfirleitt býsna margt, sem sagt hefir verið í sambandi við þetta mál, t. d. að með samþykkt þessa frv. sé verið að ýta undir fólksstrauminn úr sveitunum til kaupstaðanna. því hefir verið haldið fram, m. a. af hv. þm. Snæf., að atvinnuleysistryggingarnar muni verða svo ginnandi, að menn muni ekki hugsa sig um að flytja til kaupstaðanna til þess að verða þeirra aðnjótandi. Um þetta getur vitanlega hver og einn sagt það, sem hann vill. Um það verður ekkert sannað nú. En ég hefi ekki trú á því, að atvinnuleysistryggingarnar geti orðið svo ginnandi, að fólkið streymi þess vegna úr sveitunum. Ég held, að það sé viðurkennt, þó kaup sé hátt hér í Rvík, að yfirleitt eigi verkamenn ekki sérlega létt með að lifa af launum sínum. Þó þessi l. verði samþ., verður alllangur biðtími frá því að menn verða atvinnulausir þangað til útborgun kemur til greina. Ég hefi því ekki trú á, að þó menn fái 2/3 af verkamannalaunum eftir að vera búnir að vera atvinnulausir í lengri tíma, þá verði það til að draga fólk í stríðum straumum til bæjanna.

Það má um það deila fram og aftur, hvort tíminn sé heppilegur til þess að samþ. slík l. sem þessi. Það má alltaf deila um, hvenær tíminn er hentugur til þess að samþ. nýmæli til almenningsþarfa. Vitanlega kemur ekki til mála að samþ. mál, sem hafa útgjöld í för með sér, nema séð sé fyrir tekjum til þess að standa straum af þeim. Enda er það kunnugt, að samkomulag hefir orðið um það milli þeirra flokka, sem standa að stj. landsins, að afla nokkurra nýrra tekna til þess að standa straum af þeim nýmælum, sem fram hafa komið á þingi. Þannig er fyrir því séð að standa undir þeim útgjöldum. En það er vitanlegt á tímum eins og nú, sem eru mjög erfiðir fyrir allan almenning, að þá er líka þörfin brýnust fyrir, að sem mest sé gert til þess að létta undir.

Það er rétt, sem hv-. þm. Snæf. segir, að fólkið í sveitunum hefir falið framsóknarmönnum umboð á þingi, enda skilja þeir fyllilega þá þörf, sem það hefir fyrir því, að þjóðfélagið rétti því hjálparhönd. En auðvitað ætlumst við ekki til eða teljum sanngjarnt að hugsa eingöngu um hagsmuni ákveðinna stétta, heldur beri að hugsa jafnhliða um fólkið í sveitunum og kaupstöðunum. Við viljum líta á allar aðstæður fólksins. Á því byggist samstarf sveita og kaupstaða, að milli hinna vinnandi stétta sé gagnkvæmur skilningur á lífskjörum og lífsbaráttu. Og nú er verið að koma fram málum með pólitísku samstarfi, sem skapazt hefir milli flokka, sem sýna þennan gagnkvæma skilning hvor á annars málum, báðum aðilum til hagsbóta.