06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1586 í B-deild Alþingistíðinda. (2563)
131. mál, alþýðutryggingar
Jóhann Jósefsson [frh.]:
Ég hafði ekki til fulls lokið máli mínu, þegar umr. var frestað síðast, og þykir mér rétt að nota þetta tækifæri til þess að segja það, sem ég þá átti eftir ósagt.
Ég hafði bent á, að þrátt fyrir, þó það mætti að mörgu leyti teljast nauðsynlegt að koma sjúkratryggingunum í lag, þá væri núna einhver sá óheppilegasti tími til þess að lögbjóða þær eins og hér liggur fyrir, með miklum skatti á einstakling, sem þrautpíndir eru fyrir. Það er þó sök sér ef einar tryggingar eru teknar fyrir í einu, en þegar á að fara að lögbjóða allt tryggingakerfið í einu, þá verða gjaldþyngslin þeim mun tilfinnanlegri fyrir einstaklinga, þegar öllu er dembt á í einu. Ég er samþykkur að mörgu leyti — þó ekki að öllu leyti — því, sem minni hl. allshn. heldur fram í nál. sínu. En mér finnst samt sem áður, þó ég sé samþykkur minni hl. um það, að mest liggi á ellitryggingunum, að þá hefði ég líka viljað, að hinar tryggingarnar væru þannig afgr., að bæjar- og sveitarfélög hefðu tækifæri til þess fyrir næsta þing að taka afstöðu til þessara mála, sérstaklega með tilliti til þess, hvað þessum aðilum er fært að bæta á fjárhagsáætlanir sínar af kostnaði þeim, sem er í sambandi við þetta. Ég minntist á það áður, sem allir vita raunar, að það hefir komið fram hér á hv. Alþ., hvað erfitt bæjarfélögin eiga fjárhagslega. Þetta hefir brotizt svo út, að jafnvel sósíalistar viðurkenna, að þessi vandræði séu svo mikil, að þeir vilja ganga í bága við fyrri kenningar sínar um skattaálagningu til þess að rétta við hag bæjarfélaganna. Það mun nú vera ákveðið að reyna að finna leiðir til tekjuöflunar fyrir bæjarfélögin, en mjög er það enn óljóst, hvaða leið verður farin til þess að afla tekna. Og því síður er það sýnt, að það takist að benda á nokkra haldkvæma leið í því efni. Á meðan svo er ástatt, þá er það að minni hyggju ólíkt viturlegra, sérstaklega fyrir fjármálastjórn þessa lands, að hlífast við að lögfesta stórkostlega aukinn kostnað fyrir bæjarfélögin, meðan allt er í óvissu um það, hvernig þeim tekst að afla tekna fyrir þeim útgjöldum, sem nú hvíla á þeim. En það hefir sennilega aldrei flogið í hug þeirri fjármálastjórn, sem við eigum nú við að búa, að fara þessa varkárari leið. Þó að barlómurinn gangi fjöllunum hærra, ef það er nefnt að veita fé til hinna nauðsynlegustu fyrirtækja bæjarfélaganna, og sagt, að þrátt fyrir 15 millj. kr. fjárlög sé ekki fé fyrir hendi til hinna nauðsynlegustu framfarafyrirtækja, þá er ekki skirrzt við að auka útgjöld fyrir hin sömu bæjarfélög með nýrri löggjöf.
Sá kaflinn af þessu lagafrv., sem mér finnst mjög óaðgengilegur, er kaflinn um atvinnuleysistryggingarnar. Ég hefi áður látið í ljós, að ég er hlynntur því að koma föstu skipulagi á styrkinn til ellihrumra manna, svo þeir þurfi ekki að kvíða sulti í ellinni. Einnig er ég hlynntur því að koma skipulagi á sjúkratryggingarnar, ef kraftar ríkis og einstaklinga leyfa. En ég verð að segja, að mér finnst þjóðin vera komin langt á villigötur, ef á að fara að lækna atvinnuleysisástandið með atvinnuleysisstyrkjum. Þess verður að gæta, að þó að benda megi á, að hjá öðrum þjóðum er þetta til, þá standa þær á gömlum merg og hafa eignir og auðæfi í löndum sínum, sem ríkissjóður og bæjarfélög geta stuðzt við. Þar er atvinnu háttað á annan veg en hér, og er að því er virðist réttilega tekið fram hjá minni hl., að atvinnuleysistryggingar eru dýrar og erfiðar í þjóðfélagi, þar sem atvinnan er eins bundin við árstíðir eins og her. Það er skiljanlegt frá hálfu bæjarsósíalista, þó þeir geri það að kappsmáli að koma á atvinnuleysistryggingum. Þeir hafa í mörg ár haldið því fram, að þær væru allra meina bót fyrir verkalýðinn í kaupstöðunum, og eru bundnir við að gera eitthvað í því efni, ef sá flokkur er á annað borð bundinn við nokkur loforð. Hitt er furðulegt, ef sá flokkur, sem ætti að gæta hagsmuna sveitanna, stuðlar að því, að flutningur fólksins úr sveitunum aukist meira en orðið er. Það er furðulegt, að sá flokkur skuli ljá lið sitt til þess að styðja svona löggjöf, sem felur í sér gyllingar fyrir fólkið, sem nú býr í sveitunum, til þess að hverfa á þessa staði. Þó að þessari atvinnuleysistryggingu sé svo fyrir komið, að sýnilegt er, að þeir menn, sem í hlut eiga, eiga að bera mikið af kostnaðinum sjálfir, þá er þó lokkandi þessi von, að geta átt von á því að fá greiðslu fyrir þann tíma, sem menn ganga atvinnulausir. Hitt er jafnáreiðanlegt, að í svo fátæku þjóðfélagi, sem okkar er, þá verður atvinnuleysistryggingum ekki haldið uppi, svo nokkru nemi, nema á kostnað framkvæmdalífsins. Þegar ríki og bæjarfélög verja miklu fé til þess að borga mönnum kaup fyrir að gera ekki neitt, þá kemur það óhjákvæmilega niður á verklegum framkvæmdum í landinu. Og í landi, þar sem eins hagar til og hér og jafnmikið er af óunnum verkefnum, þá er það næsta einkennileg stefna, að nota fé til þess að halda uppi atvinnuleysi, í stað þess að nota það til þess að vinna þörf verk. Það má benda á mörg dæmi þess í útlöndum, að atvinnuleysistryggingar verða óbeinlínis til þess að halda uppi atvinnuleysi. Það er nú svo, að ef menn eiga þess kost að fá peninga fyrir minna erfiði en meira, þá taka menn þann kostinn að fá launin fyrir minna erfiði. Ef um það er að ræða að fá laun án vinnu, þá freistast menn til þess að halla sér á þann svæfi linn, og leggja sig því ekki í líma til þess að fá atvinnu. Hér er í brtt. hv. meiri hl. borin fram sú brtt. — og tók ég eftir því, að hv. þm. Barð. lagði mikla áherzlu á, að hún yrði samþ. — að bæta við þar sem taldir eru upp þeir, sem ekki á að greiða atvinnuleysisstyrki, að þá eigi ekki að greiða til þeirra, sem hafa ekki fyrir öðrum að sjá, ef þeim býðst vinna í sveit eða annarsstaðar, gegn greiðslu, er nægi þeim til fulls lífsframfæris þann tíma eða hluta af þeim tíma, er gera má ráð fyrir, að þeir verði atvinnulausir. Mér virðist nú þetta ákvæði vera næsta óeðlilegt og að erfitt muni oft að segja um, hvenær sannanlegt sé, að einhverjum manni hafi boðizt vinna á þennan hátt, sem tiltekið er í brtt. þessari. Ég hefi verið að reyna að skilja, hvaða vit lægi þar á bak við. Þetta er að vísu hægt að ákveða á pappírnum. En þegar til framkvæmda á að koma, verður þetta næsta þýðingarlítið ákvæði. Það verður sennilega hægt fyrir þá, sem ekki vilja vinna í sveit eða eitthvað annað, eins og til er tekið í greininni, að finna afsakanir og ástæður fyrir því, að þeir geti ekki notað atvinnuna í sveitinni, eða hvar svo sem hún er. Og þess vegna munu þessi undanþáguákvæði koma að litlu liði.
Ég undrast það, að hv. þm. Barð. skuli leggja mikið upp úr þessari og öðrum brtt. sínum. Þær breyta svo sem engu í þessu máli. Það er eðlilegt, að það komi hér á daginn, eins og t. d. í Danmörku. Þar hafa menn, sem gengið hafa atvinnulausir og fengið tilboð um vinnu yfir skemmri eða lengri tíma, hafnað slíkri vinnu og sagt, að það borgaði sig betur að fá atvinnuleysisstyrkinn heldur en að taka þessari vinnu. T. d. má einnig nefna það, að í þýzkalandi gengu múrarasveinar atvinnulausir í Bremen og fengust ekki til að fara í annan bæ í nokkurra mílna fjarlægð þaðan, þar sem þeim bauðst atvinna, vegna þess að þeir kusu heldur að vera á sínum stað og fá atvinnuleysisstyrkinn. Þegar menn eru einu sinni komnir á það að fá greiðslur á þennan hátt, þá er engin von til þess, að þeir vilji sleppa þeim, nema meiri háttar fríðindi séu í boði. Með því að innleiða hér á landi þá reglu að greiða atvinnuleysisstyrk, óttast ég, að dregið verði stórkostlega úr hvöt manna til þess að leitast við að bjarga sér sjálfir. Ég veit að vísu, að þessi bjargráð, sem nefnd eru sjálfsbjargarviðleitni, þau eiga ekki upp á háborðið hjá sósíalistum hér á landi. En ég hafði haldið, að framsóknarmenn væru ekki enn svo langt teygir út á hina sósíalistísku braut, að þeir sæju ekki, að þessi stefna, að greiða atvinnuleysisstyrk, er gersamlega til þess að gera ráðstafanir til enn meira hruns atvinnuveganna í landinu en þegar er fram komið.
Það er augljóst og hefir áður verið tekið fram af framsóknarmönnum, og nú af minni hl. n., að tilhögun þessara tryggingarmála, eins og hún er framsett í frv., er sýnilega hagað þannig, að það á með henni að styrkja vald Alþýðusambands Íslands. Í frv. er nefnilega ákveðið, að ekki megi vera nema eitt félag í hverri starfsgrein á hverjum stað, sem njóti fríðinda samkv. frv. Á það hefir verið bent af hv. þm., hvað þetta er hliðstætt ákvæðunum í l. um verkamannabústaði. En þetta atriði er í mínum augum ekkert höfuðatriði í málinu, heldur hitt, að í löggjöfinni hefði að mínu áliti heldur átt að halda sér við þá stefnu, að leggja fram peninga til þess að auka vinnu í landinu, heldur en að leggja fram peninga til þess að draga úr vinnunni og auka atvinnuleysið í landinu.
Það er langhægast að hártoga og reyna að gera óvinsælt allt, sem sagt er gegn þessu tryggingafrv., því að alþýðutryggingarnar eru, eins og ég hefi áður sagt, fagrar á að líta, skoðaðir úr nógu mikilli fjarlægð, áður en menn eiga að fara að borga nefskattana, sem þeim fylgja. En hjá því verður ekki komizt að benda á þá hættu, sem ég hefi nefnt. Landslýðurinn þarfnast ekki fyrst og fremst þessara trygginga. Það eru ekki fyrst og fremst þessar tryggingar, sem fólkið óskar eftir, a. m. k. sá hluti þess, sem þarfnast atvinnu. Til þess að fólkið megi hafa atvinnu, er það ekki heillaráð að taka peninga af einstaklingum, bæjarfélögum og ríkissjóði, til þess að viðhalda atvinnuleysinu í landinu. En, til slíks er beinlínis stofnað með því að innleiða atvinnuleysistryggingar. Fólkið þarfnast verkefna og óskar eftir þeim. Það þarfnast atvinnu, sem borgar sig að vinna við. verður er verkamaðurinn launanna, og til þess að hann fái launin verður að gera atvinnuvegunum líft í þessu landi. En það er, því miður, svo, að löggjafarvaldið hefir á undanförnum árum allt of mjög starfað í þá átt að hefta atvinnuvegina og gera þeim erfitt fyrir um afkomu, hefta framtak manna í landinu, þetta framtak, sem hefir til vorra tíma gefið þjóðinni lífsviðurværi. Þau holundar- og mergundarsár, sem núv. valdhafar hafa veitt atvinnuvegunum í landinu, þau verða ekki grædd með þeim alþýðutryggingum, sem hér liggur fyrir frv. um.
Í ræðu hv. 1. landsk. sagði sá hv. þm., að þm. Alþfl. vildu gera allt til þess að stuðla að aukinni atvinnu í landinu. Það væri mjög gott, ef hv. þm. og hans flokkur vildu fylgja þessu fram, og að það kæmi þá þannig fram, að staðar yrði numið um að kippa fótum undan framtaki einstaklinga í landinu. Hvað sem segja má um útgerð ríkis og bæja og allskonar ríkisfyrirtækja, sem sumpart eru komin á og sumpart hillir undir, rá er eitt víst, að það, sem fleytt hefir þjóðinni áfram fram á þennan dag, er framtak einstakra manna. Og sama framtak hefir skapað þær eignir, sem til eru orðnar í landinu. Þetta framtak hefir Alþfl. lagt í einelti í löggjöf nú í mörg ár. Þess vegna væri gott, ef það reyndist rétt vera, sem hv. 1. landsk. sagði um vilja flokks síns til að bæta úr atvinnuleysi í landinu, að sá flokkur sæi nú, þó seint sé, villu síns vegar á sviði atvinnumálanna í landinu. Því að með því að reyna að kippa fótum undan einstaklingsframtakinu vegur sá flokkur að hagsmunum þeirra manna, sem hann þykist fyrst og fremst bera fyrir brjósti. En það er alþýða manna til sjávar og sveita.
Ég veit, að hver framsóknarmaður, sem hér er viðstaddur og þekkir þetta frv., hann veit það upp á sína tíu fingur, að með þessu frv. er stórkostlega unnið að því að auka flótta fólks úr sveitum til kaupstaða. Hvaða þýðingu það hefir fyrir hinn hnignandi sveitabúskap í landinu, það ættu hv. sveitafulltrúarnir hér á Alþ. að geta gert sér ljóst.
Af frv. er ekki hægt að sjá það ljóslega, hversu há gjaldabyrðin mundi verða, sem það kemur til með að skapa sýslu- og bæjarfélögum með öllum þessum tryggingum. Það hefði verið mjög sanngjarnt og viðeigandi af Alþ., að það hefði gefið þessum aðilum kost á að athuga þetta stórmál, áður en það samþ. endanlega afgreiðslu á því, svo að sýslu- og bæjarfélög gætu athugað möguleikana fyrir því að geta lagt fram þær fjárfúlgur, sem fram eiga af þeim að leggjast eftir frv. En það á nú að forðast að gefa þessum aðilum kost á slíku. En með baksamningum á milli stjórnarflokkanna er það ákveðið, að löggjöf þessi skuli ganga fram, hvað sem öllu öðru líður, sem ég hefi minnzt á, án þess að ráðfæra sig nokkuð við menn úti um byggðir landsins og í kaupstöðum, alþýðu manna yfirleitt, um það, hvort þeir kjósi að komast undir þá nefskatta, sem stofnað er til með frv., til þess að fá að njóta þeirra fríðinda í framtíðinni, sem fylgja þessari löggjöf.
Það er auðsætt, eins og fjárhag bæjarfélaga er nú komið, að afleiðingin af þessari löggjöf verður sú, a. m. k. í bili, að verklegar framkvæmdir bæjarfélaga stöðvast. Í þessu tilliti er alveg sömu sögu að segja af sýslu- og bæjarfélögum eins og af ríkinu, að þegar verulega kreppir að um fjárhaginn, þá lendir sú kreppa á verklegum framkvæmdum, þannig að úr þeim dregur. Skólar, starfsmannalið bæja, fátækraframfærsla o. þ. h. eru liðir, sem ekki er hægt að skera af. Þeir verða að greiðast, á hverju sem gengur. Þegar þess vegna nú er verið að stofna til þess að leggja tugi þúsunda kr. í ýmsa tryggingasjóði, þá verður framkvæmdin vitanlega þannig, að verklegar framkvæmdir bæjanna og sýslufélaganna líka, að svo miklu leyti sem þetta nær til þeirra, annaðhvort leggjast niður eða þá að það verður að slá þeim á frest um óákveðinn tíma.
Hv. 1. landsk. sagði um þetta mál — og mér virtist hann tala þar fyrir munn síns flokks — að hann væri ekki ánægður með frv. eins og það, væri. En hann sagði (og líka hv. frsm. meiri hl., 2. þm. Reykv.), að hér væri stigið fyrsta sporið í tryggingamálunum og hægara yrði að byggja ofan á, og að því yrði framfylgt af hálfu sósíalista. Til huggunar bændafulltrúum hér í hv. d., sem standa að því að koma á þessum tryggingum, má því segja það, að viðbæturnar við þetta afrek sósíalista verða, samkv. fyrirheitum þeirra sjálfra (sósíalista), í sósíalistískum anda. Til þess að taka af allan efa um þetta vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa nokkurn kafla um markmið sósíalista í sambandi við þessar tryggingar, sem er í 42. gr. 7. kafla í frv. til l. um alþýðutryggingar, sem sósíalistar báru fram á þingi 1932, þskj. nr. 273:
„Allan kostnað við sjúkrahjálp, örorkulífeyri og ellilaun til tryggingarskyldra við atvinnuleysisstyrki samkv. 37. gr., svo og önnur útgjöld, sem hvíla á alþýðutryggingunni samkv. þessum lögum vegna hinna tryggingarskyldu, bera vinnukaupendur, ríkið, sveitir og bæjarfélög 1 sameiningu, þannig að vinnukaupendur bera 3/5 kostnaðarins, ríkið 1/5 og sveitir og bæjarfélög 1/5, er skiptist samkv. ákvæðum 45. gr.“
Af þessu er það þá ljóst, hvernig stefna sósíalista er í þessu máli, þrátt fyrir ákvæði þessa frv. Yfirlýsing hv. 1. landsk. og hv. 2. þm. Reykv. um það, að þeir séu ekki allskostar ánægðir með frv. eins og það nú er, verður skiljanleg, þegar athuguð er þessi gr. í frv. frá 1952. Sósíalistar hugsa gott til, þegar búið er að stiga fyrsta sporið í þessum tryggingarmálum, að láta þá framhaldið verða í þeim sósíalistíska anda, sem kemur fram í upplesinni gr. úr frv. þeirra frá 1932, þar sem gert er ráð fyrir, að vinnukaupendur til sjávar og sveita, þ. e. bændur landsins og atvinnurekendur í kaupstöðum, beri hita og þunga dagsins í sambandi við þessar tryggingar og borgi 3/5 hluta af tryggingarkostnaðinum. Ríkið og sveitir og bæjarfélög eiga svo að bera hitt. Í þessu frv. frá 1932 er till. um tryggingar á allt öðrum grundvelli heldur en þetta frv. gerir ráð fyrir, sem hv. framsóknarmenn hafa, að sagt er, samþykkt að fylgja fram.
Af því, sem ég hefi hér tekið fram, þarf engum hv. framsóknarþm. að dyljast, hvernig sósíalistar stefna með þessu frv. Þó að með því sé að vísu hafin heldur mjúkleg byrjun, mega allir af fyrri till. sósíalista ráða, hverjum þeir ætla að bera þungann af alþýðutryggingunum, þegar fram í sækir.
Ég hefi þráfaldlega bent á það, hversu hrapað er að því að afgr. hér á Alþ. heila lagabálka Í þessum tryggingarmálum virðist einnig eiga að gera það, í stað þess að taka eina og eina tryggingu í einu og bera hana fyrst undir bæjarfélög til samþykktar. Þetta frv. er flutt fram af ofurkappi, athugunarlítið, af hv. sósíalistum. Þeim virðist mest í mun að geta sagt: Við höfum komið á alþýðutryggingum. Þess vegna hafa þeir nú sett Framsfl. tvo kosti, annaðhvort að ganga að því að samþ. alþýðutryggingafrv., eða að deyja sem stjórnarflokkur að öðrum kosti. Gott og vel. Það verður þá sýnilega svo, að hv. sósíalistar fá óskir sínar uppfylltar um að geta sagt við þjóðina: Við höfum nú komið á alþýðutryggingum. En þegar menn fara að aðgæta það, að þetta kappsmál sósíalista kemst í kring með því fyrst og fremst að lögbjóða há skyldugjöld á hvern einstakling í landinu á vissum aldri, og í öðru lagi með því að lögbjóða skylduframlög bæjarfélaga og sýslusjóða og þar með að gera þeim ókleift í núv. kringumstæðum að leggja nokkuð fram til verklegra framkvæmda, og í þriðja lagi með því að herða enn á skattaskrúfunni gagnvart þeim atvinnugreinum, sem fyrir eru í landinu og með því stórum að torvelda möguleikana fyrir að reka þær áfram — og í fjórða lagi með því að leggja nýja tolla á nauðsynjar fólksins til fata og matar ofan á þá, sem fyrir voru —, þegar menn fara að aðgæta allt þetta, þá kæmi mér ekki á óvart, þó að hugur manna þreyttist, þeirra, sem séð hafa þessi tryggingamal sósíalistanna í hillingum. Þegar þjóðin fer að taka úr umbúðunum alla þessa böggla, sem fylgja skammrifi því, sem sósialistar hér rétta að þjóðinni, alþýðutryggingunum, þá þætti mér ekki undarlegt, þótt mörgum fátæklingnum þætti allþröngt fyrir dyrum, og að margur verkamaðurinn segði, að betra hefði verið að taka þessi tryggingarmál í fleiri skrefum heldur en að leggja öll þessi gjöld á í einu. Svo þungbærir verða þeir skattar, sem hér er lagt til, að hver einstaklingur í landinu beri.
Loks vil ég benda á það, að þetta þing á eftir að inna af hendi þá skyldu gagnvart þjóðinni, sem henni ríður mest á, að greiða úr fyrir atvinnuvegum landsmanna. Ef sú skylda væri uppfyllt af þinginu, þá mundi þjóðin geta sætt sig við að bíða eftir því, að allur þessi tryggingarbálkur yrði lögfestur, jafnvel til næsta þings.