06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (2564)
131. mál, alþýðutryggingar
Frsm. minni hl. (Thor Thors):
Ég þarf aðeins stuttlega að athuga ýms ummæli í ræðu hv. þm. N.-Þ., sem nú er horfinn burt úr hv. d.
Hv. þm. byrjaði á því að segja, að tryggingamálin væru ekki sérstaklega áhugamál sósíalista úti í löndum fremur en annara, heldur komin þar á fyrir tilstilli annara en þeirra.
Það hefir ekki verið deilt um það, hvort taka beri upp tryggingar hér á landi. Deilurnar hafa fyrst og fremst staðið um atvinnuleysistryggingarnar. Hv. þm. sagði einnig, að tryggingamálin væru stefnumál Framsfl. Hvenær hafa þeir, sem deilt hafa við Framsfl. úti um hinar dreifðu byggðir landsins, heyrt, að það væri stefnumál þess flokks, að komið yrði á atvinnuleysistryggingum í landinu? Ég veit það ekki. Ég hefi ekki heyrt neitt slíkt frá Framsfl., og aðrir hv. þm. ekki heldur.
Hv. þm. N.-Þ. sagði, eins og líka hv. þm. Barð. í sinni ræðu, að brtt. þær, sem gerðar hafa verið við frv. af meiri hl. allshn., hafi gert það að verkum, að Framsfl. gæti aðhyllzt þetta frv. En þær brtt. eru þýðingarlitlar. Fyrsta brtt. er sú, að takmarka framlög ríkissjóðs til sjúkratrygginga við það, sem ráðgert er í greinargerð frv. að til þeirra þurfa. Önnur brtt., sem Framsfl.menn segjast hafa komið þarna inn, er sú, að ákveða ekki lífeyri manna mismunandi, eftir því, hvar á landinu þeir væru búsettir. Þessu er slegið á frest. En félagar þeirra, sósíalistarnir, lýsa því yfir jafnframt, að þeir séu fylgjandi ákvæðum frv. um þann mikla mismun á lífeyri, eftir því, hvar menn eru búsettir á landinu.
Hv. 1. landsk. sagði, að þeir hefðu aðeins gengið inn á að slá þessu á frest, en þetta væri stefna þeirra.
Þriðja atriðið er það, að í brtt. hv. meiri hl. allshn. er sagt, að ekki eigi að greiða atvinnuleysisstyrk til þeirra, er ekki hafa fyrir öðrum að sjá, ef þeim býðst vinna í sveit eða annarsstaðar, gegn greiðslu, er nægi þeim til fulls lífsframfæris þann tíma eða hluta af þeim tíma, er gera má ráð fyrir, að þeir verði atvinnulausir. Það sjá nú allir hv. þm., hve mikill hemill þetta er, þar sem sagt er, að þetta eigi að nægja til fulls lífsframfæris, því það mun verða seint, sem bændur megna að bjóða það kaup, sem stjórnir verklýðsfélaganna álíta, að nægi til fulls lífsframfæris. Það sjá því allir hv. þm., að þetta er ekki annað en kákbreyt. Og þetta er ekki annað en kákbreyt., þar sem framsóknarmenn eru að reyna að afsanna fylgi sitt við þessi ákvæði, af því að þeir vita, að það verður vanþakkað af umbjóðendum þeirra.
Hv. þm. N.-Þ. sagðist ekki geta skilið, að úr því að áætlað væri, að ríkið veitti 75 þús. kr. til atvinnuleysistrygginga, þá hlyti þetta að vera nauðsynlegra en flest annað. Þetta er einkennileg kenning. Hv. þm. hlýtur að hafa sofið fastar en það lítur út fyrir, ef hann hefir ekki tekið eftir því, að daglega streyma fjárkröfur til Alþ., þar sem hver sveit sækir um aukið fé til vega, hafnarbóta og fleira. Hefir hv. þm. ekki orðið var við kröfur um auknar atvinnubótaframkvæmdir? Hv. þm. hefir sofið enn fastar en lítur út fyrir, ef þetta hefir farið framhjá honum. Það er víst nauðsynlegra en flest annað að verja 75 þús. kr. til atvinnuleysistrygginga? Og það ber að meta það meira en kröfuna um aukinn jarðræktarstyrk, og meira en aukinn styrk til bænda, sem Bændafl. ber fram till. um og ekkert annað hefir verið haft á móti en það, að fé væri ekki fyrir hendi? Nú eru lausar 75 þús. kr. til þess að verja til atvinnuleysistrygginga, en til aukinna framkvæmda í landinu er ekkert fé til, ró að óneitanlega sé meiri þörf á því.
Um hinn aukna fólksstraum til sveitanna vildi hv. þm. vera fáorður og sagði þau vísdómslegu orð, að um það gæti hver sagt það, sem hann vildi. Auðvitað geta menn gert það. En öll fyrri reynsla bendir til þess, að þó að þetta agn muni reynast lítið, þegar á er rennt, þá verður það til þess að auka hinn óheillavænlega fólksstraum úr sveitunum til kaupstaðanna.
Ég þarf ekki miklu að svara hv. 1. landsk. Ræða hans var áferðarfalleg og slétt, en lítið á bak við orðin. Hann sagði, að frv. sósíalistanna hefði verið sent til Genf og fengið þar lofsamleg ummæli í ýmsum greinum. Það er orðið kunnugt, að þau ummæli voru á þá leið, að þar sem frv. væri byggt á því, að atvinnurekendurnir ættu að bera meginhluta trygginganna, þá gæti þetta gengið í landi, þar sem atvinnuvegirnir væru efnaðir og öruggir. Þar var tekið fram, að þetta þekktist ekki nema á Íslandi. Og hinir sérfróðu menn sögðu, að þetta gæti gengið í þjóðfélagi, þar sem atvinnuvegir og atvinnurekendur eru sérstaklega sterkir. Það sjá nú allir hv. þm., að augljósari dauðadóm yfir frv. er ekki hægt að kveða upp. Öllum þingheimi er ljóst, að leitun mun á landi, þar sem afkoma atvinnuveganna er jafnbágborin og óviss og hér.
Hv. þm. var ennfremur með gleiðgosalegt hjal um það, að ég væri valdur að því að draga fólksstrauminn úr sveitunum til Rvíkur. Ég verð nú að viðurkenna, að ég er ekki svo voldugur sem hv. þm. vill vera láta. En ég get sagt það, að ég fæ daglega bréf, og nú síðast úr kjördæmi hv. þm. N.-Þ., frá mönnum, sem eru að biðja mig um að útvega sér atvinnu í Rvík, þar sem þeir hefðu ekkert við að vera á heimastað sínum. Ef hv. þm. hefði nokkurn kunnugleika á þessu máli, þá myndi hann líklega ekki tala svona gleiðgosalega. Því það er fullkomið alvörumál, að fólkið leitar til kaupstaðanna í von um að fá atvinnu þar. Því miður hefi ég ekki getað orðið til þess að bæta hlutskipti þessa fólks, því fyrir hvern einstakan, sem ég hefi haft aðstöðu til þess að bæta um fyrir, hefi ég orðið að neita tíu eða jafnvel fleirum. Skopyrði hv. þm. sýna, hversu gálauslega sósíalistar taka á málunum og hve erfitt er að fá þá til þess að ræða jafnvel hin allra vandasömustu mál með festu, þar sem þeir slá fram slíku þvaðri í umr. um atvinnuleysistryggingafrv.