06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1611 í B-deild Alþingistíðinda. (2570)
131. mál, alþýðutryggingar
Jóhann Jósefsson [óyfirl.]:
Það kom fram í ræðu hv. þm. N.-Þ., að honum virtist ekki vera ljóst, að þetta frv. er byggt á svokölluðum tryggingagrundvelli. Þegar hann ræddi um það, hver ætti að vera hlutur manna í elli- og örorkutryggingum, virtist hann hafa tilhneigingu til að líta á frv. sem allsherjar hjálparstofnun, er ekkert ætti skylt við venjulegar tryggingar. Hann taldi það vitni um sérstaklega mikinn íhaldshugsunarhátt, sem fram kemur í frv., að hinir tryggðu njóti fríðindanna, sem þeir hafa öðlazt með því að borga sjálfir iðgjaldið, þó að ríki og bæjarsjóðir greiði nokkurn hluta þess. Ef hv. þm. vill halda því fram, að málið sé ekki byggt á venjulegum tryggingargrundvelli, þá getur hann ef til vill staðhæft, að allir eigi að fá jafnt út. En ef hana kannast við, að mál það, sem hér um ræðir, sé byggt á venjulegum tryggingargrundvelli, þá verður hann að kannast við, að þeir hafa nokkuð til síns máls þessir Alþýðuflokksmenn, flm. frv.
Hv. þm. var mjög að stagast á þeim íhaldshugsunarhætti, sem kæmi hér fram hjá jafnaðarmönnum, og skildist mér eftir þeirri áherzlu, sem hann lagði á þetta, að það væri eitthvað sérstaklega ljótt. En ég ímynda mér, að þetta hafi eitthvað skolazt til í huga hv. þm., þar sem lögð er mikil áherzla á það í grg. og sjálf bygging frv. bendir til þess, að hér er um tryggingu að ræða, en ekki opinbera styrktarsjóði. Ef ekki er um tryggingu að ræða, heldur opinbera styrktarsjóði, þá stenzt það, sem hv. þm. sagði, að allir eiga jafna hlutdeild til þess að fá styrk úr þeim. En um leið og sá grundvöllur er lagður að hafa gjaldið misjafnt fyrir þó, sem tryggja sig, þá er það ekki fráleitt, sem flm. hafa lagt til. Hv. þm. sagði þetta af því, að hv. 3. þm. Reykv. hafði bent á, að hér lægju skýr rök til, og hann studdi þá skoðun sína með skýrum rökum, að frv. væri byggt upp á tryggingargrundvelli. En hv. þm. N.-Þ. virðist vilja hverfa frá þeirri skoðun.
Hv. þm. sagði, að ég hefði ekki verið að tala um þetta mál, heldur annað mál, sem hefði legið fyrir þinginu 1932, og sagði hann, að það væri undarlegt, að það væri gert að umræðuefni, þar sem hér lægi fyrir frv., sem væri byggt á annan hátt. Það er rétt, að hér liggur fyrir frv., sem er byggt á annan hátt. En það liggur hér líka fyrir yfirlýsing frá hv. 2. þm. Reykv. um þetta efni, og einnig liggur fyrir yfirlýsing frá hv. 1. landsk. Og þeir virðast ekki vera ánægðir með það frv., sem liggur hér fyrir. Og þessir tveir hv. þm. sögðu, að þeir væru enganveginn ánægðir með það frv., sem hér lægi fyrir, enda væri það ávöxtur af samstarfi tveggja flokka. Og þeir sögðu ennfremur, að þeir litu á þetta sem byrjunarskref, og að jafnaðarmenn myndu leitast við að breyta því í þá átt, sem þeim líkaði betur, þegar þeir hefðu bolmagn til þess. Og það, að ég vitnaði í frv. það, sem sósíalistar fluttu 1932, var til þess að sýna, í hvaða átt þeir myndu sveigja þetta mál, og ennfremur til þess að gera hv. þm. N.Þ. og öðrum það skiljanlegt, út á hvaða braut þau spor lægju, sem framsóknarmenn hafa verið þvingaðir af sósíalistum til að stíga með því að styðja flutning frv. eins og þetta er. Þó að hv. þm. skilji ekki, að það hafi þýðingu að benda á þetta, þá geri ég ráð fyrir, að aðrir hv. dm. skilji, að milli þessara mála er eftir atriðum þeim, sem fyrir liggja, og eftir fengnum yfirlýsingum svo náið samband, að það er ekki nema maklegt, að hv. þm. N.-Þ., sem hefir unnið sér það til frama að vera sá eini af framsóknarmönnum fyrir utan hv. þm. Barð., sem einnig hefir sýnt ofurlítinn lit á að verja það, sé sýnt það skýlaust og bent á, að það er ekki þessi niðurstaða, sem sósíalistum fellur vel í geð. Og hvað þeir ætla sér, sýnir plagg það, sem ég með leyfi hæstv. forseta las eina grein úr. Það horfir svo vel við fyrir sósíalistum, þegar þeir eru búnir að koma á alþýðutryggingum og fá þau andsvör hjá almenningi, að það verði að borga heilmikið í nefskatt, að geta þá bent á till. sínar 1932 og sagt, að það hafi verið ólukkans Framsfl. að kenna, að ekki var hægt að stíga lengra. Það verður þá eins og svo víða annarsstaðar, að þessir tveir flokkar geta kennt hvor öðrum um.
Hv. þm. Barð. er ekki viðstaddur núna. En ráð var eitt atriði í ræðu hans, og það atriði, sem hann lagði mikla áherzlu á, sem mér virtist ekki mega standa svo, að ekki sé sýnt fram á veiluna í þeirri staðhæfingu, sem hann kom með. Hann sagðist ekki skilja, hvaða munur væri á því að veita fé til atvinnubóta úr ríkissjóði eða bæjarsjóðum. m. ö. o. auka þannig atvinnu í landinu, eða að leggja fram fé til atvinnuleysistrygginga. En það er gífurlegur munur á þessu tvennu. Það er reginmunur á því, hvort nota á féð til þess að vinna fyrir það þörf verk eða nota það til þess að viðhalda atvinnuleysinu. Það er beinlínis lagt fram fé til þess að viðhalda atvinnuleysinu með því að leggja fram fé til svokallaðra atvinnuleysistrygginga. En við þetta má bæta því, að eins og þetta frv. er úr garði gert, þá er það hvorki fugl eða fiskur, og það mun koma í ljós, að það verður lítill styrkur fyrir þá, sem eru atvinnulausir. Annars er rétt að geta þess, að það eru ekki aðeins við sjálfstæðismenn, sem höfum bent á, að það sé hlaupið að því að setja þessa lagasetningu með nokkuð gálausum flýti, og að réttmætt hafi verið að bera málið undir kjósendur í landinu áður en það væri lögleitt, og ennfremur, að það sé skakkt spor á erfiðum tímum að taka fé til viðhalds atvinnuleysinu. Ég tók eftir því, að hv. 2. landsk. virtist vera á sömu skoðun í þessu efni, og ég vil benda á það í sambandi við hans skoðun, að þar talar maður, sem hefir haft náin kynni af sveitastjórnarmálefnum í mörg ár.
Sá íhaldshugsunarháttur, sem hv. þm. N.-Þ. var að tala um, hefir ekki lýst sér í öðru en því, að við viljum viðhafa meiri varfærni en hann í þessu máli. Hitt vita allir, að hv. þm. N.-Þ. er ekki að mæla með frv. af því, að hann sé sjálfur sannfærður um, að það sé heppilegt að lögleiða það á þeim tímum, sem nú eru. Það er yfirlýst, að um þetta hafa verið gerðir samningar milli stjórnarflokkanna, og hv. þm. er eins og aðrir flokksmenn hans fyrirfram mýldur og handjárnaður. Það þarf því ekki að taka þetta sem hans skoðun, heldur finnst honum, að fram hafi farið lítil vörn af hálfu framsóknarmanna fyrir þessu máli, og það, sem hann hefir sagt í þessu máli, sýnir frekar það, að hann vill halda uppi málstað síns flokks, og fyrir þær sakir talar hann með þessu máli og deilir á þá, sem gagnrýna stefnu frv.
Ég hefi svo ekki fleira að segja við þennan hv. þm. í bili. Vilji hann hverfa frá því að halda því fram, að hér sé um frv. að ræða, sem sé byggt á tryggingargrundvelli, þá hann um það. Honum hefir verið sýnt fram á það, sem hann veit fyrirfram, að með því að samþ. þetta mál eru gerðar öflugar ráðstafanir af hálfu framsóknarmanna til þess að gylla fyrir þeim mönnum, sem eftir eru í sveitum landsins, hvað gott sé að koma til kaupstaðanna. Það er sýnilegt, að þá gengur framsóknarmönnum betur hér eftir en hingað til að tæma sveitirnar.