06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1626 í B-deild Alþingistíðinda. (2580)

131. mál, alþýðutryggingar

Ólafur Thors:

Ég vil vekja athygli á því, að hæstv. forseti var búinn að segja, að hann gæti sætt sig við, að atkvgr. um kaflann færi fram, og úr því að það er eindregin ósk þm. og þeir færa rök fyrir því, þá skil ég ekki, hvernig hæstv. forseti getur neitað þessu. Ef það er af því, að hann sé hræddur um, að kaflinn muni falla, þá sannar það einmitt, að kaflinn á að koma til atkv. Vil ég því beina því til hæstv. forseta, að hann leyfi atkvgr. um kaflann.